Vikan - 28.01.1988, Blaðsíða 38
FINNLAND
Gcrf Karpov of fljótt?
Yfirsást Karpov möguleiki á jafiitefli í viðureigninni við
Kasparov sem hefði nægt honum til að endurheimta heims-
meistaratitiiinn?
Heimsmet í
ölvunarakstri
Landbúnaðarverkamaður
í Kuopio í Finnlandi hefúr
nú slegið heimsmet í ölvun-
arakstri en hann var í síð-
ustu viku dæmdur í 49unda
skipti fyrir ölvun við akstur
og hlaut þá fimm mánaða
fangelsisdóm.
Maðurinn missti ökuskírleini
sitt til lífstíðar árið 1964 eftir
ítrekuð ölvunarbrot en hann
hefur stöðugt haldið áfram að
keyra síðan, og síðustu fjögur
árin hefur hann alls 11 sinnum
verið dreginn fyrir dómara
vegna þessa.
Maðurinn mun hafa áfrýjað
þessum síðasta dómi.
SOVÉTRÍKIN:
Landanum
hellt niður
Heimilisiðnaðurinn hinn
eini sanni á undir högg að
sækja í Sovétríkjunum um
þessar mundir. í kjölfar
krossferðar félaga Gorba-
chev gegn áfengisneyslu
hafa aðgerðir gegn heima-
bruggi og -suðu verið hertar
til muna. Á þessu ári og því
síðasta hafa rúmlega milljón
tæki til landasuðu verið gerð
upptæk og yfir fjórum millj-
ónum lítra af landa hefúr
verið hellt niður.
Þessar upplýsingar komu
firam þegar innanríkisráðherr-
ann, Alexander Vlasov, svaraði
lesendabréfi í Prövdu. Hann
skýrði einnig frá því að sykur-
neysla hefði á sama tíma aukist
um 1,5 milljónir tonna og að
1600 manns hefðu verið dregn-
ir fyrir dómstóla ákærðir fyrir
sykurstuld. Einnig lét hann þess
getið að gerþjófnaður hefði tvö-
faidast að undanförnu.
Æðstu stjórnendur vilja
meina að þessar hörðu aðgerðir
hafi skilað sér í mikilli minnkun
á drykkju Sovétmanna. Bent er á
að heildarneyslan hafi minnkað
úr 14 milljörðum lítra 1984 í
rúmlega 8 milljarða lítra árið
1986. í fyrra gerðist það líka í
fýrsta sinn í tuttugu ár að dánar-
tíðnin lækkaði í Sovétríkjunum.
Að auki fækkaði umferðarslys-
um vegna ölvunaraksturs um
34% frá 1984.
Einvígi Garrí Kasparovs og
Anatoly Karpovs í Sevilla í
desember var hápunktur
skákársins 1987. Þetta var
fjórða einvígi þeirra félaga.
Fyrst háðu þeir einvígið
endalausa í Moskvu 1984-
1985 svo tefldu þeir aftur á
sama stað 1985, síðan í
London og Lenigrad sumar-
ið 1986 og loks í Sevilla. Fyr-
ir Sevillustríðið höfðu þeir
teflt 96 sinnum saman í
heimsmeistaraeinvígjum og
staðan var 48 Vi - 47 Vz Kasp-
arov í vil. Því var nokkuð
ljóst fyrirfram að hvorugur
myndi sigla hinn í kaf í hafn-
armynninu.
Frá fagurfræðilegum sjónar-
hóli var talsvert minna í rimmu
þeirra spunnið en baráttu Fisc-
hers og Spasskys í Reykjavík
1972, sem jafnan er talið
skemmtilegasta og magnaðasta
heimsmeistaraeinvígið. Langur
kafli í einvíginu einkenndist
meira að segja af algjörri heið-
ríkju. Þá var heimsmeistarinn
Kasparov með vinningsforskot
og ætlaði bersýnilega að halda
sínum hlut með því að stýra
fleytu sinni í jafnteflishöfh. Þar
kom að Karpov jafnaði vinn-
ingatöluna en breytti þó ekki
gangi mála. Vígstaða Kasparovs
var betri, því að honum nægði
jafhtefli í einvíginu, 12—12, til
að halda heimsmeistaratitlinum.
