Skírnir - 01.01.1935, Blaðsíða 160
158
Abessinía.
[Skírnir
Frakka og ítala loka landið úti frá hafinu. Frakkar hafa
fyrir nokkrum árum lagt járnbraut frá hafnarborg sinni,
Djibuti, til Addis Abeba, og er það eina járnbrautin, sem
til er í landinu, og vegna þess er utanríkisverzlun Abess-
iníu einkum í höndum Frakka og Djibuti hin raunveru-
lega hafnarborg ríkisins. Má nærri geta, hve óþægilegt
það er, að eiga mestalla utanríkisverzlunina undir náð
annarar þjóðar. Mikill hluti landsins er hálendi, hrikaleg
fjöll, sundurskorin af dölum og gljúfrum; það er því af-
arerfitt yfirferðar, og um regntímann, júní—ágúst,
stöðvast allar samgöngur milli margra héraða, því að árn-
ar verða þá ófærar, og ekki er um brýr að tala. Loftslag
er heitt og víða óheilnæmt, en á háfjöllunum er það svalt
og heilnæmt.
Suðausturhluti landsins er nálega óbyggilegur vegna
þurka, en vestan til og norðan rignir ákaflega á sumrum,
og þótt undarlegt sé, þar sem landið liggur í austurhorni
Afríku, þá eru það vestanvindarnir, sem færa því regnið.
Þeir koma frá Guineaflóa, þrungnir vatnsgufu og blása
yfir sléttur Súdans, en er þeir skella á fjöll Abessiníu,
gefa þeir frá sér vatnið.
Frá regnsvæðum Abessiníu streyma allar helztu
árnar, sem skapa sumarflóðin í Níl, og gera Egiptaland
byggilegt mennskum mönnum. Er þetta ein af ástæðun-
um til þess, að stórþjóðir Evrópu hafa farið að skipta
sér af landinu á síðari tímum. Þar sem regn er nægilegt,
er landið víðasthvar einkar frjósamt; þó eru sumir lægstu
og gróðursælustu hlutar þess lítt byggilegir vegna hita og
óhollustu loftslagsins. Mestur hluti fólksins býr í hálend-
inu, um 1500—3000 metra yfir sjávarmál.
Landbúnaður hefir jafnan verið aðalatvinnuvegur
þjóðarinnar, og er þó fremur gamaldags. Verkfæri bænd-
anna eru enn í dag eins og þau voru fyrir 2000 árum, en
svo er landið frjósamt, að sumstaðar er hægt að fá upp-
skeru þrisvar á ári. Mikill hluti landsins eru lén í hönd-
um aðalsmanna og stórbænda, sem mynda auðuga yfir'
stétt, en um tveir þriðju hlutar þjóðarinnar mega nánast