Fréttablaðið - 02.11.2009, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 02.11.2009, Blaðsíða 2
2 2. nóvember 2009 MÁNUDAGUR –fegurðin býr í bókum Barónsstíg 27 | 511 0910 | crymogea@crymogea.is | www.crymogea Nú fer fáanlegum eintökum fækkandi af þessum glæsilega grip. Tryggðu þér eintak í tíma. HEILBRIGÐISMÁL Töluvert er um að fólk leiti sér læknisaðstoðar eftir að hafa drukkið svokallaða orkudrykki. Þetta segir Ófeig- ur T. Þorgeirsson, yfirlæknir á slysa- og bráðasviði. Hann segir nauðsynlegt að fólk lesi inni- haldslýsingar og virði ráðlagðan hámarksskammt. „Þetta eru mjög varasamir drykkir í of miklu og of hröðu magni,“ segir Ófeigur um orkudrykki almennt. Ákveðið var fyrir skömmu að banna neyslu orkudrykkja í félags- miðstöðvum Kópavogs eftir að ungmenni höfðu gert sér að leik að fá sér marga í einu. Segir Arna Margrét Erlingsdótt- ir, verkefnisstjóri tómstundamála í Kópavogi, að sérstaklega séu lítil skot sem nýlega komu á markað varasöm. Þau er auðvelt að inn- byrða hratt og í miklum mæli og geta afleiðingarnar orðið alvar- legar eftir því. Orkudrykkurinn sem rætt er um er svonefnt Burn orkuskot en í innihaldslýsingu frá Vífilfelli segir: „Getur innihaldið snefil af hnetum og jarðhnetum. Eitt skot (50 ml) á dag. Neysla má ekki fara yfir dagskammtinn. Geymist þar sem börn ná ekki til. Þessi vara er ekki fyrir börn undir 14 ára aldri, barnshafandi konur og persónur sem eru viðkvæm- ar fyrir koffeini. Notið ekki sem valkost á móti fjölbreyttu fæði. Blandið ekki saman við áfengi.“ Arna segir að komið hafi fyrir að krakkarnir hafi jafnvel drukk- ið þrjú svona glös á skömmum tíma. Ungmenni átti sig oft ekki á mikilvægi þess að kanna innihald og ráðlagðan dagskammt og haldi að þau verði uppfull af orku við að drekka mikið magn. Þau komist þó oft síðar að því að mikil vanlíðan er fylgifiskur ofskömmtunar. Meðal einkenna sem fólk kvart- ar yfir þegar það leitar sér aðstoð- ar hjá lækni vegna orkudrykkja segir Ófeigur vera: Hraður hjart- sláttur, almenn vanlíðan, sviti, höfuðverkur og svo hár blóðþrýst- ingur, þótt fólk finni oftast ekki fyrir síðastnefnda einkenninu þá sé hár blóðþrýstingur óneitanlega algengur fylgikvilli orkudrykkj- aþambs. Arna hefur sent bréf til allra foreldra 13 til 16 ára ungmenna vegna málsins og hvetur starfs- menn félagsmiðstöðva og foreldra alla til að hafa vakandi auga með þessu og ræða við unglingana um afleiðingar af ofneyslu þessara drykkja. karen@frettabladid.is Leita læknis eftir neyslu orkudrykkja Nýr orkudrykkur í litlum umbúðum með miklum styrk örvandi efna frá Vífil- felli þykir varasamur. Dæmi eru um að fólk, sérstaklega ungmenni, hafi þurft á læknisaðstoð að halda eftir að hafa drukkið of mikið magn af honum í gáleysi. LÍTIL, HANDHÆG OG VARASÖM Litlu orkuskotin af Burn er auðvelt að innbyrða en styrkur örvandi efna í þeim er mikill og því varasamt að drekka of mikið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Þetta eru mjög vara- samir drykkir í of miklu magni og of hröðu magni. ÓFEIGUR T. ÞORGEIRSSON YFIRLÆKNIR Á SLYSA- OG BRÁÐASVIÐI Gylfi, var þetta lán í óláni? „Já, þetta var lán í óláni. Þú botnaðir þetta fyrir mig.