Vaka - 01.11.1927, Page 60

Vaka - 01.11.1927, Page 60
BAUGABROT. [vaka] 378 niaður; en það skilur þú ekki! Svo skaut hann barninu hæglega út og lokaði dyrunum. U])p frá þessu kom barn- ið aldrei inn til hans, heldur sýktist það og dó. En hinn lieilagi Anselm hélt áfram með bók sína, og er hann hafði lokið við hana, dreymdi hann enn á ný, að hann stæði þar, sem stiginn reis upp til himna. Og nú tók hann hókina undir handlegg sér og tók að staul- ast upp stigann. Og enn horfði hann augunum til jarðar, en í fagnaðarríkri tiihlökkun til að geta sýnt Guði verk sitt. En er hann stóð andspænis hásætinu og leit upp, undraðist hann meir en nokkuru sinni áður, því að hon- um sýndist ekki betur en að barn bróður síns sæti í há- sætinu. Anselm hélt í fyrstu, að þetta væri Jesúbarnið; en er hann athugaði þetta nánar, þóttist hann sjá, að þetta væri barn bróður síns úr klausturskólanum, og mundi hann ekki, að það var dáið. Hann hélt því, að það hefði gjört þetta af óþekkt, hefði stolizt upp himna- stigann og sezt í hásæti Guðs. Þá varð hftin heilagi An- selmus næsta gramur og sagði: „Ég hefi ekki verið að klifra upp þennan háa stiga með þessa miklu bók undir handleggnum lil þess að finna þig, barnið mitt, heldur til þess að ganga fyrir Guðs eigið auglit og segja honum, að ég hafi nú sýnt mönnum fram á, hvers vegna Guð gjörðisl maður. Nú hefi ég komið hingað í þrjú skifti og aldrei fundið Guð í himninum“. — Þá er barn- ið þóttist sjá, að hinum heilaga Anselm hefði runnið í skap, tók það að halda, að það væri aftur komið i klaust- urskólann. Varð það þá næsta hrætt og tók að gráta. En þá kom hin heilaga guðsmóðir, tók barnið í fang sér og þrýsti því að hjarta sér. En barnið brosti þegar við henni. Við hinn heilaga Anselm mælti hún: „Far þú niður til jarðar aftur. Guð er ekki hér. Hann hefir gjörzt mað- ur. Munt þú hitta hann á jörðu niðri hjá hverjum þeim, sein þjáist. En öll þjáumst við meira og minna“. Síðan bætti hún við, um leið og hún renndi áminningaraugum lil hins heilaga manns: „Guð er orðinn maður t i I þe s s , að kærleikurinn geti þróazt á jörðunni". Þá vaknaði hinn heilagi Anselmus af svefni sínum og sá, að hann hafði alls ekki skiiið viðfangsefni sitt né heldur lifað eftir trú þeirri, sem hann játaði. Og þá grét

x

Vaka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaka
https://timarit.is/publication/363

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.