Æskan

Árgangur

Æskan - 01.06.1994, Blaðsíða 5

Æskan - 01.06.1994, Blaðsíða 5
þurfa líka að taka bekkinn að nýju ef þeir standa sig ekki. Nokkrir þurftu að verða eftir í mínum bekk. Maður sér strax hverjir þaó verða af því að prófin eru í hverri viku.“ - Hvernig er skólabyggingin? „Það er ágætt hús þó að það sé ekki eins fínt og skólar hér. í hverri skólastofu er kynt með kabyssu: spýtur brenndar í ofni.“ FJÖRUGIR OG GLAÐVÆRIR KRAKKAR - Hefur þú kynnst mörgum krökkum? „Já, já. Besta vinkona mín heitir Estrella. Við erum oft saman. Ég kynntist henni í einkaskólanum en við erum ekki í sama bekk. Pabbi hennar vinnur við laxeldi á vegum Friosur-fyrirtækisins.11 - Hvað gerið þið helst í tóm- stundum? „Við leikum okkur í körfubolta úti á stétt. Ég æfi líka körfuknattleik með félagi. Svo spjöllum við sam- an og hlustum á útvarp eða snældur, mest spænska rokktón- list en dálítið á enska.“ - Horfið þið mikið á sjónvarp? „Dálítið. í því eru til dæmis ýmsir myndaþættir fyrir krakka. Það eru ekki textar með enskum myndum eins og hér heldur spænskt tal.“ - Hvernig líkar þér vió síleska krakka? „Vel. Mér finnst þeir jafnvel enn þá skemmtilegri en krakkar hér. Þeir eru mjög fjörugir og glaðvær- ir.“ - Eru krakkar úti lengi fram eftir kvöldi? „Nei, þar verður fljótt dimmt allt árið. Myrkrið er skollið á klukkan sjö þó að sumar sé. Það er óhætt að vera úti eftir það innan giröing- arinnar þar sem vió eigum heima. Þar eru hús yfirstjórnenda fyrirtæk- isins sem pabbi vinnur hjá. En það gæti verið varasamt að vera lengi úti í Aisen.“ - Krakkar í Síle vita líklega ekki mikið um ísland ... „Nei, þeir vita ekki einu sinni hvar á landakortinu það er! Þeir Rannveig ellefu ára 11. mai 1994. Systkinin og félagar afmælisbarnsins. Estrella er fimmta frá vinstri. - Fannst þér ekki einkennilegt að skrifa „skólabækurnar" sjálf? „Þetta var allt dálítið skrýtið fyrst. Þá var ég líka oft of sein að skrifa eftir kennurum en núna er þetta allt í lagi.“ - Lesið þið mikið heima fyrir skólann? „Nei. Eftir aó tímum lýkur fara flestir í einkaskóla. Þar vinnum við heimaverkefni og fáum aðstoó við þau ef við þurfum. Þar er líka kennd enska og leiklist." - Hefur þér ekki reynst erfitt að fylgjast með og taka próf? „Nei, mér hefur gengið rosalega vel. Ég fæ oftast 6,9 eða 6,7. Hæst er gefið 7,0. Ég er þriðja best í bekknum. En ég hef ekki fengið nógu háar einkunnir í spænsku. Mér finnst kennarinn í henni dálítið leiðinlegur. Hann er ekki tilbúinn til að hjálpa manni.“ - Eru krakkarnir áhugasamir við námiö? „Já, flestir stunda það vel. Þeir Með öðrum leikmönnum körfuboltaliðsins og þjálfara þess. Æ S K A N S
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.