Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1974, Side 72

Kirkjuritið - 01.12.1974, Side 72
verður maðurinn það, sem Kalvin kall- aði „perpetua fabrica idolarum" (skurðgoðaverksmiðja.) Paul Tillich hefur meiri trú ó sköpunargófu manns- ins, en gerir sér samt grein fyrir þess- ari yfirvofandi hœttu, að hann hefur tilhneigingu til þess að búa til skurð- goð. Þess vegna verður maðurinn að feta sífellt í fótspor Lúthers ogi„brjóta" tóknin, eða hreinsa þau svo að þau verði „gagnsœ" og gegnum þau sjó- ist. Þetta orðar Hallgrímur ó þennan hótt: „Gegnum Jesú helgast hjarta/ í himininn upp ég líta má." Guðfrceðingur, sem gœtir þess að vera í jafnvœgi í tímanum, þ. e. a. s. trúfastur í hefðinni og trúfastur í samtímanum og jafnframt í jafnvœgi ! heiminum þ. e. trúfastur þeim heimi, sem Guð hefur falið honum að starfa í og um leið trúfastur þeim heimi, sem hann er „af en ekki í", — sá guðfrœðingur er vel varinn gegn þeirri hœttu, sem œvinlega er fyrir hendi: að gera táknið, hvort sem það er mynd eða játning( að skurðgoði. Þessi hœtta táknanna á einnig við um „veraldleg" tákn. Orð eru líka tákn, „faðir" táknar nálœgð og kœrleika Guðs, „drottinn" táknar mikilleik hans og fjarlœgð. Aftur á móti kvarta kvenréttindakonur meðal guðfrœðinga yfir því að krist- in trú sé fátœk að kvenlegum tákn- um fyrir Guð. Hvers vegna er Guð ekki táknaður sem „móðir", t. d. „móðir lífsins" (Sjá bókina „The Church and the Second Sex" eftir Dr. Mary Daley). Kristur er mikilvœgasta tákn kristinnar trúar (Jesús er hins vegar mannsnafn), tákn hans eru mörg, þau merkustu eru krossfesting- in, tákn þjáningar og hins fórnandi kœrleika, sem afneitar öllu í eigin þágu til þess að deyja inn í líf með- bróðurins — og „upprisa" sigur þess lífs sem Guð hefur yfir öflum dauð- ans, vonleysisins og eyðingarinnar. Bœði sakramentin( skírn og altaris- ganga, fela í sér þessi tákn. Hinn ágœti danski prestur, sem við- hafði þessi áður tilvitnuðu orð um hákirkjulegheit Kirchliche Samlung, bauð mér að aka með sér til Ný- borgar á Fjóni. Þegar þangað kom bauð hann mér gistingu, sem ég þáði með þökkum. Heimili hans var kristið heimili af gamla píetiska skólanum- Lesið var úr Biblíunni og beðið saman í stofunni um kvöldið fyrir svefninn. Um morguninn las húsbóndinn kafla úr morgunhugleiðingabók fyrir fjöl' skylduna og slðan voru sungnir sálm- ar og beðið. Helgisiðir daglegrar guð- rcekni. í einhverju formi verða þeir að vera, spurningin er hvort þessi hefð- bundna guðrœkni hentar í nútíman- um. Hvað sem því líður, þá er heimil- isguðrœkni áreiðanlega það, sem íslenzkt kirkjulíf skortir. Eina af sin- um þekktustu sögum endar hinn þekkti, bandaríski rithöfundur, J°hn Updike, á þessa leið: „Það, sem þetta þjóðfélag vantar er serimoníur". er ekki í vafa um réttmœti þessara orða. Menningin er full af táknum 1 formi mynda, tónlistar og athafna, hin kirkjulegu og kristnu tákn verða sífellt minna áberandi. Ástœðan er s°, að kirkjan vill vera skynsamleg, hlið' ar sér hjá að viðurkenna út í Yztu œsar, að það eru serimoníurnar, hin°r táknrœnu athafnir, sögurnar, dasrm sögurnar, helgisagnirnar, hin myn 358

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.