Sameining alþýðunnar - 01.05.1938, Blaðsíða 14

Sameining alþýðunnar - 01.05.1938, Blaðsíða 14
12 Sameming alþýðwnnar 2. Rauða ofbeldið er kúgun margfalds meiri hluta þjóðarinnar gegn örlitlum minni hluta (kapítalistunum). — Fas- istiska ofbeldið er kúgun örlítils minni hluta gegn margföldum meiri hluta. 3. Rauða ofbeldið er framikvæmd þeirrar mannréttindakennini' ar, að allir þegnar þjcðfélagsins eigi jafnan rétt tii lífsgæðanna og sömu heimtingu á að þroska hæfileika sína, andlega og líkam- lega, og það skapar þjóðskipulag, sem tryggir mönnum að fullu uppfylLingu þessara réttinda. — Fasistiska oibeldið ábyrgist fámennri eignastétt, sérréttindi á öllum yfirráðum auðs og menntunar, en útilokar jafnframt allan almenning frá verulegri hlutdeild í lífsgæðunum og svjptir hann þar með möguleikunum til að geta þroskað hæfileika sína, og það hefur myndað þjóðfélagsform, sem tryggir að fullu yfirdrottnun þessarar rangsleitni. 4. Rauða ofbeldið tekur upp vísinda- lega allsherjarskipulagningu á öllurn þjóðarbúskapnum, afnemur alla ein- staklingseign á auðlindum og atvinnu- tækjum, upprætir auðvaldsfyrírkomu- lagið, ryður gersamlega úr vegi öllu arð- ráni einstaklinga, á einstaklingum, gerir þjóðarauðinn að sameign allra þjóðfé- lagsþegnanna undir stjórn og yfirráðum alls hins vinnandi fólks. — Fasistiska ofbeldið tekur ekki upp neina vísinda- lega allsherjarskipulagningu á þjcðar- búskapnum. * — Með samvizkuleysi tryggir það nokkrum einstaklingum hin fullkoimnustu yfirráð á auðlindun- um og atvinnutækjunum, styrkir þannig í sessi auðvaldsskipulagið, eflir kúgun þess og arðrán á öllum, vinnandi stétt- unii og ábyrgist nokkrum auðvaldsfor- kólfum eign og yfirráð yfir svo að segja öllum þjóðarauðnum, en allur fjöldinn á ekkert og fær enga hlutdeild í með- ferð auðæfanna. 5. Rauða ofbeldið veitir þeim, sem þaó hefur kúgað, fullkomlega íömu réttindi og öðrum þegnum, þjóðfélagsins, jafn- skjótt og þeir hafa gengið á hönd sam- virka þjóðskipulaginu. — Fasistiska of- beldið veit:r h'numi kúguðu aldrei neitt jafnrétti við kúgarana. 6. Rauða ofbeldið veitir konum að öllu leyti sömu réttindi, ,sömu launakjör og sömiu aðstöðu til menntunar og karl- mcnnum. — Fas’stiska ofbeldið sviptir kcnur að miklu leyti borgaralegumi rétt- indum, lí.tur á þær sem. óæðri verur, sem eigi að vera undirgefnar vilja mannsins. 7. Rauða ofbeldið stuðlar að því að uppræta kynflokkahatur, miðar að al- þjóðlegu samstarfi og hefur að takmarki algerða útrýmingu styrjalda. — Fasist- iska ofbeldið blæs hvarvetna að kyn- flojkkafjandskap, vinnur alls staðar að þjcðfélagslegri einangrun og þjóðernis- hatri og boðar styrjaldir sem, siðferði- lega lyftistöng fyrir andlegt líf þjóð- anna (sbr. Spengler, Hitler, Mussolini og marga aðra kennifeður iortímingarafl- anna). 8. Rauða ofbeldið fordæmir alla land- ránapólitík., — Landránapólitíkin er einn of hyrningarsteinum fasistiirka of- beldisins, og það hikar ekki við að ræna löndum og eignumi annara þjóða og myrða íbúa landanna, hva,r og' hvenær sem það sér sér leik á borði. (Sbr. ráns- ferð Mussolinis á hendur Abessiníu, múgmorð og eignarán Itala og Pjóðverja á Spáni, kúgunina, á Austurríki og tor- tímingu fasistiisku villimennskunnar í Kína). 9. Rauða ofbeldið útrýmir öllum stéttamun og skapar þannig- fullkomið lýðræði, þar sem: enginn e'nstaklingur

x

Sameining alþýðunnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameining alþýðunnar
https://timarit.is/publication/397

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.