Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.07.1969, Qupperneq 42

Æskan - 01.07.1969, Qupperneq 42
Iþróttir Sigurður Helgason: knattleikur SKOT: Við framkvæmd skota reyn- ------------- ir fyrst og fremst á hend- urnar og verður þá að nota þær rétt. Við skot á knötturinn að hvfla á lófanum, fing- urnir spenntir á miðjum knettinum. Byrjið með knöttinn í axlarhæð og styðjið við knöttinn með þeirri hendi, sem þið ekki notið við skotið. Síðan lyftið þið knettinum og beygið úlnliðinn, og um leið og hand- leggurinn hefur náð þeirri hæð, sem ykkur finnst þægilegust við skotið, þá notið þið úlnliðinn til að Ijúka skotinu, og einnig til þess að fullvissa ykkur um að stefnan sé rétt. Þið verðið að hafa tilfinningu fyrir sérhverju skoti. Það finnið þið með fingrun- um. Sérhvert skot þarf að vera samæft, með handlegg, úlnlið og fingrum. Sérstak- lega þarf úlnliðurinn að vera liðlegur. Þið getið aldrei skotið vel með stífum úlnlið, og eins ef knötturinn hvílir ekki á fingur- gómunum. Algeng mistök hjá ungum drengjum er að láta aðeins handleggina varpa knettinum, og er þá þvl fyrst um að kenna að þeir valda ekki knettinum. En þá er betra að byrja rétt frá upphafi, og muna að nota úlnliðinn, I enda hvers skots, til að láta knöttinn halda stefnunni og eins til að kötturinn fái mjúkan snúning. Við körfu- skot veröið þið umfram allt að einbeita ykk- ur að körfunni. Veljið ákveðinn bekk á bakfjölunum (innan auðkennds ferhyrnings) og venjið ykkur alltaf á að nota bakfjalirn- ar við skot. Þið verðið að varast að skjóta knettinum flatt, þ. e. a. s. byrjið strax á að æfa ykkur í að fá góðan boga í skotin, þá er betri möguleiki á að knötturinn fari í körfuna. En reynið samt ekki að hafa bog- an of háan, þannig að þið eigið af þeim sökum erfitt með framkvæmd skotsins. Ef þið byrjið á þessari undirstöðu: halda knett- inum rétt með fingurgómunum, nota úlnlið- inn vel, fá góðan snúning á knöttinn og góðan boga á skotið, þá lætur árangur ekki á sér standa. Reynið ekki að skjóta beint í körfuna, bakfjalirnar eru öruggari. Það er ekki fyrr en þið hafið fengið góða tilfinningu fyrir körfuskoti að þið getið verið örugg með skot beint í körfuna. Með snúning á knettinum vinnst þetta: Skot sem lendir á körfuhringnum, gæti snúið honum niður í körfuna. Æfið skotin þar til þið hafið náð góðum og öruggum snúning. En leggið samt ekki of mikla áherzlu á snúninginn, hann má heldur ekki vera of mikill, þá getur knötturinn farið að snúa sig upp úr körf- unni í stað hins gagnstæða. Hæfilegur snúningur í skoti er t. d. tveir snúningar é skoti frá vltalínu. Þessar tegundir skota eru algengastar: Lagskot, sveifluskot, stökk- skot og brjóstskot. Algengast þessarra skota er lagskotið, og þó það virðist í fyrstu vera auðvelt, er ekki síður nauðsynlegt að æfa það jafnvel og önnur skot. Lagskotið er framkvæmmt undir körfunni, og þá er nauðsynlegt að nota bakfjalirnar. Við sveifiuskot er knöttur- inn tekinn út á aðra hlið og höndin sett undir knöttinn, síðan er tekið eitt skref, stokkið upp og hendinni með knettinum sveiflað yfir höfuðið. Við stökkskot er nauð- synlegt að samræma stökkið sjálft og skot- ið. Knettinum er ekki varpað fyrr en þið hafið náð mestri hæð, hvorki á uppleið né niður, heldur á þeim punkti sem þið eruð í kyrrstöðu í loftinu. Þá hafið þið bezt vald á knettinum. Brjóstskot eru algengust við framkvæmd vftaskota. Gunnar Gunnarsson.

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.