Vaka - 01.11.1927, Side 50

Vaka - 01.11.1927, Side 50
 KRISTJÁN ALBERTSON: [vaka] þeirra hughrifa, sem listaverk valda? Hver getur Iýst til nokkurrar hlítar mætti listanna til að vekja hjart- að og' dýpka skilninginn? Ef til vill hafði bókin fyrst og fremst vakið lesand- anum hrifning af snilli, viti og töfrum þeirrar manns- sálar, sem hafði skapað hana i inynd sinni. Þessi hrifning veitir honum aukinn styrk til manndáðar, — til að vera stórsýnn á alla hluti, til að taka ákvarð- anir, sem hann hefir kveinkað sér við. Hann er frjáls- ari, kjarkmeiri, stæltari en i hverdagsskapi, færari um hver þau tök á veruleikanum, sem krefjast dreng- skapar og krafts. Hver vottur hrifningar, sem vaknar i sál vorri, eykur oss andlega heilsu, örvar til mann- skapar í einhverri mynd — og allt sem menn hafa framið fegurst og mikilfenglegast, er skapað i hrifn- ing eða á rót sína að rekja til hennar. Áhrifum listarinnar á sál einstaklingsins eru sömu takmörk sett og hæfileikuin hans til göfgi og mikil- leika — þegar þeir eru mestir og frjálsastir i heitri hrifning. Enginn á nema eina uppsprettu lífsnautnar, — sitt eigið hugmyndalíf. Því meir sem það auðgast og frjóvgast af hugmyndalífi annara, því meiri skilyrði hefir einstaklingurinn til ríkrar lífsnautnar. Því meir sein það frjóvgast, glæðist og fegrast af kynning við hugmyndalíf hinna mestu og gáfuðustu anda, þvi meiri skilyrði hefir einstaklingurinn til menningar, vitsinuna, göfgunar. Því ineir sem hugmyndalíf vort er litað undrun og aðdáun, því meiri næmleik sem vér höfum til þess að skynja svipríki hins ytra heims, i sterkvöxnum herð- uin, i hognu baki, í klæðafalli og hreyfingum, þvi meira glaðlyndi sem vér höfum til þess að sjá dýrð og dásemd tilverunnar, í ljúfleik bjómsins, í tign fjalla, í ljósi lífsins í augum inannanna, — því fyllra og þroskavamlegra er Iif vort. Allt er þetta gefið skáld-

x

Vaka

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaka
https://timarit.is/publication/363

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.