Vikan


Vikan - 21.01.1971, Blaðsíða 34

Vikan - 21.01.1971, Blaðsíða 34
Þér sparið raeð áskriít SKIP'HOLTI 33 - SÍMI 35320 STJÖRNUSPÁ HRÚTS- IVIERKIÐ 21. MARZ 20. APRÍL Margt gerist í vikunni og misskilningur á eft- ir að vekja mikla kátínu og hlátur. Þú kynnir þér nokkur mál sem þig hefur lengi langað að glugga í og verður mjög þenkj- andi yfir ýmsu er þú lest þér til. NAUTS- MERKID 21. APRIL 21. MAÍ Þú vinnur sigur, reynd- ar miklu meiri en þú gerir þér grein fyrir. Þú ert nokkuð hugsi og svartsýnn á málefni þín, en það rætist úr fyrir þér von bráðar. Þú gerir góð kaup. TVIBURA- MERKIÐ 22. MAI — 21. JÚNÍ Þú hefur komizt að einhverju sem veldur þér miklum heilabrot- um og nokkrum áhyggj- um. Þú skalt hrista af þér alla ólund, tíminn bætir allt. Heillatala er þrír. KRABBA- MERKIÐ 22. JÚNÍ — 23. JÚLÍ Þú ert ekkert störfum hlaðinn og þess vegna skaltu létta undir með kunningja þínum sem á mjög annríkt. Þú kemst í góð sambönd, vegna framgöngu þinnar í ákveðnu máli. LJONS- MERKIÐ 24. JULI- 24. ÁGÚSl Þú þarft í mörg horn að líta og því miður geta fáir létt undir með þér, en huggaðu þig við að þessar annir eru mjög tímabundnar. Ekki selja neitt, það er ekki rétti tíminn til þess. MEYJAR- MERKIÐ 24. ÁGÚST - 23. SEPT. Þú færð skilaboð sem valda þér nokkrum snúningum. Þú neitar ákveðnum manni um gistingu og hann tekur það iUa upp. Þú þarft að vera ákveðinn, ef þú vilt ekki iáta troða á þér. VOGAR- MERKIÐ 24. SEPT. - 23. OKT. Sambýlismaður þinn og þú leggið saman í glæfralegt en óskemmti- legt fyrirtæki. Þú hef- ur ekki kynnt þér nógu vel hluti sem standa nærri þér og þú um- gengst daglega, dragðu það ekki lengur. DREKA- MERKXÐ 24. OKT. 22. NÓV. Ef þú vilt að áætlanir þínar standist, verðurðu líka að vinna markvisst að því, þar þýða ekki nein látalæti. Þú gerir ættingjum þínum greiða, en þeir launa þér ekki sem skyldi. BOGMANNS- MERKIÐ 23. NOV. 21. DES. Þú færð skemmtilegan mann í heimsókn ein- hvern daginn, sem þú ættir að umgangast meira. Þú hefur óþægi- legan grun, en láttu hann samt ekki draga úr þér kjarkinn. Þú ferð í leikhús. STEIN- GEITAR- MERKIÐ 22. DES. — 20. JAN. Það verður breyting til batnaðar á högum þín- um, en því fylgir líka meiri ábyrgð. Þú átt þægilega daga í vænd- um, og ert mjög vel hvíldur og hæfur til að njóta lífsins. VATNSBERA MERKIÐ 21. JAN. — 19. FEB. Umhverfi þitt verður mjög róstusamt, en það er samt merkilegt hverju þú getur komið í verk. Dýrt tæki, sem þú notar mikið, bregzt þér. Komdu til síns heima óskilahlutnum sem hjá þér er. FISKA- MERKIÐ 20. FEB. — 20. MARZ Maður nokkur gefur þér nánar gætur, hann vill þér ekki vel, en er ekki samt líklegur til að skaða þig. Ef fjallio vill ekki koma til Mú- hameðs, þá verður Mú- hameð að koma til fjallsins.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.