“ Gylfi Ægisson segir frá 5.000 króna láni sem hann fékk frá Kristjáni Eldjárn, fyrr- verandi forseta, í væntanlegri ævisögu. Gylfi greiddi lánið til baka þegar hann var orðinn edrú nokkrum árum síðar og gaf forsetanum og hans frú tvö málverk. LANDBÚNAÐUR Jón Þórðarson, landeigandi að Suður- eyri í Tálknafirði, hefur afturkallað leyfi til smöl- unar á villifé í fjallinu Tálkna. Segir hann að leyfið hafi hann gefið með þeim fyrirvara að féð yrði ekki rekið fram af björgum eða í sjó fram líkt og hafi gerst við smölun í kringum árið 2004 og tekið fram að annars myndi hann kæra aðfarirnar yrði slíkt endurtekið. „Ég tók það fram að ef sama framferði yrði sýnt yrðu menn kærðir, bæði þeir sem stæðu að málinu og þeir sem framkvæmdu.“ Jón segir að hann geti ekki séð að staðið hafi verið við samninginn eftir að hafa skoðað upptökur RÚV frá smöluninni. Hann ætlar að kalla eftir skýrslu um málið og útskýringum á því hvar leiðigirðingar hafi verið settar upp. „Það hefur oft verið grisjað úr þessum stofni en misjafnar aðferðir hafðar á við það,“ segir Jón og nefnir að á seinni part níunda áratugarins hafi Landhelgisgæslan og víkingasveitin skotið á féð úr þyrlu. Skotin hafi orðið til þess að féð fældist og hljóp fram af björgum og út í sjó. Árið 2000 hafi svo verið grisjað úr stofninum af skynsemi og með vel úthugsuðum leiðigirðingum sem notaðar eru til að beina fénu á réttar brautir. Reyndar hafi ástæðan fyrir því að ráðist var í smölun verið sú að talið var að riða væri í fénu, síðar hafi komið í ljós að svo var ekki. Riða hafi aldrei mælst í þessum fjárstofni. - kdk Jón Þórðarson, landeigandi við Tálkna, er ósáttur við aðfarir smalamanna: Smalar í Tálkna hugsanlega kærðir LÖGREGLUFRÉTTIR Stúlka kastaði glasi í höfuð lögreglumanns á Selfossi í fyrrinótt. Lögreglumað- urinn var við störf fyrir utan 800 Bar á Selfossi og var árásin með öllu tilefnislaus. Lögregluþjónninn fékk kúlu á höfuðið og mar en stúlkan var látin sofa úr sér í fangageymslu. Sömu nótt velti maður bíl sínum í bænum og lítur út fyrir að tildrög þess hafi verið að bíl- stjórinn hafi verið að leika sér að því að spóla í hringi. - kdk Stimpingar á Selfossi: Henti glasi í höfuð lögreglu SAUÐFÉ Á BEIT Leyfi til smölunar á Tálkna hefur verið aftur- kallað. HEILBRIGÐISMÁL Aldrei hafa fleiri sjúklingar legið á Landspítalnum með svínaflensu. Þar liggja nú 45 sjúklingar með flesuna, þar af ell- efu á gjörgæsludeild. Björn Zoëga, forstjóri Landspítal- ans, segir að hann eigi von á því að í vikunni komi í ljós hvort flensan eigi enn eftir að versna eða hvort nú muni loks fara draga úr henni. Svo gæti farið að um 100 manns til viðbótar þyrftu að leggj- ast inn. Þar með gætu sjúk- lingar á gjörgæsludeild orðið allt að þrjátíu talsins en að jafnaði hefur fólk, þungt haldið af svínaflensu, þurft að dvelja þar í þrjá til fjórar vikur. Spít- alann segir hann þó geta annað slíku álagi. Spurður um hvort einhver sjúklinganna sé í lífshættu svarar hann að erfitt sé að segja til um slíkt en ástand sjúklingana á gjörgæslu