Leiftur

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Leiftur - 01.01.1915, Qupperneq 43

Leiftur - 01.01.1915, Qupperneq 43
L E I F T U R 41 Viövöranarsöngur. Pjóðsagnir Odds Björnssonar bls. 90. Eftir sögn og handriti Sigurðar Bjarnasonar bónda á Snæbjarn- arstöðum í Fnjóskadal, nú á Garðsá í Kaupangssveit, 1908. Fjórtánda dag febrúarmánaðar 1905 fór eg að heiman eitthvað út í Fnjóskadal, og á heimleiðinni um kveldið kom eg að Reykjum, sem er fremsti bær við mynnið á Bleiksmj'rardal, vestanmegin Fnjóskár. Eg þurfti oustur yfir ána, til þess að komast heim til mín, og spurði því beitarhúsamanninn frá Reykjum, sem kom fram með ánni, hvort eg mundi geta komist yfir hana á is. Hann kvað þrjár spengur vera á ánni; eina þar skamt fyrir framan, undan Reykjaldifi, aðra undan Lambanesi fyrir utan Tungu, sem er bær austan árinnar, en þó nokkuð framar en Reykir, og þriðju spöngina kvað hann vera sunnan við Reykjaselið, sem er beint á móti Tungu. Nú held eg leiðar minnar og kem að spönginni undan ldifinu; áin rann þar ofan á ísnum, svo að eg komst ekki yfir um, og hélt því fram með ánni og ætlaði að komast yfir á spönginni við Lamba- nes. Þegar eg kom að henni, sýndist mér hún mjög óálilleg. Eg nam staðar lílið eitt, til þess að athuga, hvar bezt væri að komast yfir. Þá heyrði eg glögt að sungið var rétt hjá mér, og heyrðist mér söngurinn koma neðan úr vatninu; heyrði eg þegar, hvað sungið var, en það var vers úr sálminum »Alt eins og blómstrið eina«, þelta: »Eg veit minn ljúfur lifircc. Það var sungið skýrt og hægt til enda, átakanlega raunalega og alvar- lega. Eg varð mjög hissa á þessu, virtist þetta vera merkilegur fyrirburður, því að eg var alveg viss um, að enginn maður var þar nálægur, og misheyrn gat það ekki heldur verið, því að eg heyrði það glögt og skil- merkilega sungið með vanalegu lagi. Síðan snéri eg frá ánni og komst yfir hana sunnan við Reykjaselið og fór sem leið liggur austur yfir Tunguháls og heim til min.

x

Leiftur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leiftur
https://timarit.is/publication/483

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.