Vikan - 15.01.1981, Síða 39
Viðtal
Texti: Anna Ljósm.: Ragnar Th.
Ari er til hœgri og rétt að vakna, eftir allt vesenið.
tviburana sína.
Guðfinna Eydal, hamingjusöm móðir mei
I
TvíburamÉr
hennar Guðfinnu
Bessi (til vinstri) aðeins 9 merkur, en alveg bréðhress strékur og fylgist með öllu.
Hann Bessi litli kom heim miðviku-
daginn 17. des. og þess vegna er mamma
hans ónáðuð heima við. með mynda-
töku og kjaftæði eina dagstund i
desember.
Bessi litli er bara þriggja vikna og ný-
útskrifaður af vökudeildinni. Vöku-
deildin er sá hluti barnaspítala Hringsins
sem hýsir yngstu borgarana.
Guðfinna Eydal sálfræðingur hefur
séð um vinsæla þætti í Vikunni um langt
skeið. Þar hefur hún fjallað um
fjölskyldumál, tekið á vandamálum sem
marga varða. Guðfinna eignaðist
tvihura, tvo syni. þann 28. nóvember
síðastliðinn og þrem vikum síðar var
hún svo væn að leyfa lesendum
Vikunnar að heyra svolitið frá sjálfri sér
og tviburunum litlu.
Egill Egilsson. eiginmaður Guðfinnu.
sat við skriftir umræddan dag og því lá
beint við að spyrja hvort ný bók væri i
smiðum núua. Þeim sem ekki þekkja til
skal sagt að það er sá sami Egill og sendi
frá sér bókina Sveindómur árið 1979.
bók, sem var prýðilega tekið, og áður
Karlmenn tveggja tíma.
„Já. það má alveg kalla það bók sem
hann er með i smiðum hér. Þetta eru
500 prófverkefni úr Tækniskólanum
sem hann er að fara yfir. Egill er próf-
38 Vikan 3. tbl.
dómari í eðlisfræði þar.” svarar
Guðfinna hlæjandi.
Tviburarnir sofa vært og láta sér ekki
bregða hið minnsta þótt verið sé að
þvælast í kringum þá.
Bessi litli. sá minni. er nýkominn
heim. orðinn 9 merkur. en það er
skilyrði fyrir þvi að fá að fara út i
heiminn af vökudeildinni. Hann var
tæpar 8 merkur þegar hann fæddist og
hefur farið vel fram. Ari litli er i
vöggunni við hliðina. hann var 10
merkur þegar hann fæddist.
Stóra systirin. Hildur Björg. 4 og 1/2
árs er á dagheimilinu sínu, foreldradag-
heimilinu Ósi.
„Hún er reglulega hress stelpa.” segir
mamma hennar og sýnir okkur myndir.
Ljóshærð stelpa brosir á móti okkur. já.
hún er hress.
Hvernig tekur hún þvi að eignast tvo
litla bræður? „Henni list vel á þá og
finnst bæði gaman og skrýtið að fá þá
tvo heim. En henni leiðist óskaplega
hvað þeir sofa mikið. Svo vill hún helst
leika við þá strax. en skiljanlega gengur
það ekki of vel." Guðfinna brosir.
„Stundum kallar hún þá kúkalabba og
við fréttum að hún hefði verið að segja
frá þvi um daginn hvað hana langaði
að gera við þá. og það var nú margt
misjafnt.”
Viðerum komin inn istofu. Egill situr
enn við og Guðfinna segir að hann vinni
næstum allan sólarhringinn þessa
dagana. Prófverkefnin verður að yfir
fara og svo þarf að sinna tviburunum.
„Bessi er alveg „prógrammeraður" af
vökudeildinni og vill borða á 3ja tima
fresti. en Ari er ekki eins nákvæmur með
timann. Við verðum stundum að vekja
hann til að gefa honum og skipta.
annars næði timinn. sem fer i að sinna
þeim.alveg saman.”
Það er að vonum litið um heillegan
svefn meðan tviburarnir eru svona litlir
en Guðfinna segir að miklu muni að þau
fá stúlku til að hjálpa sér frá 1-5 á
daginn. Hólmfriður heitir hún og er
eitthvaðaðsýsla inni í eldhúsi. svo gestir
njóta góðs af.
