Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1941, Síða 51
ALMANAK 1941
51
þessháttar. Þegar hann var 15 ára gerðist hann
sjómaður, og stundaði sjó eftir það, þar til hann
fór af landi burt. Systkini Stefáns voru Bjarni,
áður getið, Guðrún J. G. Thorleifsson í Yorkton,
Sask., nú í Winnipeg, og Sigvaldi bóndi í Borgar-
firði syðra. Tvö dóu í æsku.
Stefán Jónsson var ágætis skytta. Var um
hann sagt, að alt lægi dautt, sem hann miðaði á
(eftir hans eigin sögn).
Árið 1904 kvæntist hann Guðrúnu Guðmunds-
dóttir bónda á Miðgrund í Skagafirði, og konu
hans Sigurrósar Karólínu frá Neðri-Lækjardal,
ættaðri úr Húnavatnssýslu. Guðrún var fædd að
Úlfsstöðum í Blönduhlíð í Skagafirði, þ. 4. júlí
1876. Hún átti fjórar systur, eru tvær af þeim
enn á iífi. Þær eru Jóhanna Smith í Californíu og
Guðlaug Bjarnason að Concrete, N. D. Þær syst-
ur ólust upp í foreldra húsum og giftust þaðan.
Guðrún heima á íslandi, hinar eftir að fjölskyldan
kom vestur.
Stefán og Guðrún fluttu til Ameríku sama ár
og þau giftu sig, til N. Dak. Þar voru þau rúmt
ár. Þaðan fluttu þau til Newdale, Canada, námu
þar land og bjuggu þar 5 ár, þau stunduðu hveiti-
og griparækt. En hveitiræktin lánaðist ekki. Ár
eftir ár tók frostið það, samt segir Stefán, að fólki
hafi liðið vonum betur í því bygðarlagi, vegna
þess, að þar reiddi enginn sig eingöngu á hveitið,
fólkið hafði þar gripabú líka, svo þó hveitið brygð-
ist, brugðust gripirnir ekki, og það bjargaði. Bú
sitt og land seldu þau þó og fluttu til Wynyard
árið 1911. Þar voru þau í 14 ár. Fyrstu árin þar
vann Stefán við húsabyggingar, seinna við vöru-
flutning (express). Þar komu þau sér upp góðu
heimili. Þetta heimili seldu þau árið 1923, og
fluttu vestur á Kyrrahafsströnd. Eitt ár voru
þau í Blaine. Þaðan fluttu þau til Bellingham,