Menntamál - 01.12.1960, Blaðsíða 21
MENNTAMAL
187
Unglingarnir og vandamál þeirra.
í Norsk Skuleblad, júní s.l., ræða þrír merkir skóla-
menn æskulýðsvandamál landa sinna. Þessir menn eru:
próf. Torsten Husén, Svíþjóð, dr. phil. Roar Skovmand,
Danmörku, og mag. Wolmar Mattlar, Finnlandi. Grein
norska höfundarins varð síðbúin og er von á henni síðar.
Þar sem Norsk Skuleblad mun ekki vera mikið lesið á
íslandi, en málefni þau, sem um er fjallað, ofarlega í hug-
um margra íslenzkra kennara, vonast ég til, að einhverj-
um þyki fengur í að kynnast viðhorfum og niðurstöðum
áðurnefndra manna.
I.
Husén nefnir grein sína: „Familjen som uppfostrings-
miljö i det moderne samhállet." Hann hefur mál sitt með
samanburði á félagslegum aðstæðum fyrir hálfri öld og
nú. Hann bendir á, að fyrrum hafi siðir og skoðanir breytzt
mjög hægt. Heimilið var þá, jafnframt því að vera
sjálfstæður framleiðandi, aðaluppeldisstofnunin. Börn og
unglingar ólust upp í nánu samstarfi við fullorðna fólkið
á heimilinu. Tengsli við fortíðina voru'Sterk, oft þrír ætt-
liðir samtímis á heimilinu. Uppeldið var mjög nátengl
starfinu, því að hlutur skyldunámsins var rýr og að mestu
fólginn í að kenna lestur, skrift og nokkuð í kristnum
fræðum.
Hann rekur síðan niðurstöður félagsfræðilegra rann-
sókna á þeim breytingum, sem helztar hafa orðið og vald-
ið því, sem hann nefnir byltingu í stöðu heimilisins og
starfi, og heldur áfram: Fjölskyldan hefur minnkað,
tengslin við fortíðina rofnað, börnum á heimilinu fækkað,
samvistir fjölskylduaðila minnkað að miklum mun, en
það stafar m. a. af því, að heimilið er ekki framleiðandi