sé vissulega alvarlegt. Spítalinn verður áfram hafður á virkjunarstigi. Telja má að aðeins eitt prósent þeirra sem smitast af flensunni leiti sér aðstoðar á heil- brigðisstofnun og má því ætla að fjöldi þeirra sem fengið hafa flensuna sé miklu meiri en staðfestar tölur segja til um. Svínaflensan virðist leggjast þyngra á Íslendinga en nágrannaþjóðirnar en Björn segir skýringuna á því ef til vill vera þá að flensan hér hafi verið fyrr á ferðinni. - kdk Aldrei fleiri með svínaflensu á Landspítalanum: Flensan gæti enn átt eftir að versna BJÖRN ZOËGA BRETLAND 24 ára gamall maður í Skotlandi brenndist illa á hönd- um og fótum eftir að kveikt var í honum í lest á laugardag. Maðurinn var á leið heim af knattspyrnuleik þegar atvik- ið varð. Hann er stuðningsmað- ur Aberdeen og þónokkur fjöldi stuðningsmannanna klæddist kindabúningum á laugardag. Í lestinni var kveikt í búningnum og maðurinn hljóp alelda um lestina. Aðrir farþegar helltu bjór á hann til að slökkva eldinn. Lestin var svo stöðvuð til að hægt væri að huga að manninum. 23 ára gam- all maður hefur verið handtekinn grunaður um íkveikjuna. - þeb Hrekkjavaka í Skotlandi: Kveikt í manni í kindarbúningi BÓLUSETTIR HEILBRIGÐISSTARFSMENN Útlit fyrir að almenn bólusetning við inflúensunni geti hafist í síðari hluta nóvember. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /VILH ELM SPÁNN, AP Tvær konur létu lífið þegar skriða féll á eyjuna Ten- erife á Kanaríeyjum í gærdag. Óttast er að tveir til viðbótar hafi grafist undir henni. Stór hluti úr kletti brotnaði og féll á litla strönd á vesturhluta eyjunnar. Ströndin heitir Playa de los Gigantes og er vinsæll áfangastaður ferðamanna frá Norður-Evrópu. Gott veður var í gær og fjölmenni var á strönd- inni. Um 150 björgunarmenn vinna nú á staðnum. Tvö lík hafa fundist, annars vegar af konu sem talin er vera heimamaður, og hins vegar af breskri konu sem var í fríi með fjölskyldu sinni. þeb Hluti úr kletti féll á strönd: Tveir látnir á Tenerife REYKJAVÍK Þyrping hefur sótt um leyfi til að fá að breyta einum íbúðaturni í Skuggahverfi í hótel. Það mundi rúma allt að 160 her- bergi. Þetta kom fram í fréttum RÚV í gær. Þar var rætt við forstjóra Þyrp- ingar, Odd Víðisson, sem segir hót- elrekanda mjög áhugasaman um að koma upp hóteli í hæsta turnin- um við Skúlagötu. Þyrping hefur sótt um leyfi til breytinganna hjá skipulagsyfirvöldum í Reykjavík, en engin svör fengið. Oddur vísar til þess að í nágrenninu sé verið að undirbúa 400 herbergja hótel tengt Austurhafnarverkefninu, en ríkis- valdið og Reykjavíkurborg standa að því. Þyrping vilji leyfi til sama reksturs. - kóp Þyrping sækir um leyfi: Vill breyta turni í hótel VILL HÓTEL Þyrping hefur sótt um leyfi til að breyta hæsta turninum við Skúla- götu í hótel. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM GUANTANAMO Fangar bólusettir Meintum hryðjuverkamönnum sem dúsa í Guantanamo Bay-fangelsinu býðst að verða bólusettir gegn svínaf- lensu á næstunni. Verður það gert þrátt fyrir gagnrýnisraddir í Bandaríkj- unum. SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.