Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1941, Page 55
/
Jón Goodman
Eftir G. J. Oleson
Það er skylda hverrar kynslóðar að sýna hin-
um eldri þakklæti og ræktarsemi. Það er gæfu-
spor hverjum einstakling, hverri kynslóð og hverri
þjóð sem það gerir; þegar maðurinn hefir starfað
langa æfi, unnið sitt verk
trúlega og drengilega fyrir
sitt heimili og mannfélag, þá
á hann það skilið að honum
sá ekki kastað fyrir borð í
djúp gleymskunnar, heldur
sýnd sú viðurkenning, hlut-
tekning og nærgætni sem
hann á skilið fyrir vel unnið
lífsstarf. Rétthugsandi mað-
ur krefst ekki launa fyrir
skyldustörf lífsins, en útrétt
hönd meðbræðra eða systra
gleður gamalt fólk.
Það eru í hópi Islend-
inga hér í landi allmargir
enn, sem komu hér með fyrstu innflytjendum, og
hafa því átt samleið með þeim 65 ár og jafnvel
lengur. Einn af þeim mönnum er maðurinn sem
eg vil hér minnast, hinn valinkunni öldungur og
merkisbóndi í Argyle-bygð um 55 ára skeið, Jón
Goodman, sem nú er kominn á tíræðis aldur, en er
samt ennþá ern og fær á flestan sjó, á hann langa
og merkilega sögu að baki og kann hann frá