Menntamál - 01.10.1949, Síða 43

Menntamál - 01.10.1949, Síða 43
MENNTAMÁL 101 komulag rekstursins. Þá var einnig skoðuð dælustöð hita- veitunnar og gestum sagt nokkuð frá því sérstæða fyrir- tæki. Sunnudaginn 3. júlí var lagt af stað austur yfir fjall í bílum þeirra skólastjóranna Arngríms Kristjánssonar og Jóns Sigurðssonar. Hallgrímur Jónasson, kennari var og með í þessari ferð í sínum bíl. Með honum var danskur skólastjóri, G. A. Lykke-Möller frá Lyngby á Jótlandi. Veð- ur var kyrrt og gott, en ekki sólskin. Fjallasýn sæmileg. Var haldið sem leið liggur að Gullfossi og staðnæmzt þar. Mikið fannst gestunum til um fegurð fossins. Síðan var haldið að Geysi. Var þar fyrir fjöldi manns, m. a. gestir þjóðræknisfélags íslands Vilhjálmur Stefánsson land- könnuður, Guðmundur Grímsson dómari og fylgdarlið þeirra. Geysir var duttlungafullur og lét bíða alllengi eftir gosi. En menn voru í sólskins skapi þrátt fyrir það, enda sá til sólar öðru hvoru. Að lokum gaus Geysir allmyndar- legu gosi, ekki mjög stóru, en hann var að í hálftíma, svo að gestirnir höfðu nægan tíma til að athuga aðfarir hans. Enginn þeirra hafði séð slík undur fyrr. Um kvöldið var haldið að Laugarvatni og gist þar. Þá var veðrið orðið svo yndislegt, að vart getur fegurra á landi hér að sumar- lagi. Veit ég að gestunum verður Laugarvatn ógleyman- legt, því að morguninn eftir var og dýrðlegt veður. Var öllum veittur hinn bezti beini í gistihúsinu. Morguninn eftir var haldið af stað árla dags og var förinni heitið austur í Fljótshlíð. Veður var hið fegursta. Héldu Norðmenn áfram að Múlakoti og Hlíðarenda, en Hallgrímur og félagar hans upp á Skeið. Hittust svo allir á Hellu seinna um daginn. Voru þá skoðaðir hinir merki- legu hellar á Ægissíðu. Kvöldmatur var snæddur að Sel- fossi. Var þar nýr lax og skyr á borðum. Sumir útlending- arnir smökkuðu þá góðu rétti þá í fyrsta sinni á æfinni og þótti hvorttveggja gott! — Norsku gestirnir héldu Þing- vallaleiðina til Reykjavíkur, en höfðu skamma viðdvöl á

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.