Vikan

Tölublað

Vikan - 23.10.1986, Blaðsíða 4

Vikan - 23.10.1986, Blaðsíða 4
Hótel á íslandi Hótel Loftleiðir Anddyrið og gestamóttakan. Veitingabúðin, en þar er opnað klukkan fimm á morgnana. Hótel Loftleiðir- heill heimur út af fyrir sig, segir í auglýsing- unni. Þetta eru orð að sönnu. Hótel Loftleiðir er heill heimur fyrir sig. Fyrir utan allt sem hótel- ið hefur upp á að bjóða innandyra má skokka á sérstökum skokk- brautum í Öskjuhlíðinni og slappa síðan af í heita læknum á eftir. Auk þess er hótelið ekki nema í um það bil fimmtán mínútna göngufjarlægð frá miðbænum. Allt þetta kunna útlendir hótelgestir vel að meta. Hótel Loftleiðir var byggt árið 1966. Átta árum síðar var bætt við nýrri álmu og er hótelið nú stærsta hótel landsins. Þareru tvö hundr- uð og átján herbergi. Þar af eru tuttugu og fjögur lúxusherbergi, eða stór herbergi, og ein svíta eða íbúð. Undanfarið hefur farið fram gagnger endurnýjun á herbergjum hótelsins. Herbergin, sem öll eru með baði, eru nú búin léttum hús- gögnum. Teppi, gluggatjöld, rúmábreiður, lampar og fleira eru í hlýjum pastellitum. Öll herbergin eru búin sjónvarpi, síma og verið er að koma fyrir buxnapressu í þeim öllum. Hótel Loftleiðir býður upp á margs konar þjónustu. Meðal þess sem boðið er upp á er mjög full- komin fundar- og ráðstefnuþjón- usta. Stærsti fundarsalurinn, Auditorium, rúmar hundrað manns í sæti. Kristalssalnum, sem er stærsti salur hótelsins, má skipta í þrennt og þar hefur verið komið upp tveim mjög fullkomnum tækjaklefum. í kjallara hússins er Eiríksbúð 1-3, þrír minni fundar- salir. Auk þess er í kjallaranum prentstofa sem sér um allt prent- verk fyrir hótelið og ráðstefnugesti. Nýlega hefur farið fram gagnger endurnýjun á allri fundaraðstöðu hótelsins. Salirnir eru allir búnir 4 VIKAN 43. TBL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.