Fréttablaðið - 18.12.2009, Page 67

Fréttablaðið - 18.12.2009, Page 67
 • 11 BERTONI jakkaföt 24.990 kr. Daniel Bessi skyrta 6990 kr. Bindi 4990 kr. BERTONI jakkaföt 49.990 kr. Daniel Bessi skyrta 10.990 kr. Bindi 3990 kr. BERTONI jakkaföt 24.990 kr. Daniel Bessi skyrta 10.990 kr. Bindi 3.990 kr. BERTONI jakkaföt 49.990 kr. Daniel Bessi skyrta 6.990 kr. Bindi 4.990 kr. erum fyndnari en Malta – en við erum ekki fyndnari en Danir.“ Ebbi: „Við erum að taka smá- þjóðaleikana. Ég held að við séum rétt yfir meðallagi …“ Jóhann: „Við erum að taka smá- þjóðaleikana í grínið.“ Ykkur líður semsagt eins og Tiger Woods, flóðgáttin er að bresta og nú eru allir að fara að stíga fram. Einhverjir verða lélegir og einhverjir verða góðir. Ebbi: „Já, við hvetjum fólk til þess að vera með uppistand.“ Ari: „Þetta er sko hollt og gott!“ Mynduð þið segja að það væri líkamlega bætandi að vera með uppistand? Ari: „Jájájá.“ Hvað með andlegu hliðina? Nú eru flestir uppistandarar vansælir, þunglyndissjúklingar? Ari: „Spurðu bara „hvernig er þegar gengur ógeðslega vel?“ og „hvernig er þegar gengur ógeðs- lega illa?“ Hvernig er þegar gengur ógeðs- lega vel? Ari: „Það er geðveikt, alveg frá- bært.“ En þegar gengur ógeðslega illa? Ari: „Ohh, hræðilegt.“ Spaugstofan orðin fyndin Við ræðum aðeins um gæði. Strák- arnir eru sammála um að flestir ís- lenskir uppistandarar sem hafa stigið fram séu almennt góðir. Ebbi: „Ég held að við séum að ná að rífa upp aðeins meiri stemningu. Fólk er meira til í þetta, kannski erum við ekki að rífa stemninguna upp, fólk er bara aðeins meira til í þetta.“ Ari: „Ég veit ekki hvort það hefði verið stemning fyrir þessu fyrir tveimur árum.“ Ebbi: „Ég er ekki viss um það. Ég veit það ekki, Spaugstofan er allt í einu orðin fyndin! Er það? Ebbi: „Ja … inni á milli. Þeir eiga góða spretti eftir hrunið vegna þess að höggin eru orðin þyngri, það má meira og fólk hefur meiri þörf fyrir grín. Það þarf að sameina þjóðina og hugga hana. Grín er ótrúlega gott í það.“ Bergur Ebbi fer út á hálan ís þegar hann talar um að það sé hægt að setja allt í samhengi við hrunið. Popp er ekki rétti vettvangurinn fyrir það, en það er allt í lagi að ræða örlítið um afleiðingarnar í samhengi við grín. Eftir smá upprifjun á góðum grínistum (Tvíhöfði, Radíus o.fl.) þá tekur Jóhann til máls. Jóhann: „Það er ótrúlega mikið grínefni í gangi núna. Það er ótrú- lega mikill auður núna til að grínast með. Ég hugsa að ef Pétur Jóhann hefði verið að stíga upp í dag, þá hefði hann haft mikið til að grína með – meira en hann hafði árið 99.“ Ebbi: „Hann væri örugglega millj- ónamæringur.“ Ari: „Svo líka svona fyndið email- dót. Það er miklu meira af svona heimatilbúnu gríni.“ Ebbi: „… Af því að það er svo mikil eftirspurn. Spaugstofan er ekki nóg.“ Ari: „Það var einhver gæi úti í bæ sem gerði Hannes Hólmstein að uppistandara í Flash.“ (Allir eru sammála um að það er snilld) Jóhann: „Þetta er rétt, þú getur marinerað þig í gríni allan sólarhring- inn. Það þýðir að kröfurnar hljóta að vera að aukast.“ Ari: „Ég er á því að það er meira framboð og fleiri möguleikar.“ Jóhann: „Ég ætla að fara í jakk- ann.“ -Hvenær keyptirðu þessa peysu? Jóhann: „Ég keypti hana fyrir ári eða eitthvað, ég greip hana áðan og hún er með einhverjum blettum.“ Ari: „Hún er hvít.“ Jóhann: „Þetta er ógeðslegt. Ég er svo ógeðslegur, að um leið og þetta viðtal er búið, þá ætla ég á jólahlaðborð hjá Húsasmiðjunni. Ég er svo mikill meðalmaður. Ég ætla ekki að versla!“ Bókaðir út 2013(?) Nýtt ár fram undan, hvað tekur við? Ari: „Bara ógeðslega mikið af gríni og skemmtilegum verkefnum.“ Ebbi: „Kristján Jóhannsson var alltaf heitur í viðtölum þegar hann var spurður að þessu, þetta var 93 og hann sagðist vera bókaður út 98.“ (Allir hlæja) Ebbi: „Hann kom alltaf heim í viðtöl um jólin. Mér fannst alltaf svo geð- veikt þegar ég sá þetta. „Hvað tekur við á nýju ári? Ég er bara bókaður næstu sex ár!“ Ég dýrka þetta. Þetta er bara okkar svar! Við erum bara bókaðir út 2013.“ NGAR YNDNIR „MÉR FINNST ÞETTA SVOLÍTIÐ MERKILEGT. WILT CHAM- BERLAIN VAR FÁVITI, ÞAÐ ER TALAÐ UM AÐ TIGER WOODS SÉ FÁVITI LÍKA – KALDUR OG LEIÐINLEGUR. UPPISTANDARAR ERU STRAX BYRJAÐIR AÐ TAKA ÞETTA FYRIR, EINS OG „TIGER WOODS, WE ALWAYS KNEW HE CAN‘T DRIVE“ – ÞAÐ ER GÓÐUR GOLFBRAND- ARI. HANN VERÐUR AÐ PASSA SIG Á TRÉNU, EKKI NOTA TRÉÐ MIKIÐ – VERA FREKAR Í JÁRNINU.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.