Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.06.1997, Blaðsíða 27

Bjarmi - 01.06.1997, Blaðsíða 27
Birna Jónsdóttir og Guðlaugur Gíslason skrifa frá ráðstefnu kristniboðanna í Eþíópiu. Eftirfarandi pistill er að mestu endur- sögn á bréfi þeirra hjóna. Ef fram vindur sem horfir munu engir íslenskir kristniboðar verða i Eþíópíu frá miðju ári 1998. „Við hér úti viljum gera það sem í okkar valdi stendur til að efla áhuga á kristniboði. Hafi kristni- boðsvinir hugmyndir um þetta vildum við gjaman fá að heyra um það.“ Þetta áhyggjuefni var til umræðu hjá íslensku kristniboðunum í Eþíópíu á ráðstefnu kristniboðanna, segir meðal annars í bréfi hjónanna Birnu Jónsdóttur og Guðlaugs Gíslasonar sem starfa sem kristniboðar í S-Eþíópíu. Árleg ráðstefna kristniboðanna í Eþíópíu var haldin á sumardvalarstað kristniboðsins í Awasa fyrir nokkru. Slíkar samverur eru andleg mót kristni- boðanna sem búa dreift um landið. Þarna hittast þeir, fá langþráða upp- byggingu í trúnni og sálusorgun og ræða saman um kristniboðsstarfið. Þetta er jafnframt aðalfundur kristni- boðanna. 80 fullorðnir og 40 börn dvöldust saman þessa daga. Vegna fjöldans urðu margir að búa i tjöldum. Þetta voru sannkallaðir hátiðisdagar. Yfirskrift ráðstefnunnar var Veríð í mér og var Norðmaðurinn Tormod Engelsviken1 fenginn til að sjá um biblíulestra á hverjum degi út frá líking- unni um vínviðinn í 15. kafla Jóhannesarguðspjalls. Á sameiginlegum fundum voru gefnar skýrslur um hinar mörgu greinar kristniboðsstarfsins í Eþíópíu, sem sumar eru 40 ára gamlar en aðrar 1 til 2 ára. Var m.a. rætt um fyrirhugað starf á meðal Sómalíumanna við landamæri Eþíópiu og Sómalíu. Skoðanir voru skiptar um hvort staðsetja ætti kristni- boða þar eða láta starfið vaxa smátt og smátt út frá þeim stöðum sem liggja næst þessu svæði. Ef siðari kosturinn yrði valinn myndi það fólk sem kæmist til trúar strax tengjast söfnuðum sem yrðu þeim bakhjarl, en flestir íbúanna við landamærin eru múhameðstrúar og yrði hafnað af sínu fólki ef þeir snerust til kristni. Töluverður tími fór í umræður um langa og ítarlega skýrslu um mat á starfi kristniboðsins í Eþíópíu. (Segið svo að kristniboðar vinni ekki faglega!) Þar kom margt fram. Meðal annars var lagt til að samskipti á milli yfirstjórnar kristniboðsins og yfirstjómar lúthersku kirkjunnar yrðu nánari. Forseti suður-synódunnar talaði á lokasamvem ráðstefnunnar. í máli sínu vék hann sérstaklega að yfirstandandi skiptingu synódunnar í þrennt, þ.e. tvær synódur með aðalskrifstofum í Awasa og Hagre Mariam og Bale sem verkefnissvæði með aðalskrifstofu í Dodolla. Þetta hefur ekki gengið átaka- laust íyrir sig. Ráðstefnunni lauk með söng ung- lingakórsins sem fjallaði um þann eld sem Jesús hefur kveikt í hjörtum læri- sveina sinna. Hann býður okkur að tendra hann úti um allan heim, allt til endimarka jarðarinnar. Á miðju sviðinu í salnum stóð trékross. Lítið kerti logaði við hann. Á meðan söngurinn var sung- inn tendruðu stúlkurnar eld á nýjum kertum af litla kertinu og dreifðu um salinn. Þetta var einföld en táknræn at- höfn. „Ljósið er sótt til krossins. Þaðan skal því dreift til endimarka jarðarinnar. ... Jesús hefur falið okkur að vinna þetta verk. Ert þú sem lest þessi orð virkur þátttakandi i þessu verkefni?" Kristniboðarnir í Eþíópíu em slegnir þungum harmi vegna morðsins á dönsku hjúkrunarkonunni Janne Pedersen sem var myrt á föstudaginn langa. Skömmu síðar sprungu þrjár sprengjur í höfuðborginni, Addis Abeba. í kjölfar þeirra hefur verið hringt til sænsks dagblaðs þar sem Svíum og Norðmönnum í Addis Abeba er hótað líf- láti. „Ekki er laust við að við séum óró- leg vegna alls þessa. Við þörfnumst fýrirbænar ykkar," segir í lok bréfsins. 1 Tormod Engelsviken er prófessor í kristniboösfræöum viö Safnaðar- háskólann í Osló og fyrrverandi kristni- boöi í Eþíópíu. Hann hefur verið einn af leiðtogum OASE-hreyfingarinnar í Noregi um árabil og er einn af leiðtogum Lausanne-hreyfingarinnar þar í landi. Verða engir íslenskir kristniboðar í Eþíópíu á næsta ári? Glöð börn í Addis Abeba, höfuðborg Eþíópíu.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.