Æskan

Árgangur

Æskan - 01.11.1981, Síða 40

Æskan - 01.11.1981, Síða 40
í flestum íbúðum er svo mikið af eldfimum efnum í innréttingu og hús- búnaði, að eldur getur magnast mjög ört. Það er því nauðsynlegt að eiga trygga útgönguleið. Álítið ekki að þið hafið langan umhugsunarfrest. Þið megið, eða réttara sagt verðið að vera undir það búin að til eldsvoða komi. Gerið því áætlun um undankomu og æfiö framkvæmd hennar með allri fjölskyldunni. Hér skal aöeins drepið á hvernig slík æfing fer fram. Hugsum okkur að einhver vakni og finni reykjarlykt. Hvaó á hann að taka til bragðs? Flýta sér á fætur og opna dyrnar og gá hvað sé um að vera? Þetta er kannski það síðasta sem hann gerir í þessu lífi. Útgönguleiðin erorðin að dauðagildru. Þegar dyrnar voru opnaðar streymdi lífshættuleg- ur, heitur reykur inn frá ganginum eða ef til vill átti sér stað gríðarleg reyk- sprenging vegna þess að eldurinn fékk nægilegt súrefni. Við eldsvoða leitar reykur og heitar lofttegundir upp. Jafnvel við smábruna, einkum ef plastefni brenna, getur komið mikill reykur. Verið því varkár áður en þið farið fram á gang á efri hæð eða þeg- ar opnaðar eru dyr frá svefnherbergi, ef þið finnið reykjarlykt. Súrefnið sem reykloftiö fær þegar dyrnar opnast getur nægt til reyksprengingar. Við eldsvoða verða flest börn ótta- slegin. Þau leita því á stað sem þau telja öruggan. Oft fela þau sig í klæðaskáp, undir rúmi eða inni á baðherbergi. Gerið því áætlun um hvernig þið ætlið að yfirgefa húsið og leita í herbergjunum, ef eldur verður laus. Ef rétt er farið að, opnar fólk ekki dyrnar fyrr en það hefur athugað hvort það sé óhætt. Sé það ekki óhætt þá þarf að nota neyðarútgönguleið herbergisins. Skal nú vikið að því hvernig björgunaráætlun heimilisins er gerð. Björgunaráætlun Kallið saman alla fjölskylduna og reynið að útskýra samkvæmt þessum upplýsingum hvers vegna björgunar- áætlun er nauðsynleg. Munið að börnin eiga líka að taka þátt í þessu. Útskýrið hvers vegna maður á að hafa svefnherbergisdyr lokaðar. Góð hurð getur haldið eldinum í skefjum nægi- lega lengi til að allir komist út um neyðarútgang. Ef litlu börnin eiga bágt með að sofna, þegar dyr eru lokaðar, látið þá ekki undir höfuð leggjast að loka hjá þeim, þegar þið takið sjálf á ykkur náðir. Æfið viðvör- unarmerki heimilisins. Það á að gilda án þess að nokkur þurfi að fara út úr herbergi sínu. Gangurinn gæti verið ófær vegna reyks. Kaupið ykkur leik- fangaflautur eða lúðra, bankið á ofna eða finnið upp öruggt ráð sem vekur alla, jafnvel þá sem sofa fastast. Besta viðvörunin er sjálfvirkt viðvörunar- kerfi (sjá síðar). Gerið ykkur grein fyrir að sekúndur skipta máli þegar við- vörun er gefin. Það er ekki tími til að hugsa um björgun verðmæta. Reynið bara að vera róleg og fara eftir björg- unaráætluninni. Hér kemur eitt dæmi um svefndeild í íbúð. Smáatriði skipta ekki höfuð- máli. Hins vegar á að merkja hvern svefnstað með nafni svo að skýrt komi fram hvar hver og einn sefur. Teiknið dyr, glugga, stiga og annað sem máli skiptir. Gluggar, svalir, bílskúr eða annað sem hægt er að nota sem neyðarútgang er merkt. Farið saman gegnum hvert svefnherbergi og veljið glugga sem best hentar til undan- komu. Athugið hvort hægt sé að nota gluggana til undankomu. Hafið stiga fyrir utan eða kaðal frá glugganum, sé það nauðsynlegt. Til eru stigar úr áli sem geyma má inni en hægt er að hengja á gluggakarminn. Merkið útgönguleiðirnar á teikn- inguna með svörtum örvum en neyð- arútgangana með rauðum örvum. Samkvæmt byggingarsamþykkt eiga að vera tvær leiðir út úr hverju herbergi sem fólk býr í. Ef þið eigið smábörn, sem ekki gætu sjálf farið út um glugga eða úr herbergi sínu, þarf að gera öðruvísi áætlun. Stundum nægir að láta minni börnin skipta um herbergi við eldri systkini og ef til vill má útbúa dyr milli hjónaherbergis og barnaherbergis. Ákveðið stað til að hittast á utan við húsiö til að ganga úr skugga um að allir hafi komist út. Að þeirri könnun lokinni skiptir fjölskyldan með sér verkum og ákveðið er hver á að koma boðum til ndi strax í dag 40
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.