Leiftur - 01.01.1915, Side 45

Leiftur - 01.01.1915, Side 45
LEIFTUR 43 húsdyrnar. Var þegar farið út til að vitja hennar, en gripið var i lómt. Alveg var gengið úr skugga um, að nokkurt hross væri þar, enda þekti eg hana fyrir víst, því að hún var mjög einkennilega skjótt, og mér þótti mjög vænt um hana, og folaldið undan henni var búið að gefa mér. Eg ólst upp með Skjónu og gerði alt sem eg gat til að biðja henni lifs. Þegar eg sá hana koma, varð eg svo fegin að hún var lifandi, og treysti þvi, að nú yrði látið undan og reynt að lækna hana. Vel man eg eftir Skjónu, en aldrei sem í þetta sinn, fyrir fögnuðinum yíir því að fá að sjá hana aftur lifandi. Siðar fréttist, að einhverra atvika vegna var eigi hægt að koma því við, að drepa Skjónu, fyrr en stuttu fyrir trökkrið þennan sama dag. Svipur Gránu. Sögn húsfreyju Elísabetar Pórðardóttur á Kolbeinsstöðum. A Litla-Hrauni, þar sem eg er uppalin, var á fóðri um G ár hryssa, grá að lit, er kölluð var Eggerts Grána. Hún var úr Hraunhreppi. Hryssa þessi var einkar væn. Vorið 1906 kom eg út á Litla-Hrauni snemma morguns, voru þá komin hross í túnið, er eg rak þegar. Var eg hundlaus. Ilrossin voru öll spök og gekk eg langa leið rétt á eftir þeim og varð að hlaupa fyrir sum þeirra. 1 hrossum þessum, er eg rak, sá eg glögt alla leiðina Gránu, og sá eg að hún var nýköstuð og undir henni brúnt hestfolald vakurt. Henni fylgdi og jarpskjóttur hestur, þá veturgamall, er og gekk undir henni, svo sem titt er á Litla-Hrauni og Stóra-Hrauni þar sem hross eru sjaldan í hús tekin. Skildi eg svo við hrossin i svonefndum Krókum. Er eg kom heim sagði eg við móður mina, Aslríði Benjamínsdóttur, er bjó þá ekkja á Litia-Hrauni og býr þar enn: »Nú er Eggerts Grána falleg og er nú köstuð og með brúnu vökru hestfolaldk.

x

Leiftur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Leiftur
https://timarit.is/publication/483

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.