Fréttablaðið - 02.11.2009, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 02.11.2009, Blaðsíða 39
MÁNUDAGUR 2. nóvember 2009 23 Fyrsta myndin í Tinnasyrpu Stev ens Spielberg verður ekki frumsýnd fyrr en í október árið 2011. Hún byggir að mestu á bók- inni Leyndardómi einhyrnings- ins en að auki á atburðum úr Krabbanum með gylltu klærnar. Útlit myndarinnar verður bylt- ingarkennt, einhvers konar sam- bland af leiknu efni og teikni- myndum. Leikaravalið hefur spurst út. Jamie Bell, strákurinn úr Billy Elliot, leikur Tinna, Andy „Gollum“ Serkis leikur Kolbein og Simon Pegg og Nick Frost úr Shaun of the Dead leika Skaftana. Næsta Tinnamynd á svo að koma 2013 og byggir hún á bókinni Fjár- sjóði Rögnvaldar rauða. Henni verður leikstýrt af Peter Jackson. Tinni á hvíta tjaldið 2011 BRÁÐUM Í BÍÓ Tinni og Tobbi koma 2011. Tónlistarmaðurinn Beck, rappar- arnir í Beastie Boys og Santigold hafa endurhljóðblandað lög söng- konunnar Noruh Jones. Útgáfur þeirra fylgja með nýjustu plötu hennar, The Fall, sem kemur út 17. nóvember. „Eins og hlutirn- ir eru í dag í plötubransanum þarf alltaf eitthvert aukaefni með hverri útgáfu. Þess vegna ákváðum við að fá fólk sem er í uppáhaldi hjá mér til að endur- hljóðblanda fyrir mig,“ sagði Norah. Hún segist hafa íhugað að biðja Beck einnig um að stjórna upptökum á plötunni en ekkert hafi orðið af því. Lögin á plöt- unni samdi hún með Will Sheff úr Okkervil River og Ryan Adams. Frægir starfa með Noruh NORAH JONES Nýjasta plata söngkon- unnar, The Fall, kemur út um miðjan nóvember. Bæði Charlize Theron og Tom Hardy hafa samþykkt að leika aðalhlutverk- in í fjórðu Mad Max-myndinni sem er í undirbúningi. Ljóst er að Mel Gibs- on, sem lék í fyrstu þremur myndun- um, verður ekki með í þetta sinn. Tökur á myndinni hefjast í ágúst á næsta ári. 24 ár eru liðin síðan síðasta Mad Max- mynd kom út og er eftirvæntingin því mikil eftir nýju myndinni. Theron er annars í miklum hasar gír um þessar mundir því nýjasta mynd hennar er ævintýramyndin The Road sem verður frumsýnd á næstunni. Hún er byggð á skáldsögu Cormac McCart- hy og á sér stað eftir miklar hamfarir í heiminum, rétt eins og Mad Max. Viggo Mortensen leikur aðalhlutverkið á móti henni. Theron í Mad Max CHARLIZE THERON Charlize Theron leikur í fjórðu Mad Max- myndinni sem er í undirbúningi. „Mér hefði aldrei dottið í hug að senda lag í Eur- ovision. Allavega ekki þetta lag. Einhvern veginn slapp það í gegn,“ segir Rögnvaldur „gáfaði“ Rögn- valdsson, sem hætti að spila með Hvanndalsbræðr- um í vor. Sumarliði, félagi hans úr bandinu, sendi lag Rögnvalds, „Gleði og glens“, í keppnina og það var eitt af þeim fimmtán sem voru valin til að keppa á næsta ári. „Hann hefur ákveðið að hrekkja gamla pönkarann með því að senda þetta inn,“ segir Rögn- valdur. „Ég ákvað svo bara að klára brandarann. Hvanndalsbræður flytja lagið og ætli ég syngi ekki bakraddir eða eitthvað. Það er svo sem allt í lagi að prófa þetta.“ Rögnvaldur segir lagið alls ekki hans besta lag. „Nei, fjarri lagi! Þetta er síðasta lagið sem ég samdi fyrir Hvanndalsbræður og ég varð að hætta í hljóm- sveitinni eftir það.“ Svo furðulega vill til að Hvanndalsbræður hafa slegið í gegn eftir að Rögnvaldur hætti. Hafa átt tvö topplög og eru spilaðir á öllum útvarpsstöðvum. Rögnvaldur er þó viðloðandi bandið og kemur stund- um með til að selja inn á böll. En er ekki gamla pönkaranum léttir í því að annar gamall pönkari, sjálfur Bubbi Morthens, semur lag í keppninni í ár? „Jú, vissulega. Það er eins og nú sé tíminn í Eurovision þegar þeir sem komu í bransann upp úr 1980 koma sterkir inn. Bubbi var náttúrlega algjört goð á sínum tíma, þó ekki væri fyrir annað en að bjarga manni frá Brunaliðinu.“ - drg Pönkari hrekktur með Eurovision EIGA ÞESSIR SÉNS Í EUROV- ISION? Hvann- dals- bræður. Rögnvald- ur lengst til hægri.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.