Kirkjuritið - 01.06.1958, Blaðsíða 17

Kirkjuritið - 01.06.1958, Blaðsíða 17
KIRKJURITIÐ 255 Og jafnskjótt og þeir voru farnir út úr samkomuhúsinu, komu þeir í hús Símonar og Andrésar með Jakobi og Jóhannesi. Enn var ekki dagur kominn að kveldi. Enn átti hann eftir að vinna ný máttarverk fyrir aug- um sinna undrandi lærisveina. Myndirnar líða í hugann ein eftir aðra, allt til þess, er ég sé hann fyrir mér, þar sem hann ris árla löngu fyrir dögun og gengur út á óbyggðan stað til að biðjast fyrir. Hann var einhvers staðar hér uppi í ásunum, hinn ókenndi helgistaður hans, þar sem hann baðst fyrir, einn undir himni Guðs í ljóma risandi dags.-------- Fólkið er að fara. Hér er ekki lengur tóm til að sitja í leiðslu og láta hugann reika um fortíðina. Það gripur mig djúp tregakennd við það að þurfa að yfirgefa þenna stað. Áður en fólkið fer, kallar Olav Duesund það saman og það syngur sálm. Á eftir hópumst við Islendingamir saman inni við gafl synagógunnar og syngjum sálminn: Víst ert þú Jesú kóngur klár. Hann skyldi vera kveðja vor og játning um leið og vér fórum frá Kapemaum. Sigur'Sur Einarsson. Mannlega hluti verða menn að þekkja til að geta elskað þá. Guðlega hluti verða menn að elska til að geta þekkt þá. — Pascal. Menn geta ekki keypt frelsið of dýrt. En því miður er það oft selt fyrir sama og ekkert. — Hebbel. Kirkjunni hefir svo oft virzt vera voði húinn, að það er engin ástæða til að óttast um hana núna. — Newman. * Sögnin segir, að þegar Alexander mikli lagði upp i herför gegn Persa- konungi, hafi hann skipt næstum öllu, sem hann átti, meðal vina sinna. Einhverjir þeirra spurðu liann: „Hverju heldur þú sjálfur, konungur?" »Voninni,“ var svarið. * ),Ég hóf starf mitt (til bjargar bágstöddum í Stokkhólmi) með tómum höndum, en örlátum — og rikum föður á himnum.“ — Elsa Borg.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.