Alþýðublað Hafnarfjarðar - 01.12.1977, Blaðsíða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
ALÞÝÐUBLAÐ
HAFNARFJARÐAR
Útgefandi:
BLAÐSTJÓRN ALÞÝÐUB LAÐS
HAFNARFJARÐAR
Ábyrgðarmaður: HÖRÐUR ZÓPHANiASSON
Prentun: BLAÐAPRENT hf.
GLEÐILEG
JÓL!
FARSÆLT KOMANDI ÁR
ÞÖKKUM LÍÐANDI ÁR
Slysavarnafélagshúsift i Hafnarfirði á Hjallahrauni 9 er talandi dæmi félagshyggju og framtak.
Þar er hvert hand-
tak unnið, í sj’álf-
boðavinnu
Hinn 29. janúar næstkomandi
veröur merkisafmæli hjá Slysa-
varnafélagi Islands, þvi aö þá
verður liöin hálf öld frá þvi að það
hóf starfsemi sína. Ekki hyggst
félagiö veröa meö nein veislu- eöa
hátföahöld af þessu tilefni, en
þess I staö munu félagsdeildirnar
um land allt hafa ,,opiö hús”
þennan dag, þ.e.a.s. þau sem hús-
næöieiga, og gefst þá fúiki hvers
byggöarlags tækifæri til aö skoöa
og kynna sér húsakost og tækja-
búnaö félagsins á hverjum staö.
Þennan dag mun Hafnfiröing-
um gefast kostur á aö skoöa ný og
vegleg húsakynni Björgunar-
sveitarinnar Fiskakletts og
Slysavarnardeildarinnar Hraun-
prýöis aö Hjallahrauni 9. Þar er
nú á lokastigi gott og myndarlegt
félagsheimili þessara félagasam-
taka og er gert ráö fyrir aö vigsla
þess fari fram I janúarmániöi
næstkomandi.
Þetta húsnæöi er 240 fermetra
aö stærö og skiptist niður i funda-
herbergi, geymslu, eldhús og
Bókin um hana/ sem eld-
inn fól að kveldi og blés i
glæðurnar að morgni/
hana/ sem breytti uII í fat
og mjólk i mat/ sem ein-
att var fræðándi og upp-
alandi/ þerraði tárin og
bar smyrsl á sárin, hana
sem allan vanda leysti og
til allra góðra verka átti
ávallt stund i önn og erli
dagsins. Þetta er bók sem
nautn er að lesa og mann-
bætandi að kynnast/ bók,
sem hrærir strengi hjart-
ans, því hver þáttur þessarar bókar er tær og fagur óður
um móðurást. — Móðir mín — húsfreyjan er óskabók
unnustunnar, eiginkonunnar, móðurinnar, hún er óska-
bók allra kvenna.
I mmningo bennar sem elfiinn lói afl kvolrii oy blós í
ynoöomar oó moiyni. honnat, som b'oytu ull i lat ng
m/ólk i mat. sam emalt var Irwöendi og nópelandi
og allsn vanda loysti i önn og orh dagsin:,.- Hvvi þ.ittur
þessnmr bókar er taor og lagur óöur um móöurA&t.
SKUGGSiÁ
samkomusal, sem er 100 fer-
metra að stærð.
öll vinna við húsiö er sjálfboða-
vinna, hverteitt einasta handtak.
Greitt hefur verið fyrir efni i
þessa byggingu 4,9 milljónir
króna, en mörg fyrirtæki hafa
greitt fyrir byggingunni á ýmsan
hátt, t.d. með þvi að veita félög-
unum afslátt á ýmsu byggingar-
efni. Giskað er á að söluverðmæti
hússins sé 20 til 30 milljónirkróna
og má af þvi fá svo litla hugmynd
um hvers virði sjálfboöavinna og
önnur fyrirgreiðsla er oröin við
þessar byggingarframkvæmdir.
Þetta mun vera stærsta húsnæði
slysavarnafélags á öllu landinu,
sem komið hefur verið upp með
þessum hætti, þ.e. með sjálfboða-
vinnu einni saman.
Björgunarsveitin Fiskaklettur
erein af elstu deildum Slysavarn-
arfélagsins stofnuð 16. nóvember
1928.Hinn ll.febrúarl966 var svo
sveitin endurnýjuð og endurvakin
iþvi formi, sem hún starfar i dag.
