Menntamál - 01.12.1950, Blaðsíða 23

Menntamál - 01.12.1950, Blaðsíða 23
MENNTAMAL 221 FIMMTUGUR: Arngrímur Kristjánsson forseti S. I. B. Arngrímur Kristjánsson skólastjóri og forseti Sam- bands ísl. barnakennara átti fimmtugsafmæli 28. sept. s. 1. Arngrímur er fæddur að Sigríðarstöðum í Suður- Þingeyjarsýslu, sonur Kristjáns Skúlasonar bónda þar og konu hans, Unnar Jóhannsdóttur, Bessasonar á Skarði. Ólst Arngrímur upp með afa sínum, Jóhanni, mikilúð- legum manni eftir mynd að dæma. Hafði Sigurður skólameistari mynd af Arngrímur Kristjánsson. honum hangandi í skrif- stofu sinni, kvað hann vera líkastan því, sem hann hefði hugsað sér Egil Skallagrímsson. Má ætla, að frá þessum áa sínum muni Arngrími kominn þróttur og þrek. Arngrímur stundaði fyrst nám á Hvanneyri og lauk þaðan búfræðiprófi 1919, kennaraprófi lauk hann 1923, og framhaldsnám stundaði hann á Norðurlöndum 1926, kynnti sér einkum garðyrkju og verklegt nám barna.

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.