Vorið - 01.12.1968, Blaðsíða 31

Vorið - 01.12.1968, Blaðsíða 31
OLI: (Hefur setið og veriS að staula í bók hálfhátt. Lítur úl um gluggann.) Það er voða fínn maður, pabbi, með gull á húfunni sinni. PÉTUR: Nú, já, já. Það er Fógetavarg- urinn. Þá er víst bezt að koma þessu undan. (Lætur peningana inn í skáp.) FÓGETINN: (Inn.) Góðan daginn, Pét- ur bóndi. PÉTUR: (Sprettur upp og hneigir sig djúpt.) Góðan daginn, herra Fógeti. FÓGETI: Alltaf nóg að starfa. Já, því segi ég það. Stórbóndi, Pétur á Stóru Völlum. ÓLI: Pabbi var að telja peninga. PÉTUR: (Byrstur.) Farðu undireins, strákur, og láttu inn hestinn Fóget- ans og gefðu honum vel af höfrunum af utanverðu hlöðuloftinu. ÓLI: Já, pabbi. Eru það ekki hafrarn- ir, sem maðkurinn komst í? PÉTUR: Hana, út með þig, letiblóð. Nei, auðvitað nýiu hafrarnir. ÓLI: Nú, þessir á miðloftinu? PÉTUR: (Um leið og hann ýtir Óla út. Lágt.) Nei, á utanverðu loftinu. ÓLT: (Fyrir utan.) Nú, maðkahafr- amir. PÉTUR: (Skellir aftur hurðinni.) Æ, já, hann er sannarlegur húskross þessi blessaður drengur. FÓGETI: Hann er samvizkusamur drengurinn. Sérdeilis samvizkusam- ur. Betur að nóg væri af slíkum með vorri þjóð. PÉTUR: Já, það væri betur. En hann er einfaldur, greyið. FÓGETI: (Horfir í kringum sig og nuggar saman höndunum.) En sum- ir eru tvöfaldir. Já, anzi tvöfaldir. PÉTUR: Æ, já, herra fógeti, en ekki tek ég það til mín. FÓGETI: Nei, mikil ósköp, nei, nei. — Þetta er myndar bú hjó þér, Pétur minn. PÉTUR: Æ, minnist þér ekki á það, Fógeti góður. Þetta hefur aldrei geng- ið jafn hörmulega og í ár. Æmar hrundu niður úr pestinni og kýrnar steingeltust um veturnætur. Og fóð- urbætirinn, sá kostar nú skilding núna. FÓGETI: 0, sei, sei, Pétur minn. Þetta blómgast allt hjá þér. PÉTUR: Nei, það er öðru nær. Ég er bara helzt að hugsa um að hætta þessu hokri og flytja í borgina. Þar kvað nú vera líf og fjör. Og þar þarf maður ekki að þræla myrkranna á milli fyr- ir ekki neitt. FÓGETI: Já, það segirðu satt, Pétur minn. Það er líf og fjör í borginni. Ja, það eru merkilegustu hlutir, sem þeim geta dottið í hug þar. Það er nú einmitt af því tilefni, sem ég er á ferð hér. PÉTUR: Jæja. FÓGETI: Jó, sjóðu til. Þeir veðjuðu um það við hirðina hvar snjórinn væri hvítastur í ríkinu. Hirðmenn- irnir sögðu að fallegasti snjórinn væri í kringum höfuðborgina, en keisarinn — lilessað sé nafn hans — sagði að hann væri áreiðanlega hvít- ari sér austurfrá. Og nú hefur hann falið mér að finna fallegasta snjóinn og láta þann bónda, sem væri svo lán- samur að eiga hann, koma með 10 VORIÐ 173

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.