Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1989, Síða 18

Æskan - 01.10.1989, Síða 18
POPPHÓLFIÐ. UB40 Kæro Popphólf! Mig longar til oð vito eitthvoð um UB40. ég veit oð einn í hljómsveitinni heitir fistro eins og hundurinn minn. Skrúno Svorfdælo Svar: Hljómsveitin UB40 var stofnuð 1978 af atvinnulausum Englending- um. Nafnið er sótt til heitis á skrán- ingareyðublaði atvinnulausra Breta. Eftir nokkrar mannabreytingar var UB40 orðin 8 manna reggihljóm- sveit, skipuð f)órum hörundsljósum unglingum og fjórum misdökkum. Fyrsta smáskífa UB40, „King“/ „Food For Thought,“ var gefin út af óháðu fjárvana útgáfufyrirtæki 1980, Graduate Records. Platan varð fyrsta „óháða“ platan sem komst inn á vinsældalistann „5 efstu“ í Bretlandi, lista sem að öllu jöfnu er matreiddur af fáum risa- plömútgáfum (nokkurs konar ein- okunarfyrirtækjum sem binda skemmtikrafta sína með samningum langt fram í tímann og stýra mark- aðnum í krafti stærðar sinnar. Svo- kölluð „óháð“ plötufyrirtæki eru andstæða plöturisanna. Óháðu fyrir- tækin gera ýmist enga samninga við skemmtikrafta sína eða þá aðeins lauslega samninga til skamms tíma. Þau hafa ekki roð við lokuðum dreifikerfum plöturisanna en í stað- inn halda skemmtikraftar óháðu fyr- irtækjanna fullu sjálfstæði, listrænu jafnt sem fjárhagslegu). Graduate Records gaf út tvær smáskífur til viðbótar með UB40 og eina breiðskífu, „Signing Off‘. 18 Æskan Plöturnar seldust svo vel að UB40 varð vinsælasta reggíhljómsveit heims og hefur haldið þeim titli síð- an. f ársbyrjun 1981 stofnuðu liðs- menn UB40 eigið óháð plötufyrir- tæki, DEP Intemational. Síðan hafa þeir sjálfir gefið út plötur sinar. Þriðja breiðskífa UB40, „Presents Arms in Dub“, var sérstæð fyrir þá sök að hljóðritun annarrar breiðskíf- unnar, „Presents Arms“, var notuð í hljóðblöndunarleik að hætti jama- ískra (dub). Á sjöundu breiðskífunni, „La- bour Of Love“, brugðu UB40 á annan leik. í það skiptið fluttu þeir í fyrsta sinn lög eftir aðra, s.s. Bob Marley, Jimmy Cliff o.fl. Þar á meðal var gamall ádeilusöngur á rauðvínsdrykkju, „Red Red Wine“. Það lag sat mánuðum saman í efstu sætum vinsældalista um allan heim á árunum 1983-84. Lagið opnaði UB40 m.a. leið inn á bandaríska markaðinn. 1985 léku UB40 líkan leik. Þá fengu þeir söngkonu Pretenders, Chrissie Hynde (þáverandi eigin- konu Jims Kerrs, söngvara Simple Minds), til að syngja með sér tvítugt bandarískt dægurlag, „I Got You Babe“. Árangurinn varð enn betri en í „Red Red Wine“ tilfellinu. Þó að endurflutningur á gömlum draugum sé auðveld leið til vinsælda þá h'ta liðsmenn UB40 á umrædd tvö dæmi sem sprell. í fyrra tilfell- inu langaði þá til að kynna aðdáend- um sínum þau reggílög sem UB40 töldu allra laga best. í seinna dæm- inu langaði þá til að fá staðfest að endurflutningur á gömlu dægurlagi væri allt sem þyrfti til að ná efsta sæti breska vinsældalistans og til að komast inn á bandaríska vinsælda- hstann. Að auki töldu þeir UB40- menn að tími væri kominn til að víkka út reggímúsík sína með kven- mannsrödd. En þeir þurftu trúverð- uga ástæðu til að bjóða skyndilega upp á söngkonu. Lausnina fundu þeir í þessu gamla dægurlagi sem áður var sunginn af karh og konu, Sonny & Cher. Á öðrum plötum sínum heldur UB40 oktettinn sig við frumsamda reggísöngva. Liðsmenn UB40 eru: Söngvarinn Ali Campbell (fæddur 15. febrúar 1959), gítarleikarinn Robin Campbell (24. des. 1954), saxófónblásarinn Brian Travers (7. febrúar 1959), bassaleikarinn Earl Falconer (23. janúar 1959), trym- billinn Jim Brown (8. maí 1956), trompetblásarinn Astro (24. júní 1957), hljómborðsleikarinn Michael Virtue (19. janúar 1957) og bongó- trommarinn Norman Hassan (26. janúar 1957). Póstáritun UB40 er: UB40, P.O.Box 117, Birmingham B5 5RD, England. Þungarokk Kæra Popphólf! Mig langar til að biðja um veggmynd af Cuns n' Roses og Metallica. Af hverju er svona lítið fjallað um þungarokk í Æskunni? Sigurður Már Halldórsson þungarokkari. Metallica Svar: Það gildir almenn regla um val a veggmyndum: Því fleiri sem bið)a um veggmynd af einhverjum u teknum aðilum þeim mun meiri uk ur eru á því að orðið verði við þeirn bón. Þungarokk hefur fengið töluvert rými í poppþættinum. Popphólfi hefur jafnan sinnt spumingum uffl þungarokk. Svo verður áfram. Hér koma nokkrir punktar ur sögu þungarokksins: 1. Hljómsveitin Kinks frá Bre1 landi fer að nota síendurtekna gl1 ar„frasa“ sem ráðandi undirleik 1 takt-blús (rythm n’blues) lögumsin um 1964-65. Fyrsta lagið ^ seffl byggði á þessum gítar„frasa „You really got me“. Það lag er c ^ eiginlegt þungarokkslag heldur vis að því sem síðar varð þungarok Hendrix. 2. Bandaríski blökkusöngva^ ; gítarleikarinn Jimi Hendnx • þungarokkinu í fullfrage ^ angarokksform 1966-67- 1 átar við hina einkennandisien ^j. knugítarfrasa“lagðijinu“an/yf. ma ofurrafmagnaðan (D)ae 0g keyrðan) gítarhljómblæ ( °ss . yllingslegan vælandi gltíircl „t. tyrðan áfram af drynjan ^ sína út frá blúsforminu. 3. Bresku Bítlarnir ákvöðai að villtasta lag allra tíma 1 "pjelt- kom á markað 1968 og heiur’’■£). er Skelter“. Það er ekki aðeffl

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.