Og nú er mál til komið að fræðast ögn
nánar um tviburamál og ekki þarf að
koma að tómum kofanum hjá Guðfinnu
frekaren fyrri daginn:
„Mér var sagt það í september að ég
gengi með tvibura. en ég var nú ekki til
búin að trúa því fyrr en ég sæi þá. Það
eru engir tvíburar í fjölskyldu hjá okkur
Agli, en tviburafæðingar þurfa reyndar
ekki að vera ættgengar. Ég skrifaði strax
til nokkurra vina minna á Norður-
löndum og bað þá að senda mér alll það
hagnýta efni um tvibura. uppeldi þeirra
og yfirleitt allt sem að gagni mætti koma
til að vera vel viðbúin. En það er
skemmst frá þvi að segja að ekki fyrir-
fannst eitt eða neitt af þvi tagi um
tvíbura.
Að visu hafa tvíburar verið eftirsótt
rannsóknarefni sálfræðinga en þá yfir
leitt undantekningatilfelli. Sá áhugi er
að mestu bundinn við eineggja tvibura.
Þarna kemur nefnilega inn i myndina
ómetanlegt tækifæri til að rannsaka
áhrif erfða og umhverfis. i þeim örfáu
tilfellum sem hægt er að finna eineggja
tvibura sem hafa verið aðskildir i
bernsku.
Erfðafræðilega eru eineggja tviburar
eins. Þeir hafa sams konar litninga og
þvi er sá þáttur sami. Það sem vekur
áhuga sáifræðinga er svo að fylgjast með
því hvernig þeim vegnar í ólíku
umhverfi. í Bandarikjunum hefur verið
hægt að finna nokkur dæmi um ein-
eggja tvibura sem hafa alist upp i mjög
óliku umhverfi. annar kannski við auð
og allsnægtir en hinn við fátækt. og gera
mikilsverðan samanburð á þeim. Annað
sem vakið hefur áhuga sálfræðinga er að
bera saman allt hið óvenjulega i fari ein-
eggja tvíbura. Ef annar eineggja tviburi
fremur glæp, mun hinn þá gera það líka?
Ef annar tviburinn lendir i eiturlyfjum.
er það þá veikleiki hjá hinum líka? En
þetta er allt um afbrigðilegt. ekki það
venjulega. í ljós kom að ekki er um
auðugan garð að gresja i sambandi við
lestrarefni um venjulega tvíbura. Satt að
segja var það ekki fyrr en eftir mikla leit
að eitt plagg kom í Ijós um tvíburarann-
sóknir sem ekki tengdust þvi óvenjulega.
Það var lokaritgerð við Hafnarháskóla.
rannsóknir og viðtöl við fjölmarga
tviburaforeldra. og höfundurinn átti
sjálfur tvíbura sem ekki voru eineggja.
Mig langar að taka saman pésa upp úr
þessari ágætu ritgerð. ef ég get fengið
leyfi höfundar til þess.
Það er alltaf spurning sem hlýtur að
koma upp þegar von er á tviburum: Á að
ala þá upp eins. klæða þá eins og leggja
áherslu á það sem er líkt i fari þeirra, eða
á að reyna að láta þá þroskast eins ólikt
og hægt er. Ég hef ákveðna skoðun á þvi
máli og ætla að reyna að leggja eins
mikla áherslu á einstaklingsþroskann og
hægt er. Og alls ekki að klæða þá eins.
Það getur oft orðið vandamál með tvi-
bura, sem hafa verið mjög samrýndir,
þegar þeir verða fullorðnir og ætla að
fara að eignast eigin fjölskyldur.
Aðskilnaðurinn við hinn tviburann
getur verið mjög vandasamur og sumum
jafnvel ofviða."
Siminn hringir. Það er Álfheiður
Steinþórsdóttir. samstarfsmaður Guð-
finnu við fjölskylduráðgjöfina. sem þær
sjá um á vegum Barnaverndarráðs
Islands. Þangað getur fólk leitað með
vandamál sin i sambandi við börnin og
reynt er að kanna öll mál og leysa með
samvinnu viðalla fjölskylduna.
Guðfinna er eiginlega starfandi i
bland. þrátt fyrir að hún eigi að heita í
barneignafríi. Starfið er einhvern veginn
þess eðlis.
