Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1955, Side 28

Kirkjuritið - 01.04.1955, Side 28
170 KIRKJURITIÐ ef hún vill vera sjálfri sór trú og halda áfram að vera það, sem hún var í upphafi: trúarbrögöin um guösríkiö. Hvað guðs- ríkið raunverulega er, sést af þeim áhrifum, sem þessi hug- mynd hefir á líf þess, er trúir. Á hvern hátt guðsríkið kemur, skiptir minna máli í þessu sambandi, og er komið undir hug- myndum og heimsskoðunum hvers tíma. Takmarkið er aðal- atriðið, hinn siðlegi ávinningur. Meðan til er lifandi trú á guðs- ríkið, sem er í nánd fyrir þá, sem verðskulda það með breytni sinni, þá eigum við enn þá kjarnann í trú frumkristninnar. Ævisögur Jesú. Allt frá síðustu árum 18. aldar og langt fram á hina 19. öld komu út fjöldamargar ævisögur Jesú, sem leituðust við að sýna fram á, að kenningar Jesú um guðsríkið hefðu verið miklu andlegri en heimslitahugmyndir síðgyðingdómsins. Ein hin síðasta þessara bóka var: Das Wesen des Christentums eftir Harnack, sem kom út um aldamótin síðustu og hafði allmikil áhrif á trúarskoðanir íslenzkra fræðimanna allt fram á þenn- an dag. Jóhannes Weiss prófessor í Heidelberg hafði þó sýnt fram á það í bók sinni, Die Predigt Jesu von Reiche Gottes, sem út kom árið 1892, að ógerlegt væri að greina á milli hinna síð- gyðinglegu heimsslitahugmynda og Messíasarboðskapar Jesú, eins og frá honum er skýrt í Mattheusar og Markúsarguðspjalli. Albert Schweitzer tók upp þennan þráð og sýndi fram á það í tveimur ritum sínum: Das Messianitáts- und Lebensgeheimnis 1901 og Geschichte der Leben-Jesu-Forschung 1906, að Jesús hefði bæði lifað og hrærzt í þessu andrúmslofti heimsslita- hugmyndanna. Það er erfitt, segir Schweitzer, að verða að viðurkenna, að Jesús, sem var svo innblásinn af anda Guðs og hlýtur ávallt að vera í vitund vorri æðsti opinberandi trúarlegra og and- legra sanninda, að hann hafi ekki staðið að þessu leyti yfir sínum tíma í þekkingu, eins og vér þó hefðum vænzt. Lang- helzt hefðum vér viljað finna í boðskap Jesú hinzta sannleika trúarinnar í því formi, sem aldrei hefði þurft að haggast. En nú er staðreyndin þessi, að raunverulega aðhylltist hann heims- skoðun löngu liðins tíma, sem að vorri hyggju var á misskiln- ingi byggð og öldungis er óaðgengileg nútímamönnum. Hvernig

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.