Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1906, Blaðsíða 69
ALMANAR 1906.
39
hefir náð í hjörtu manna má benda á, aö í sumar kvað far-
andsali einn hafa veriö á ferðinni fyrir félag þaö, er g-efur
út bækur hans, til að fá menn til að skrifa sig- fyrir
næstu sög-unni hans, sem líklega hefir enn ekki fæðst í
heila skáldsins; staðnæmdist hann hér í Winnipeg lítið
eitt og fekk ekki færri en þúsund áskrifendur; en þegar
þeir voru þúsund hér, hve margir skyldu þeir.þá verða,
þegar farið hefir verið um öll heimkynni enskumælandi
manna. Telst mönnum svo til, að bækur hans muni
keyptar af hálfri annarri miljón manna, og þýddar hafa
þær þegar verið- á fimm eða sex tungumál.
Meðan Ralph Connor dvaldi vestur í Klettafjöllum
kom.út á Englandi skáldsagan merkilega, ,,Robert Els-
mere“, eftir skáldkonuna gáfuöu,Mrs. Humphrey Ward.
Ritaði þá Gladstone gamli frægan ritdóm um bókina,
sem margfaldaði útbreiðslu hennar, þvert á móti því sem
til var ætlast. Því bókin er eitt hið gáfulegasta innlegg í
trúneitunaráttina, er birzt hefir'frá hendi nokkurs skálds
á seinni tímum. Ralph Connor las söguna og er sagt, að
hann hafi þá heitið því að rita skáldsögu til að hrekja öll
öfugmælin í Robert Elsmere. Enda ganga allar sögur
hans í þveröfuga átt, eins og búast mátti við. Og það er
fult eins mikil list í sögunum hans og sögum skáldkon-
unnar ensku, og traustari tökum mun hann hafa náð á
huga lesenda sinna en henni hefir nokkuru sinni tekist,
þrátt fyrir miklar gáfur og snild, svo að þegar alt er til
greina tekið er ekki ólíklegt, að áhrifin hans muni vega
fullkomlega upp á móti hennar, og öll miða þau til að
styðja hið bezta, sem til er í fari mannanna. Þessi vest-
urhluti Kanada, sem alveg nýlega er að komast inn í
mannkynssöguna, hefir því fullkomna ástæðu til að hrósa
happi yfir skáldinu sínu.
Það liggur þegar heilmikið verk eftir manninn. svo