Vikan - 28.01.1988, Side 50
Svipað og að útbúa hátíðarveislu
Öm Petersen er markaðsstjóri VISA íslands en á erfltt með að
rjúfa tengslin við útvarpið.
- örn Petersen
á Stjörnunni
tekinn tali
Á meðal athyglisverðra þátta á
Stjörnunni er þáttur Arnar Pet-
ersen, „Síðan eru liðin mörg
ár“, sem er á dagskrá á sunnu-
dagseftirmiðdögum. Eins og
nafnið bendir til fer Örn aftur í
tímann og spilar tónlist frá
löngu horfnum árum, en Vik-
unni lék forvitni á því hvað
hann byði upp á fleira og
hvernig hann ynni þáttinn sinn.
„Jú, ég geri ýmislegt fleira en
að spila tónlist frá ákveðnum
tima. Fyrst ákveð ég að fjalla um
eitthvert ákveðið ár og síðan ligg-
ur leið mín niður á Landsbóka-
safn. Þar gref ég upp fréttnæma
atburði frá því ári og skrái þá
niður. Því næst reyni ég að ná tali
af einhverjum sem tengist atburð-
unum sem um ræðir, en það get-
ur orðið mjög erfitt og oft útilokað.
Maður veit aldrei fyrirfram hvort
einhver sem maður ætlar að
reyna að ná í er lífs eða liðinn
eða hvort hann vilji yfirhöfuð tala
um það sem gerst hefur.
Til dæmis má nefna að ég ætl-
aði að ræða við mann sem vann
stórfé í happdrætti fyrir fjölda ára,
en hann vildi ekkert um það ræða
- Pálml
Cuðmundsson
á Hljóðbylgjunnl
þótt þessi tími væri liðinn.
Þessi undirbúningur er allur
mjög tímafrekur og kannski má
líkja þessu við að útbúa veislu-
Pálmi Guðmundsson er
maður eftirmiðdagsins á Akur-
eyri. Á hverjum degi er hann í
loftinu frá klukkan 13 til klukk-
an 17 á Hijóðbylgjunni, út-
varpsstöð þeirra norðanmanna,,
sem mun jafnvel taka upp ein-
hverskonar samstarf við aðra
hvora frjálsu útvarpsstöðv-
anna sunnan heiða.
Pálmi, eða Bimbó eins og hann
er líka kallaður, er þaulkunnugur
öllu tónlistarl ífi Isiendinga þar
sem hann hefur um árabil starfað
að tónlistarmálum. Það er ég viss
um að flestir Norðlendingar sem
eru komnir til vits og ára muna eftir
ferðadiskótekinu „Bimbó" sem
Pálmi rak árum saman. Þá þeytti
máltíð. Þú stendur í eldhúsinu í
sex klukkustundir en gestirnir eru
bara hálftíma að borða afrakstur-
inn. Þetta er ekki einn af þeim
Pálmi (Bimbó) Guðmundsson
er einn af frumherjum frjáls
útvarps hér á landi.
þáttum þar sem maður getur grip-
ið plötubunka undir arminn og
labbað inn í stúdíó í því trausti að
maður bjargi þessu.“
Þegar hér var komið sögu vildi
blaðamaður Vikunnar vita hvort
Örn hefði unnið við útvarp áður.
„Jú, eitthvað hef ég komið ná-
lægt því. Ég vann á Ríkisútvarp-
inu í átta ár, frá 1970 til 78. Með-
al þátta sem ég sá um má nefna
Popphornið, Tíu á toppnum, Nýtt
undir nálinni og Út í bláinn. Svo
ég er ekki beint nýgræðingur á
þessu sviði. Eftir að ég hætti á út-
varpinu tók svo ýmislegt við, en
síðastliðin þrjú ár hef ég verið
markaðsstjóri fyrir VISA ísland,
sem er krefjandi og skemmtilegt
starf.
Vissulega má segja að ég hafi
varla tíma til að standa í þessu
útvarpsstússi. Eins og ég sagði er
starfið hjá VISA mjög krefjandi og
auk þess á ég stóra fjölskyldu,
konu og fjögur börn. Ætli það
megi ekki segja að þau þekki mig
af hrotunum. En í alvöru talað
myndi maður auðvitað ekki leggja
á sig þessa vinnu nema maður
hefði gaman af henni. Það fer öll
helgin í að undirbúa hvern þátt og
ein aðalástæðan fyrir því að ég
stend í þessu er sú að aðstaðan
og mannskapurinn hér á Stjörn-
unni eru fyrsta flokks. Mórallinn er
mjög góður og það er einstaklega
gott að vinna með fólkinu hérna.
hann skífum í Sjallanum um fimm
ára bil.
Ekki hefur hann þó látið sér
það nægja að spila plötur. Um
nokkurt skeið rak hann nefnilega
hljóðverið „Stúdíó Bimbó" þar
sem þó nokkur fjöldi platna var
hljóðritaður. Á tímabili gaf hann
einnig út tímaritið „Smellur" sem
fjallaði um popptónlist og ungt
fólk.
Eins og sjá má af þessari upp-
talningu hefur Pálmi komið víða
við i tónlistarlífinu og fyrr á árum
kom hann sér nokkrum sinnum
upp ólöglegum búnaði til að út-
varpa fyrir Akureyringa við mikinn
fögnuð yngri kynslóðarinnar. Ekki
voru yfirvöld þó jafn hrifin og ávallt
var búnaðurinn gerður upptækur
jafnóðum.
Það hlýtur því að hafa verið
mönnum sem Pálma mikil bless-
un þegar frelsi fékkst loks I út-
varpsmálum og segja má að
þessi hugsjónamaður sé nú loks
kominn á rétta hillu. Munið, á virk-
um dögum frá eitt til fimm. -AE.
Kominn á rétta hillu
50 VIKAN