Hún var að vinna daginn áður en hún
var lögð inn til að eiga tvíburana. Litlu
munaði að hún freistaðist til að sinna
einhverjum málum i starfi sinu sama
dag og hún var lögð inn.
Algengt er að tvíburafæðingar séu
framkallaðar ef móðirin er fullgengin
með. Og þegar Guðfinna var búin að
ganga sinn venjulega tima meðstrákana
var það gert. Ef farið er fram yfir
meðgöngutímann er nefnilega hætt við
að börnin fari að leggja af. Tviburar
fæðast oft smáir svo ekki þykir ástæða
til að biða með fæðinguna. Guðfinna
fékk þvi að vita fyrirfram hvenær hún
myndi eiga börnin. fyrst hún hafði ekki
þann háttinn á að eiga fyrir tímann eins
og algengt er þegar tvíburar eru á leið í
heiminn.
Hins vegar lá Guðfinna ekki á
rrieðgöngudeildinni. eins og væntanlegar
tvíburamömmur eru mjög oft látnar
gera. Hún var of niðursokkin í starfið til
að leggjast en sagðist hafa getað tekið
það rólega heima við að hluta og unnið
heima.
Hún sleppti þvi líka að kenna í
október, í uppeldisfræði við Háskólann.
en það hefur hún gert undanfarin 3 ár.
Og þegar hún vissi að fjölgunar var von
hætti hún einnig við að kenna í
Kennaraháskólanum. en þar hefur hún
einnig kennt og reyndar enn meira en i
Háskólanum.
Guðfinna þarf ekki að kvíða aðgerða-
leysi í náinni framtið þó hún sé ekki
starfandi utan heimilis af eins miklum
krafti og undanfarna vetur.
„Það er sjálfsagt rétt. að meðan
tviburar eru svona litlir er alveg tvöföld
vinna að sinna þeim, miðað við eitt bam.”
svarar Guðfinna næstu spumingu. Hún er
samt svo afslöppuð að ekki er á henni að sjá
að nætumar á undan hafi veriðsvefnlausar.
Nú er Egill kominn í hópinn. Hann þver-
tekur fyrir alla sérfræðiþekkingu á því sviði
sem til umræðu er. uppeldis- og
sálarfræðirannsóknir á tvíburum. Hann
er samt fjarri þvi að vera saklaus af
þekkingu á málunum. en auðvitað
verður að trúa þvi sem hann segir.
Myndatakan er eftir og Guðfinna
sýnir okkur 5 vikna gamla mynd af
sonum sínum. Að visu eru þeir ekki
nema 3 vikna samkvæmt kirkjubókum.
eins og sagt hefði verið í gamla daga. en
hér er ekki um neina villu að ræða út af
óreglu sóknarprests eða öðru þess háttar.
eins og mann hefði grunað fyrir hálfri
annarri öld eða svo. Myndin af
strákunum var nefnilega tekin af þeini i
móðurkviði. Þeir voru — 2 til — 3 vikna
gamlir. Álika löngum tima eftir fæðing
una eru þeir enn festir á filmu. að þessu
sinni á vegum Vikunnar.
Áhyggjur út af þvi að vekja drengina
eru greinilega ekki fyrir hendi á þessu
heimili. „Þeir hafa vakið okkur svo oft
að við eigum alveg inni hjá þeim að
vekja þá núna,” segir Egill hinn ákveðn-
asti. Ari litli snýr þó á pabba sinn og
sefur i nánast hvaða stöðu sem hann er
myndaður. Enginn erfir það viðhann. 9
marka kúturinn, hann Bessi. er hins
vegar mjög fjörugur og brosi bregður
fyrir á andlitinu. en samkvæmt áreiðan-
legum heimildum er ekkert að marka
bros barna á þessum aldri. Það er jafn-
heillandi fyrir það.
Við kveðjum Guðfinnu. Egil og
tviburana að sinni og biðjum að heilsa
Hildi Björgu stóru systur og Hólmfriði
sem hjálpar til. Guðfinna þvertekurfyriri
að ætla að halda áfram út stafrófið. þótt
hún sé nú komin með syni sem heita
nöfnum sem byrja á A og B ...
L3
3- tbl. Vikan 39