Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1906, Blaðsíða 141
C A N A D A
NORDVESTURLANDID.
REGLUR VIÐ LANDTÖKU.
Af öllum sectionum meö jafnri tölu, sem tilheyra sambands-
stjórninni, í Manitoba, Saskatchewan og Alberta, nema 8 og- 26, geta
fjölskylduhöfuð og karlmenn 18 ára gamlir eðaeldri, tekið sér 160
ekrur fyrir heimilisréttarland, það er að segja, sé landið ekki áður
tekið,eða sett til síðu af stjórninni til viðartekju eða einhvers annars.
INNRITUN.
Menn mega skrifa sig fyrir landinu á þeirri landskrifstofu, sem
næst liggur landinu, sem tekið er. Með leyfi innanríkisráðherrans,
eða innflutninga-umboðsmannsins í Winnipeg, geta menn gefið
öðrum umboð til þess að skrifa sig fyrir landi. Innritunargjáldið
er $10.
HEIMILISRÉTTAR-SKYLDUR.
Samkæmt núgildandi lögum verða landnemar að uppfylla heim-
ilisréttar-skyldur sínar á einhvern af þeim vegum, sero fram eru
teknir 1 eftirfylgjandi töluliðum, nefnilega:
[1] Að búa á landinu og yrkja það að mínsta kosti í sex már.uði á
hverju ári í þrjú ár.
[2] Ef faðir (eða móðir. ef faðirinn er látinn) einhverrar persónu,
sem hefir rétt fil að skrifa sig fyrir heimilisréttarlandi, býr á bújörð í
nágrenni við landið, sem þvílík persóna hefir skrifað sig fyrir sem
heimilisréttarlandi, þá getur persónan fullnægt fyrirmælum laganna,
að því er ábúð á landinu snertir áður en áfs'alsbréf er veitt tyrir því,
á þann hátt að hafa heimili hjá föður sínuro eða móður.
[3] Ef landnemi hefir fengið afsalsbréf fyrir fyrri heimilisréttar-
bújörð sinni, eða skirteini fyrir að afsalsbréfið verði gefið út, er sé
undirritað í samræmi vlð fyrirmæli Dominion landlaganna, og hefir
skrifað sig fyrir síðari heimilisréttar-búiörð, þá getur hann fullnægt
fyiirmælum laganna, að því er snertir ábúð á landinu (siðari heim-
ilisréttar-bújörðinni) áður en afsalsbréf sé gefið út, á þann hátt að