Vorið - 01.12.1968, Blaðsíða 29

Vorið - 01.12.1968, Blaðsíða 29
GOÐURSNJOR EFTIR HJÖRT HJÁLMARSSON Persónur: Fógetinn. Keli og Valdi, lijáleigu- bœndur. Pétur, stórbóndi. Oli, sonur Péturs. I. ÞÁTTUR. (Svið: Skrifstofa Fógetans.) FÓGETI: (Situr á skrifstofu sinni og krotar á blacf.) Látum okkur sjá. Hvað hefur maður önglað saman í dag? Palli gamli í Brekkubæ, 30 kr. Mangi á Nöfinni, 25 kr. Láki í Rófu- bæ, 40 kr. Ójá, allt og sumt er það. Það er ekkert af þessum ræflum að hafa. (Barið.) Kom inn. KELI: (Inn.) Yðar almektugheit vild- uð finna mig. FÓGETI: Já, ég þurfti að tala við þig um alvarlegt mál, Keli. (Fram.) Hver skollinn var það nú, sem ég ætlaði að klekkja á karlinum með. Jæja, maður verður að finna eitl- hvað. KELI: En yðar almegtugheit, ég get fullvissað þér og yður um að ég hef ekkert brotið af mér þessa dagana FÓGETI: (Byrstur.) Þegiðu Keli, ég er að hugsa. KELI: Já, já. Ég skal steinþegja. FÓGETI: (Rýkur upp.) Hvað er þetta, dóninn þinn. Tekurðu ekki ofan, þegar þú gengur fram fyrir yfir- valdið? KELI: (Rífur af sér húfuna og vöðlar henni saman milli handanna.) Ég bið auðmj úklega afsökunar. FÓGETI: (Fram.) Þarna kom það. (Við Kela.) Veiztu Keli, hvað á því ])ví segist að sýna yfirvöldunum slika óvirðingu? KELI: Nei, yðar almegtugheit. FÓGETI: Ég gæti látið setja þig í margra ára tugthús. En af góðsemi minni ætla ég að láta þig sleppa með 100 kr. sekt. KELI: En yðar almegtugheit, ég á ekki nema 10 krónur. FÓGETI: Bull og vitleysa. Annars er það verst fyrir þig. Þá er það tugt- húsið. KELI: (Dregur upp budduna, hvolfir úr henni.) Þetta er allt sem ég á og þá hef ég ekki einu sinni aura eftir lil að kaupa í matinn. FÓGETI: Jæja, kannski ég láti þig sleppa með þetta, en þá máttu eng- um segja frá því, að ég hafi verið svona mildur við þig. Og út með þig svo. VORIÐ 171

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.