Er tveim skákunt var ólokið var
staðan 11 — 11 og þá færðist
heldur betur fjör í leikinn.
Tuttugasta og þriðja skákin
og sú næstsíðasta var æsispenn-
andi. Karpov hafði hvítt og náði
undirtökum og er skákin fór í
bið eftir 40 leiki var staða hans
betri. Samt var afar tvísýnt um
það hvort honum tækist að
knýja fram sigur. Er þeir héldu
biðskákinni áfram voru báðir
taugaósyrkir og lentu í tíma-
hraki. Sífellt hallaði á Kasparov
og er tími hans var að fjara út
greip hann til þess ráðs að fórna
hrók ef það mætti verða til að
hræra upp í stöðunni. Allt kom
fyrir ekki. Karpov tók hraustlega
á móti fórninni og er tíma-
mörkunum var náð gafst von-
svikinn Kasparov upp.
„Karpov er orðinn heims-
meistari" sögðu flestir, enda
hafði það aldrei gerst í sögu
heimsmeistaraeinvígjanna að
lokaskákin breytti stöðunni.
Karpov hafði 12 vinninga gegn
11 vinningum Kasparovs. Hon-
um nægði jafhtefli til að hreppa
titilinn. Kasparov ætlaði þó
greinilega að selja sig dýrt.
Lokaskák einvígisins var.
kynngimögnuð. Er hún fór í bið
eftir 41 leik hafði Kasparov peði
meira í endatafli; hafði drottn-
ingu og biskup gegn drottningu
og riddara Karpovs. Sérffæðing-
ar treystu sér hvorki til að dæma
stöðuna unna á Kasparov né
jafhtefli. Siguriíkur Kasparovs
voru metnar á bilinu 50-90%
og allra augu beindust að Sevilla
laugardaginn 21. desember er
biðskákin var tefld. Þá tefldi
Kasparov frábærlega vel og eftir
64 leiki var þessi staða á borð-
inu:
abcdefgh
Karpov sem hafði svart sá
fram á hrun í næstu leikjum því
að hvítur hótar Bd2-f3-e4 og
drepa síðan á g6. Uppgjöf Karp-
ovs í stöðunni kom því engum á
óvart. I skákblaði einu var sagt:
„Hugsanleg lok eru 64. — Dd5+
65. Bf3 Dc5 66. Be4 Db4 67.
Bxg6 og vinnur."
Einn lesanda blaðsins sætti sig
ekki við þessa athugasemd, því
að hann sá gildru í stöðunni sem
líklegt er að Karpov hafi sést
yfir. Eftir 67. - Db7+ 68. Kh2
Dh 1 +!! 69. Kxh 1 er svartur patt
og staðan er jafntefli! Það hefði
óneitanlega orðið sögulegt ef
heimsmeistaraeinvíginu hefði
lokið með þessum hætti.
Sigur hvíts í lokastöðunni er
því hreint ekki eins augljós og
talið var en staða hans er þó
vitaskuld unnin ef hann sýnir
aðgæslu. í stað 67. Bxg6!! sem
leiðir til jafhteflis leikur hann
67. Kh2! og nú má svartur ekki
drepa biskupinn. Eftir 67. —
Dxe4 68. Dxf8+ Kh7 69. Df7+
Kh8 70. Dxe6 vinnur hvítur
auðveldlega. Betra er 67. — Dc5
68. Bd3 Db4 69. Bxg6 Rxg6 70.
Dxg6 Dxh4+ en með 71. Kg2!
(ekki 71. gxh4 og svartur er aft-
ur patt) vinnur hvítur taflið.
Peðsendataflið eftir 71. — Dg4
72. Dxg4 hxg4 73. f4 gxf3 fr.hl.
74. Kxf3 Kg7 75. kg4 Kg6 76.
Kh4 Kf5 77. g4+ Kxe5 78. g5
Kf5 79. Kh5 er unnið á hvítt.
Máltækið góða: „Enginn vinn-
ur skák með því að gefa hana“
kemur ósjálfrátt upp í hugann.
Karpov getur nagað sig í hand-
arbökin um ókomin ár fýrir að
hafa misst af þessu tækifæri.
Hver veit nema Kasparov hefði
fallið í gildruna og þá væri Karp-
ov heimsmeistari næstu þrjú
árin.
38 VIKAN