Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1955, Qupperneq 13

Kirkjuritið - 01.04.1955, Qupperneq 13
TYRKJARÁNIÐ OG GRÖF SÉRA JÓNS 155 inn var síðan hreinsaður. Steinninn er úr hörðu móbergi, og höfðu fjalir legið um hann, sem nú voru fúnaðar. Hann var brotinn um þvert í miðju, og úr honum fallið á öðrum end- anum. Steinninn er hvorki sjálfur veglegur né letrið á honum. Hann er 111 cm á lengd og 54 cm á breidd, þar sem hann er breiðastur. Á honum er þetta letur: Mitt holld hvíl ... Psalm. 1627, 8. Jon Þozsteso Occisvs 17. julii. Sálmur sá, sem vitnað er í, mun vera Davíðs sálmur 16, 9, samkvæmt Biblíu frá 1747. Occisus = veginn (drepinn), af latneska orðinu: occido. — Steinninn var fluttur til Reykja- víkur og er geymdur þar á fornminjasafninu. Árið 1927 voru 300 ár liðin frá þessum sorglega atburði hér, Tyrkjaráninu. Þessa atburðar var þá minnzt hér þannig sunnudaginn 17. júlí 1927: 1. Guðsþjónusta í Landakirkju. 2. Lagður blómsveigur á gröf séra Ólafs Egilssonar, sem er í gamla kirkjugarðinum hér. 3. Afhjúpaður minnisvarði, sem Eyjabúar höfðu reist á gröf séra Jóns píslarvotts í Kirkjubæ. ■— Fór athöfnin öll veglega fram og var mjög fjölsótt. Jes A. Gíslason.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.