Fréttablaðið - 02.11.2009, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 02.11.2009, Blaðsíða 6
6 2. nóvember 2009 MÁNUDAGUR FISKVEIÐAR Örn Pálsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, segir að leita þurfi skýringa á því hvers vegna verð á fiskmörkuðum hér á landi og útflutningsverð þróaðist ekki í takt við gengisfall krónunnar framan af ári. „Það hefur eitthvað gerst á mörkuðunum,“ segir Örn. „Ég velti því fyrir mér hvaða hlekk- ur hafi brostið, þar sem framboð var svipað milli ára. Verðfallið er með þvílíkum ólíkindum að það kallar á opinbera rannsókn.“ Meðalverð á þorski á fiskmörk- uðum hér á landi lækkaði um 21 prósent í krónum fyrsta þriðjung ársins. Á sama tíma jókst útflutn- ingsverðmæti ferskra þorskflaka um 10 prósent í krónum talið en gengi krónunnar féll um 47 pró- sent gagnvart evru og 38 prósent gagnvart sterlingspundi. Örn gerði þessi mál að umtals- efni í ræðu á aðalfundi Lands- sambands smábátaeigenda um miðjan október. Þar staðhæfði hann að þótt það væri viðtekin skoðun í þjóðfélaginu að fall krón- unnar hefði komið útflutnings- greinunum til góða hefði smábáta- útgerðin staðið styrkari fótum með sterka krónu en veika. „Það er til dæmis sárgrætilegt að bera saman verð á óslægð- um þorski á fyrsta þriðjungi yfirstandandi árs og í fyrra. Þrátt fyrir tuga prósenta veik- ingu krónunnar gagnvart evrum og pundum svo dæmi sé tekið, dugar það ekki til. Allir mánuð- irnir skiluðu lægra verði í krón- um talið fyrir þorsk en 2008,“ segir Örn. „Upphæðir sem hér um ræðir eru gríðarlegar, í stað tugaprósenta hækkunar var nið- urstaðan 17 prósenta lægra verð en í fyrra.“ Á fiskmörkuðum var meðal- verðið á óslægðum þorski 213 krónur fyrsta þriðjung ársins en 258 krónur í fyrra. „Það vantaði 21 prósent til að ná sama verði, þrátt fyrir 47 prósenta hrun krón- unnar gagnvart evru og 38 pró- senta gagnvart pundi,“ segir Örn. Hann segir að verðlækkanir á erlendum mörkuðum nægi engan veginn til að skýra málið. Svo virðist sem breyting hafi orðið á þessari þróun frá því í sumar. Verð á innlendum fisk- mörkuðum hefur farið hækkandi. Meðalverðið hefur verið á bilinu 300-400 krónur fyrir óslægðan þorsk frá því í sumar og hefur ekki verið hærra en nú undanfar- in ár. Um fjórðungur þorskaflans hefur verið seldur á fiskmarkaði í ár. Upplýsingar um þróun útflutn- ingsverðs liggja hins vegar ekki fyrir. peturg@frettabladid.is FISKVERÐ Meðalverð á fyrsta þriðjungi ársins 2008 jafngilti 2,37 evrum en fyrsta þriðjung þessa árs var meðalverðið aðeins 1,25 evrur. Verðlækkanir erlendis skýra þetta ekki, segir framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda. ÞEIR SPARA MEST SEM SKRÁ SIG STRAX Dekkja-, smur- og viðgerðaþjónusta -15% Skráðu þig í Sparitilboð N1 og lækkaðu rekstrarkostnað bílsins um tugi þúsunda króna á næstu 12 mánuðum. Reiknaðu hvað þú sparar og skráðu þig á N1.is. Telur verðfall á fiskmörk- uðum kalla á rannsókn Verð á fiskmörkuðum og útflutningsverð þróaðist ekki í takt við gengisfall krónunnar framan af ári. „Það hefur eitthvað gerst á mörkuðunum,“ segir framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda. VIÐSKIPTI Allt stefnir í að Nýja Kaupþing eignist 40 prósenta hlut í Högum og Jón Ásgeir Jóhann- esson og aðrir fjárfestar haldi 60 prósenta hlut í félaginu með því að leggja fram sjö milljarða. Með þessu yrði núverandi móðurfélag Haga skuldlaust og úr sögunni. Erlendir kröfuhafar bera að mestu leyti tugmilljarða króna tjónið sem fylgir þessu. Fréttastofa Stöðvar 2 greindi frá þessu í gær. Hagar, sem reka meðal annars verslanirnar Hagkaup, Bónus og 10-11, eru eina eign eignarhalds- félagsins 1998. Það félag er í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu. Árið 2008 fékk félagið rúmar 260 milljónir evra að láni hjá Kaupþingi til að kaupa Haga út úr Baugi. Miðað við núverandi gengi krónunnar nemur sú skuld ríflega 48 milljörðum króna. Líkt og gildir um aðrar innlendar eignir bankans var skuld 1998 við Kaup- þing flutt yfir í nýja bankann við bankahrunið. Endurskipulagning á eignar- haldi Haga stendur yfir þessa dagana en tveir fulltrúar frá Nýja Kaupþingi hafa þegar tekið