Æskan - 01.06.1994, Blaðsíða 46
ADDÁENDUM SVARAÐ/ í MÖRGUM MYNDUM
PÁLL ÓSKAR HJÁLMTÝSSON SÖNCVARI
SÖNG LÖG MEÐ HÁRRÉTTUM
TEXTUM TVEGGJA ÁRA!
Hvar og hvenær ertu fæddur?
Hvar ólstu upp?
Ég fæddist í Reykjavík 16. mars
1970 og ólst upp á Sólvallagötu í
Vesturbænum alveg þangað til ég
varð 19 ára. Þá fyrst fór ég að heim-
an.
Varstu ungur þegar þú fórst að
læra lög og syngja? Söngstu oft
fyrir fólk?
Á Sólvallagötunni var mjög margt
um manninn því að ég er yngstur af
sjö systkinum! Við erum öll lagviss
og vel það - þó að aðeins tvö okkar
hafi kosið að starfa við tónlist, ég og
Diddú (Sigrún). Ég man ekki eftir því
sjálfur en ég hef heyrt upptöku af
mér tveggja ára að syngja lög með
hárréttum textum. Það var mjög vel
gert! Auðvitað notaði mamma tæki-
færið og lét mig troða upp fyrir kon-
urnar í saumaklúbbnum hjá sér og í
afmælum.
Ég hef sem sé verið skemmti-
kraftur frá því að ég man eftir mér.
Er margt tónlistarfólk í ætt
þinni?
Ég hef heyrt af því að afar mínir
og ömmur í bæði föður- og móður-
ætt hafi verið músíkölsk þó að ég
geti ekki talið upp nein einstök
dæmi.
Leikur þú á hljóðfæri? Hefur þú
lært hljóðfæraleik eða söng?
Ég spila ekki á neitt hljóðfæri, hef
aldrei farið í söngtíma á ævinni og
verð að stafa mig fram úr nótum.
Það hefur samt ekki hindrað mig í að
verða einn af þeim tónlistarmönnum
á landinu sem mest hafa að gera.
Allt er hægt ef viljinn er með.
Hvernig tónlist þykir þér
skemmtilegust? Hvaða tónskáld
dáir þú mest?
Ég geri ekki upp á milli tónlistar-
stefna því að það er rangt. Mikið
4 6 Æ S K A N
svakalega hlýtur því fólki að líða
skringilega sem hlustar bara á eina
tegund hljómlistar og metur ekkert
annað. En ég eignaóist þó eftirlætis-
tónskáld þegar ég var 17 ára og
hann heitir Burt Bacharach.
Hvenær komstu fyrst opinber-
lega fram? Var það sem söngvari
eða leikari?
Ég tróð upp í fyrsta skipti opin-
berlega (þ.e. fyrir framan hóp af fólki
sem ég þekkti ekki neitt) þegar ég
var í sjö ára bekk og söng einsöng
með barnakór Ragnhildar Gísladótt-
ur, lagið „Brown Girl in The Ring“.
Með hvaða hljómsveitum hefur
þú sungið?
Ég var í Jasshljómsveit ásamt
Móeiði Júníusdóttur 1990-1991 og
síðan með Milljónamæringunum
eins og flestir vita. Annars hef ég
bara unnið einn.
Hver eru helstu leikverk/söng-
leikir sem þú hefur komið fram í?
Ég var í óteljandi skólaleikritum
sem krakki en fyrsta aðalhlutverkið
var í söngleiknum „Gúmmí-Tarsan“
sem Leikfélag Kópavogs sýndi
1982-1983.
Með Leikfélagi Menntaskólans við
Hamrahlíó lék ég í þessum stykkjum:
1986: Barry í Hólpin.
1987: Phileas Fogg í Umhverfis
jörðina á 80 dögum.
1988: Rökfræðinginn í Nashyrn-
ingunum.
1990: Frank-N-Furter í „Rocky
HOrr°r“- . . , .. . „0,
(Framhald a bls. 48)