Verði ljós - 01.01.1896, Blaðsíða 16

Verði ljós - 01.01.1896, Blaðsíða 16
12 Sje Kristur ekkert annað en maður eins og vjer, dáinn og grafinn fyrir rúmum 1800 árum, þá verður því ekki neitað, að heiður og mannvirðing allra þeirra manna, er nefna sig lcristna, í þeirri mcrkingu, sem þetta orð hcfir hlotið í sögunni, er í veði, því að meiri niðurlæging er með öllu óhugsanleg fyrir mannsandann en sú, að hafa dýrkað og tilbeðið mann, sem hjer á jörðu sigldi undir fölsku flaggi, ljezt vera guðs sonur og heimtaði guðlega til- beiðslu, en var sljettur og rjettur...........(jeg get ekki skrifað þetta orð), — hve hrcinn og háleitur, sem siðalœrdómur hans annars var. En sjo iíristur á hinn bóginn sá, sem kirkjan hefir játað og játar og kennir enn í dag, sannur maður og jafnframt sannur guð, önnur persóna guðdómsins, er holdi klædd birtist hjer á jörðu, en lifir eilíflega á himnum uppi við guðs hægri hönd og hefir heimsstjórnina og heimsdóminn í hendi sjer, þá liggur í hlutarins eöli, að það er ekki aðeins óhjákvæmileg skylda hvers cinasta manns að trúa á hann og hlýða honum, heldur hlýtur meira að segja velferð hvcrs einasta manns um tíma og eilífð, að vera kom- in undir því, í hvaða sambandi hann stendur við Jésúm Krist. — Hjer er aðeins um tvent að tofla, annaðhvort hefir Kristur ekki verið annað en maður, — sje svo, þá látum oss rífa niður allar kirkjur eða búa til úr þeim lcikhús, eins og stungið hcfir verið upp á hjer i nágrannasveitinni; oða hann er „konungur himna, kong- ur vor“, — sje svo, þá látum oss falla fram og tilbiðja „að hann ekki reiðist og þjer tortímist á yðar leið; því að skjótt upptendr- ast reiði hans“; — um nokkurn þriðja möguleglcikann getur hjer ekki verið að ræða. Nei, nei, Bergþór minn! mannsandinn er ekki enn þá vaxinn upp úr því að rífast um gamlar trúarsetningar. Gamla spurning- in: „Hvað virðist yður um Krist? Hvers son er hann“ ? — er enn þá lifandi. Það eru ekki eingöngu gamlir pokaprestar uppi í sveit á ísiandi, eins og sjera Hjörtur gamii á Gili og hans líkar, scm cru orðn- ir svo á eptir tímanum, að þeir sinni enn í dag slíku spursmáli, því að jeg sje ekki betur en að allur liinn mentaði heimur sje enn að liugsa, tala og rita um þetta sama. Og, jeg vil bæta því við, það mun ekki aðeins vcrða rætt um það, rneðan við lifum báðir, Bergþór minn! heldur cr jcg fyllilega sannfærður um, að það verður ekki tekið út af dagskrá meðan nokkur maður drcgur anda hjer á jörðu, unz hann kcmur sjálfur í skýjum himins í dýrð veldis síns, öllum jafn sýnilcgur, cins og cldingin, scm skín í austri og verður sjeð alt til vesturs.

x

Verði ljós

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.