Vikan


Vikan - 21.01.1971, Blaðsíða 22

Vikan - 21.01.1971, Blaðsíða 22
. Ómar Valdimarsson heyra i°r* m á Björgvin segir þaS á misskilningi byggt, að hann hugsi eingöngu um hraða og tækni í gítarlcik sinum. Hér er hann allavega í fullu fjöri. Hann á það til að spila marga klukkutíma i einu á sítarinn og lætur þá ekki trufla sig á meðan. I kosningum þeim sem Vikan stóð fyrir sl. sumar, undir nafninu „Óskahljómsveitin 1970", kom berlega í Ijós að stóran þátt í vin- sældum Náttúru átti — og á — gít- arleikari hliómsveitarinnar, Björg- vin Gíslason, en hann var kjörinn gítarleikari í áðurnefnda óska- hljómsveit. Til að segja alveg eins og er, þá kom mér það mjög á óvart ýmissa hluta vegna, en þó ekki, því maðurinn er afburða- snjall. Hann leit inn á ritstjórn blaðsins skömmu fyrir jól, og við ræddum saman um nokkra stund. Fyrst varð mér á að forvitnast eitthvað um plötuna langþráðu sem alltaf er verið að bíða eftir frá Náttúru, en eins og menn muna þá voru 22 VIK'AN 3 tbl þeir byrjaðir að taka upp tveggja laga plötu í fyrrasumar, þá með Jónasi R. „Við hættum alveg við þá plötu," sagði Björgvin, „vegna þess að okkur gekk upptakan það illa að þegar við loks ætluðum að fara að klára var Jónas hættur og tveir nýjir menn komnir í hljóm- sveitina. Þegar ég segi að okkur hafi gengið illa, þá á ég ekki við að við sjálfir höfum þurft svona mikinn tíma, heldur var alltaf eitt- hvað vesen með þá sem stóðu í upptökunni; það kom nokkrum sinnum fyrir að við vorum komnir niður í útvarp með allt okkar dót þegar við fréttum að ekki væri hægt að taka upp fyrr en næsta kvöld. Allt þetta leiðindavesen dró málið svo á langinn að við hreinlega gáfumst upp." plötu; hvenær við tökum hana upp, hvar og fyrir hvern. Eins og stend- ur erum við ekki samningsbundnir við neinn." „Nú hefur þú oft verið gagn- rýndur fyrir a8 rySja frá þér svo og svo mörgum nótum á mínútu og láta þá liggja á milli hluta hvernig þær nótur hljóma. Hvað finnst þér sjálfum?" „Mér finnst þetta allt á misskiln- ingi byggt, og persónulega finnst mér ég alls ekkert óskaplega „hraður" gítarleikari. Eg spila eins og andinn býður mér og reyni allt- af að vanda mig, hvort sem mér finnst einhver vera að hlusta á mig eða ekki. Auðvitað segir það sig sjálft, að ef maður veit að enginn er að hlusta og veita því athygli sem maðut er að gera, þá leggur maður sig ekki eins fram. Hallast æ meir að indverskri tónlist Spjallað við Björgvin Gíslason, gítarleikara NÁTTÚRU, um „Tónaflóð“, sítarleik og sitthvað fleira. „En svo voruð þið byrjaðir að æfa fyrir LP-plötu í sumar. Eruð þið enn að þv?" „Nei, við erum hættir því líka. Okkur fannst það efni sem _Við vorum með ekki nærri nógu gott svo við hættum og ætlum að bíða aðeins. Jú, við eigum nú senni- lega efni núna sem við erum ánægðir með, en höfum bara al- drei gefið okkur tíma til að byrja á því. Diddi (Sigurður Rúnar Jóns- son) hefur samið mest af þy[, en ég þó eitthvað. Ég veit bara ekki hvort mitt er nothæft, ví mér finnst það allt of einfalt efni. Svo sem ég það mikið á píanó, að það er eiginlega ógjörningur að nota það í hljómsveitinni. Annars er allt óklárt með þessa Þessi mynd af Björgvin i spariföt- unum var tekin f hófi á veitinga- húsi hér í bæ fyrir nokkru. Annað er, að mér finnst þessi svo- kölluð „melódísku sóló" ekki falla inn í það efni sem við erum með, nema í vissum tilfellum og því er ég ekkert að einbeita mér að því að vera lagrænn nema þegar mér finnst það viðeigandi. Svo er það óskaplega misjafnt hvernig maður er upplagður, og vitaskuld kemur það fram i þvi sem maður er að spila. I Færeyjum hlusta allir á mann og skemmta sér og klappa á eftir hverju lagi, og svoleiðis nokkuð getur haft gíf- urleg áhrif á mann. Hér er ákaf- lega lítið um það að fólk sýni áhuga á því sem maður er að gera. Jú, einu sinni í viku, á sunnudög- um í Glaumbæ, eru haldnar sam- komur þar sem fólk, hluti þess allavega, kemur til að hlusta. Það er allt Trúbrot að þakka, því það eru þeir sem hafa harkað það í gegn, og þessi vissa stemning sem þeim hefur tekizt að skapa þar helzt, þó þeir séu ekki að spila." „Hér áður fyrr spilaðir þú mik- Áskell Másson, fyrrverandi Combó- meðlimur, æfir stöðugt með Björg- vin, og leikur l>á á „tabla“-tromm- ur, en þær eru allt að því nauðsyn- legar í indverskri tónlist. ið blues. Ertu alveg hættur því?" „Mikið til. Þó tókum við blues á æfingu um daginn og þá fékk ég þessa gömlu góðu tilfinningu aftur. Þá hafði ég ekki spilað blues i hálft ár. Það skemmtilegasta við blues-inn er að formið er svo frjálst að maður getur spilað eins og manni sýnist. Maður getur sleppt sér lausum og látið dæluna ganga eins lengi og maður hefur þörf fyrir, en í þessu venjulega efni sem við erum með er það ekki svo gott. Þá er maður alltaf bundinn við ákveðna „frasa". „En sítarinn?" „Nei, ég er alltaf að spila á hann öðru hvoru, en þegar snill- ingar eins og Ravi Shankar segjast

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.