Vikan


Vikan - 23.02.1939, Blaðsíða 21

Vikan - 23.02.1939, Blaðsíða 21
Nr. 8, 1939 VIKAN 21 „Vökukona bæjarinsu. Framh. af bls. 11. — Já, ég var sótt til að hjálpa, svaraði ég og reyndi að sýnast róleg. Á meðan ég horfði á hann fara úr frakkanum, var ég að hugsa um, hvort hann myndi eins vel og ég eftir síðasta fundi okkar. Þá var hann nýbúinn að ljúka prófi og var að fara til að vera að- stoðarlæknir. Kvöldið áður hafði honum verið haldin veizla. Þegar hann ók fram hjá húsinu okkar á leiðinni til stöðvarinn- ar, nam hann staðar og stökk út úr bíln- um, þegar hann sá mig í garðinum. — Vertu sæl, María, sagði hann inni- lega og rauk allt í einu að mér og kyssti mig beint á munninn. — Ég er búinn að kveðja svo marga með kossi, svo að ég ætla að kyssa þig líka. Hann hafði horft brosandi á mig og þrýst hönd mína. Þessum kossi gat ég aldrei gleymt, þó að hann væri aðeins moli af borði ríka mannsins.------- Karl var kjólklæddur, svo að ég vissi, að hann hafði komið frá Ritu. Mér fannst ég aldrei hafa séð hann eins laglegan, — háan og glæsilegan — og í þetta skipti í þessu litla herbergi. — Þetta er engin vinna fyrir þig, María, sagði hann, eftir að hafa litið lauslega í kringum sig. — Þetta er inflúenza, og við verðum að fá eldri og reyndari hjúkrun- arkonu. — Það er of seint í dag, greip ég fram í fyrir honum. — Auk þess hefi ég oft stundað inflúenzu-sjúklinga. — Fyrirgefðu, ég gleymdi því, að þú ert öðru vísi en aðrar ungar stúlkur. — Komdu og hjálpaðu mér. Hann skoðaði konuna vandlega og þeg- ar hann hafði lokið því, hristi hann höf- uðið yfir hinum þunga andardrætti henn- ar. Síðan gaf hann henni sprautu og fór að klæða sig í frakkann. Eitt andartak stóðum við og horfðum á konuna. — Auminginn, ságði ég og klappaði á hönd hennar. — Ég fer á morgun, María, sagði hann. — En hvað mér þykir leiðinlegt, að við skulum aldrei hafa hitzt! Hvers vegna skemmtir þú þér ekki eins og jafnaldrar þínir? — Ég veit ekki, við erum eins og skip, sem mætast á nóttu, sagði ég og brosti dauflega. —- Já, það er satt. Við erum skólasyst- kini og sjáumst rétt með höppum og glöppum. Hann tók í höndina á mér. — Er þetta ekki erfitt starf fyrir þig, María ? Ég hristi höfuðið. Hann leit á klukk- una. — Því miður verð ég að fara aftur til Ritu, ég lofaði því. — Auðvitað, flýttu þér bara, sagði ég og leit undan. En hvað ég öfundaði Ritu og hinar að fá að dansa við hann. — Verður þú hér í nótt, María? — Já, Níels segir, að systir sín komi heim á morgun, svo að ég verð hér þangað til. Ég sendi Jenssen með skilaboð til mömmu, svo að hún verði ekki hrædd. — En getur þú vakað, María? — Auðvitað; veiztu ekki, að ég er köll- uð „vökukona bæjarins“. Rödd mín titr- aði. — Og þar að auki er ég sterk. — Þú ert dugleg og góð stúlka. Hann rétti mér höndina. — Jæja, vertu sæl, við erum eins og skip, sem mætast á nóttu, eins og þú segir. -----Eitt handtak, og hann var far- inn! En ég fann þetta handtak lengi á eftir. Enn var rigning, og nóttin var dimmri en nokkru sinni áður. Þegar birti var íbúðin enn leiðinlegri, ef hægt var. Ég þvoði yngstu börnunum, gaf þeim að borða og tók eins vel til og ég gat. Frú Jenssen var nær hitalaus, svo að mér fannst ég geta farið snöggvast heim til að gefa mömmu morgunverð. Undir eins og ég hafði lokið því, hljóp ég aftur út til að bíða eftir dótturinni. Börnin voru úti í garði að leika sér. Niels fór til að taka á móti systur sinni, og ég var að þvo í eldhúsinu, þegar dyrnar opnuðust, og Karl Berg kom inn. — Ég — ég hélt, að þú værir farinn, hrópaði ég. — En þú sérð, að svo er ekki, sagði hann brosandi. — Mig langaði til að vita, hvort þú værir hér enn. — Var gaman í gærkvöldi? spurði ég og leit undan. — Já, því þótti víst gaman, en Rita reiddist við mig fyrir að fara hingað. Hann hló. — Og þess vegna langaði mig til að vita, af hverju þér var ekki boðið — þess vegna fór ég þangað aftur. — Og fékkstu að vita ástæðuna ? spurði ég- — Ég fékk að vita það, sem ég vildi, svaraði hann og fór inn til sjúklingsins. — Henni líður miklu betur, sagði hann. — Betri hjúkrunarkonu en þig hefði hún ekki getað fengið. Ég roðnaði af ánægju og flýtti mér fram í eldhús til að líta eftir hafragrautnum, sem ég var að sjóða. Karl kom á eftir mér. — Þú hefir ekkert sofið í nótt, góða mín, það hefi ég ekki heldur. Þegar ég fór héðan, var ég að hugsa um þig — ég var að hugsa um, hvort þú héldir, að ég væri alveg gengin af göflunum, ef ég bæði þig um að koma með mér. — Þú átt við, að þú hafir starf handa mér, stamaði ég. — Já, einmitt. Hann gekk nær mér. — Mér finnst þú vera yndislegasta stúlkan, sem ég hefi nokkurn tíma þekkt! Ég gekk úti í rigningunni í alla nótt til að velta þessu fyrir mér, og nú spyr ég þig, hvort þú haldir, að þér geti þótt svolítið vænt um mig. Þú verður fyrirmyndar læknis- frú. Ég varð orðlaus, en hann las svarið í augum mér — hnífurinn, sem ég hélt á, datt á gólfið, síðan tók hann mig í faðm sér. — Ó, ástin mín, hvíslaði hann, — manstu, þegar ég kyssti þig síðast? Hann þrýsti mér að sér og kyssti mig blíðlega. Ég hélt, að mig væri að dreyma. Við gleymdum stund og stað. Allt í einu opn- uðust dyrnar, og Jenssen kom inn ásamt elztu dóttur sinni. — Hvað — hvað er nú þetta? Hann brosti góðlátlega. — Þér eruð eins fallegar og fegursta málverk, ungfrú María, hrópaði hann. — og ég er viss um, að lækninum finnst það líka. Karl sagði fólkinu, að við værum trú- lofuð, og það óskaði okkur allra heilla. Þegar hann hafði talað við það um kon- una, tók ég í hönd hans og sagði: — Við verðum að fara heim og segja mömmu frá þessu. Hann kinkaði kolli, og þegar við höfðum kvatt fólkið, tókumst við í hendur og hlupum niður veginn eins og börn. En allt í einu sleppti ég hendi hans og hrópaði óttaslegin: — Ó, Karl, ég hefi alveg gleymt — ég get ekki farið með þér, ég get ekki farið frá mömmu. Hann tók utan um mig. — Elskan mín, heldur þú, að ég ætli að láta þig fara frá mömmu þinni? Hún verður hjá okkur — það er nógu stórt húsið okkar — við tölum ekki meira um það, þetta er ákveðið mál. * Ég hló að því, hvað hann var ákveðinn og tók aftur í hönd hans, og við hlupum heim. Ég gat varla beðið með að segja mömmu frá þessu, en samt varð ég að bíða drykklanga stund, því að Karl vildi endilega kyssa mig í forstofunni, og ég verð að játa það, að mér var það ekkert á móti skapi. Huggun. Ekkja nokkur grét mjög við greftrun manns síns. — Kunningjar hennar reyndu að hugga hana og báðu hana að sefa harm sinn og minnast þess, að nú hefði hann fengið „rólegan samastað“. — Já, þetta er satt, svaraði hún með tárin í augunum, — nú veit ég, hvar hann er á nóttunni. / # Hún: Þú trúir þá ekki á neitt? Hann: Nei, ég trúi ekki á neitt, sem ég skil ekki. Hún: Jæja, það kemur nokkurnveginn í sama stað niður. * Prestur var að hugga ekkju og sagði: — Já, það var sjaldgæft valmenni hann Jón, hans líka finnið þér aldrei. Ekkjan: — Það er ekki gott að segja, að minnsta kosti ætla ég að reyna það.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.