Uröu þá umsvif sveitarinnar
meiri en nokkru sinni áður og all-
ur tækjabúnaður hennar aukinn
og endurbættur. Bæjarstjórn
Hafnarfjarðar samþykkti að
veita sveitinni þessa lóð hinn 20.
febrúar 1973. Leitaöi þá sveitin
eftir samstarfi við Hraunprýðis-
konurnar um að koma félögunum
upp föstum sameiginlegum
samastað, en mjög gott samstarf
hefur alltaf verið á milli þessara
aöila. Þær slógu tilog var þá ekki
aö sökum að spyrja um dugnaö
þeirra viö að afla fjár til bygging-
arinnar og aðra aðstoö við fram-
kvæmdirnar.
Hraunprýöiskonur byggöu sér
sjálfar litið hús i nágrenni við
Svendborgarhúsin 1952 og
geymdu þar tæki sin, en áður
höfðu þær algerlega verið á hrak-
hólum með geymslurými fyrir
þau og komnar upp á náð og
miskunn góöra manna 1 þeim efn-
um.
Slysavarnadeildin Hraunprýði,
sem er öllum Hafnfiröingum aö
góðu kunn, varstofnuö 17. desem-
ber 1930 og hefur starfaö óslitiö
siðan. Þær eru ekki ófáar krón-
urnar sem þær hafa safnað til
slysavarnamála á þessum árum
sem þær hafa starfað með
merkjasölu, kaffisölu og bösur-
um. Alltaf hafa þær látið 3/4
tekna sinna renna til Slysavarna-
félags tslands, til þess að það
væri þess betur megnugt að
styðja og styrkja fámennar og fá-
tækar slysavarnadeildir viös veg-
ar um landið til þess aö koma upp
björgunarskýlum og björgunar-
útbúnaði. Þannig hefur veriö
hægt að koma upp samfelldri ör-
yggiskeðju.björgunarskýla og
björgunarsveita allt umhverfis
landið ogþarfekki að fjölyrða um
þá öryggisþjónustu sem þetta
veitir. Hraunprýðiskonur hafa
þvi alltaf látið sér nægja 1/4 tekna
sinna til eigin þarfa og sýnir það
bæði mikla félagshyggju og ósér-
hlífni þeirra.
Formaður Fiskakletts er Einar
Sigurjónsson, formaður Hraun-
prýðiskvenna Hulda Sigurjóns-
dóttir, en Bjarni Björnsson er for-
maður björgunarsveitarinnar.
1 dag er björgunarsveitin
Fiskaklettur skipuð 18 mönnum.
Aðal tekjupóstur sveitarinnar i
nærfellt áratug hefur verið flug-
eldasala fyrir áramótin. Hafn-
firðingar hafa sett metnað sinn i
að kaupa sér flugelda hjá sveit-
inni enda alltafverið um góða
þjónustu þar að ræða. Jafnframt
hafa Hafnfiröingar vitaö að með
þessum kaupum eru þeir að
styðja góða og nauðsynlega starf-
semi. NU liggur mikið viö að flug-
eldasalan takist vel, til þess að
sveitin geti lokið félagsheimili
sinu i tæka tið. Hafnfirðingum
gefst gott tækifæri til að sýna
sveitinni að þeir kunni að meta
starf hennar og frábæran dugnað
við að koma sér upp samastað
fyrir sveitina með þvi að gera
flugeldakaup sin hjá sveitinni.
Flugeldasalan verður i húsa-
kynnum sveitarinnar við Hjalla-
hraun 9, sennilega i gömlu mjólk-
urbúðinni á Lækjargötu 20 og á
einhverjum þriðja staðnum, sem
ekki hefur verið ákveðinn ennþá.
Um leið og Alþýöublaö Hafnar-
fjarðar kemur á framfæri hjart-
anlegum þökkum til Hafnfirðinga
frá þeim Hraunprýðiskonum og
Fiskaklettsmönnum, fyrir góð og
ánægjuleg samskipti og stuöning
á liðnum árum, þá vill það minna
á, að fimmtudaginn 29. desember
er gert ráð fyrir mikilli og glæsi-
legri flugeldasýningu við slysa-
varnahúsið á Hjallahrauni 9 og á
hún að hefjast klukkan 20,30, ef
veður leyfir. Hafnfirskir foreldr-
ar ættu að muna eftir þessum
degi og tima og njóta þar ásamt
börnum sinum góörar og eftir-
minnilegrar kvöldstundar.