Vorið - 01.12.1968, Blaðsíða 10

Vorið - 01.12.1968, Blaðsíða 10
fallegt reiShjól af beztu gerð, sem var eign hans. Loksins átti hann reiöhjól. Þetta var þó aðeins draumsýn. Hann vaknaði af henni við það að hann átti ekkert reiðhjól og myndi áreiðanlega ekki ná 1. einkunn á prófinu í vor. Kannski aldrei? Svo raunsær var hann, þótt hann væri aöeins ellefu ára. „Þú hefðir aldrei átt að lofa honum þessu reiðhjóli,“ liafði mamma hans sagt við pabba hans. „Hann getur aldrei unnið til þess að fá það. Þetta verða aldrei nema vonbrigöi og eru þegar orð- in það. Sársaukafull vonbrigði.“ „Ég hef nú trú á, að hann geti náð fyrstu einkunn, ef hann les nógu vel,“ sagði faðir hans. „Hann fékk nú ekki nema 5 í aðal- einkunn í fyrra. Hann fær aldrei nema í mesta lagi 6 í vor, og kalla ég það gott. Til hvers er að vera að kvelja hann með þessum skilyrðum, sem hann getur aldrei fullnægt. Það gerir honum ekkert nema illt. Þessi stöðugu vonbrigði hafa ill áhrif á hann. Þú veizt hvað hann er viðkvæmur að eðlisfari. Hættu nú að setja þetta skilyrði og gefðu honum reiðhjól. Það hefði betri áhrif á hann,“ sagði móðir Orra. „Þú hefur sjálf enga trú á drengnum. Það hefur heldur ekki góð áhrif á hann,“ sagði faðir Orra. „Það er satt, að ég hef ekki trú á honum sem námsmanni og stúdents- prófi nær hann aldrei,“ sagði móðir Orra. „En það getur orðið maður úr honum samt, meira að segja góður og nýtur maður, og það er fyrir öllu.“ „Þú hefur aldrei reynt að vera mér samtaka um að herða á drengnum við námið,“ sagði Gunnar faðir hans. „Ég bara þekki hann betur en þú og veit, hvaða kröfur hægt er að gera til hans. Það á aldrei að gera rneiri kröfur til barna en þau eru fær um að full- nægja. Ég held, að þú ættir að gefa honum reiðhjólið núna og vita hvaða áhrif það hefur á hann,“ sagði móðir Orra. „Það er nú það,“ sagði Gunnar fað- ir Orra. — Nú kom Orri niður lil foreldra sinna, og var mjög þreytulegur. „A ekki að fara að borða, mamma?“ spurði hann. „Mig langar annars ekki í neinn mat,“ bætti hann við. „Jú, ég ætla að fara að leggja á borð- ið, Orri minn,“ sagði mamma hans. „Þú verður að borða, væni minn. Það er fyrir öllu.“ — Svona liðu dagarnir einn af öðr- um. Þeir færðu Orra engan sigur. Hann fékk lélega einkunn í dag, skárri í gær, en aftur lélega á morgun. Þess vegna kom liann alltaf 'hei rn þreytulegur og nið- urbeygður. Hann kveið alltaf fyrir að hitta pabba sinn, þegar honum hafði gengið illa á prófinu. Hann spurði hann alltaf um prófið, þegar heim kom, en þaðan voru engar góðar fréttir að færa. Loks var prófunum lokið og börnin höfðu fengið einkunnir sínar. Orri bjóst ekki við neinu góðu. Hann haföi aldrei búizt við að fá 1. einkunn, og þá heldur ekki reiðhjólið. En einhvern veg- inn var það þó svo, að hann vonaðist samt eftir því í lengstu lög að fá reið- hjólið, þótt hann ynni ekki til þess. En 152 VORIÐ

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.