sæti í stjórn 1998. Samkomulag þetta sem nú er á teikniborðinu felur einnig í sér að núverandi móðurfélag Haga, 1998, verði skuldlaust og úr sögunni. Fimmtíu milljarða skuld 1998 hjá Kaupþingi var flutt yfir í nýja bankann með afföllum. Í raun bera erlendir kröfuhafar því tjónið. Hins vegar er ljóst ef þetta geng- ur eftir að Kaupþing er að afskrifa tugi milljarða króna. Endurskipulagning á eignarhaldi Haga: Kaupþing gæti eignast 40 prósent VERSLUNIN 10-11 Hagar reka meðal annars verslanirnar Hagkaup, Bónus og 10-11. DANMÖRK Litlu munaði að illa færi þegar stærsta skemmtiferðaskip heims sigldi undir Stórabeltis- brúna í gærkvöldi. Skipið er sjö metrum of hátt til að fara undir brúna en það rétt slapp eftir að skor- steinar þess voru lækkaðir. Oasis of the Seas er stærsta skemmtiferðaskip í heimi en það var smíðað í Finnlandi. Til að kom- ast til heimahafnar í Flórída þarf skipið að fara um Stórabeltisbrúna sem tengir saman Fjón og Sjáland. Vandamálið er bara að skipið er sjö metrum hærra en brúin. Þegar skorsteinar skipsins höfðu hins vegar verið lækkaðir munaði hálfum metra á brúnni og skipinu. Þótt það stæði tæpt var ákveðið að láta vaða á fullri ferð. Ástæðan er sú að á fullri ferð leggst skipið dýpra í sjóinn og þannig slapp skipið undir brúna. Sem fyrr segir er skipið engin smásmíði, það er 225 þúsund brúttótonn sem gerir það fimm sinnum stærra en Titanic og 15 sinnum stærra en Detti- foss og Goðafoss sem eru stærstu fraktskip íslenska skipaflotans. Skorsteinar stærsta skemmtiferðaskips heims lækkaðir vegna Stórabeltisbrúar: Sigldi á fullu stími undir brúna SIGLT UNDIR BRÚNA Skemmtiferðaskipið Oasis of the Seas smeygir sér undir Stórabeltisbrúna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP KOSOVO Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, var í gær viðstaddur þegar afhjúpuð var þriggja og hálfs metra há stytta af honum í miðborg Pristína, höf- uðborg Kosovo. Þúsundir Albana buðu Clinton velkominn, en hann er þjóðhetja í Kosovo eftir að hann fyrirskip- aði loftárás á hersveitir Serba árið 1999. Styttan er úr bronsi og stendur á Clinton-stræti en gatan var í þakklætisskyni nefnd eftir forsetanum. Í ræðu sinni sagð- ist Clinton aldrei hafa búist við því að svo stór og tignarleg stytta yrði reist sér til heiðurs. - afb Albanar hylla fyrrum forseta: Bronsstytta af Bill Clinton BRONS Styttan stendur við Clinton- stræti í Pristína. ÍRAK, AP Að minnsta kosti tíu manns létu lífið í sprengjuárás- um í Írak í gær. Fimm manns létu lífið þegar sprengja sprakk á reiðhjóli í suð- urhluta Íraks í gær. Tæplega fjörutíu manns til viðbótar særð- ust. Tveir létust þegar bílasprengj- ur sprungu í Ramadi í vestur- hluta landsins. Þá féllu þrír þegar sprengja sprakk í strætisvagni í suðurhluta landsins. Aðeins er vika liðin frá því að sprengjuárásir urðu 155 manns að bana í mannskæðustu árásum í landinu í rúm tvö ár. - þeb Áframhaldandi ofbeldi í Írak: Tíu létust í sprengingum ÍTALÍA Lögreglan í Napólí á Ítalíu handtók í gær tvo mafíósa degi eftir að bróðir þeirra var hand- tekinn en sá hafði verið á flótta í fimmtán ár. Bræðurnir Pasquale og Carm- ine Russo eru grunaðir um morð og aðra mafíustarfsemi. Pasqu- ale er á lista yfir 30 hættulegustu flóttamenn Ítalíu og hefur verið á flótta frá árinu 1995. Salvatore Russo, bróðir þeirra, er einnig á listanum, en hann var handtekinn á sveitabæ á laugardag. Yfirvöld segja að Pasquale hafi stýrt mafíunni í Napolí en hún er talin ein áhrifamestu og hættu- legustu glæpaklíka Ítalíu. - afb Fimmtán ár á flótta: Mafíósar hand- teknir í Napolí HANDTEKINN Carmine Russo og bróðir hans, Pasquale, stjórnuðu mafíunni í Napolí. Hefur þú farið á McDonald´s í vikunni í tilefni af brotthvarfi staðanna af landinu? Já 10,5% Nei 89,5% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ert þú byrjuð/byrjaður að huga að jólunum? Segðu þína skoðun á vísir.is LÖGREGLUFRÉTTIR Ekið á hross Eitt hross drapst þegar ekið var inn í hrossahóp í umdæmi Sauðárkróks- lögreglu í gærkvöldi. Ökumaður bílsins slapp með skrámur en bíllinn er líklega ónýtur. KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.