Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 12.06.1949, Page 49

Sjómannadagsblaðið - 12.06.1949, Page 49
Ásgeir Sigur&sson: Þýðing Sjómannadagsins Sjomannadagurinn, er eigi aðeins gleðidagur fyrir sJ°menn og vini þeirra, heldur og baráttudagur. A þessum degi ræða þeir við alþjóð, bæði í ræðum og ritl> ýms þau mál, sem stéttina varðar, svo hagsmuna- ^1) menningarmál, og réttlætismál. Eðlilega verð- Ur sú túlkun, með ýmsum hætti, 'hjá sumum rök- fast og hóflega, -hjá öðrum með stærri orðum, en ^mni alvöru. En til þess að fólkinu, sem land vort kyggh, muni nokkuð á leið, — til þess að sjá megi framför með þjóðinni í þe ssu sem öðru efni, ættu ailir að gæta hófs til orðs og æðis, bæði þeir sem kröfurnar gjöra, svo og þeir sem eiga að sinna þeim. f’annig mundi skapast gagnkvæm velvild, til úrlausn- ar vandanum. Ef svo væri, er það víst að fleiri vandamál mundu leyst með hagsmuni alþjóðar sem höfuðmark og samkvæmt lýðræðislegu réttlæti. En nú er það svo, ýð þegar lengi hefur verið hamrað á leiðréttingu mála, 1 réttlætisátt, við valdhafana, en áheyrn eigi fengist, þá er eigi nema eðlilegt, að ýmsir verði langeygir °g þreyttir, þá er að gjöra það upp við sjálfan sig, f‘vað frekar skuli gjöra. Eg trúi því, að enginn sé svo gjörsneyddur sann- Slrni, að hann ekki að lokum fallist á réttlætisleið- lna' Það hlýtur að vera meira en lítið spiltur stjórn- ^íamaður, sem ekki iðrast fyr eða síðar, í það lu’nnsta á dauðastundunni. Við skulum því halda afram að berjast hinni góðu baráttu í fullri vissu Pess) að allir vondir stjórnmálamenn eiga sér skapa- dægur, ef ekki líkamlegt, þá stjórnmálalegt og suma hendir það mjög bráðlega. Samtök sjómanna hafa barist fyrir mörgum rétt- lætismálum, á síðari árum, bæði við Alþingi og ríkj- andi stjórnir. Stundum hefur verið sagt við okkur, hvað eru þið að skipta ykkur, af þessu eða hinu. Slíkum og þvílíkum dramblætishortittum sinnum við ekki. Við teljum okkur fullkomlega hlutgenga á við aðrar stéttir og stéttvillinga. Okkur er sagt að við lifum í lýðfrjálsu landi, við trúum því og berj- umst því fyrir málefnum okkar. Eitt af þeim mörgu málum, sem samtök þau, er ég starfa við, F.F.S.I., hafa beitt sér fyrir, og sem með sanni má nefna réttlætismál, er leiðrétting á skipan stjórnar S.R., í það horf, að áhrifa sjómanna og útvegsmanna gæti þar, helst einvörðungu, sem vissulega væri viturlegast og réttast, eða þá að minnsta kosti svo, að þessir aðilar gætu vel við unað. En nú er fyrirtækjunum stjórnað, eins og menn vita algjör- lega af hinum pólitísku flokkum, sem nú eiga full- trúa á Alþingi. Það virðist svo sjálfsagt og eðlilegt að lagfæring fáist á þessu, að undrun má sæta, að menn sem eru upp til hópa sanngjarnir, skuli geta staðið á móti því. Eitt er víst, að ef stjórn verksmiðjanna væri breytt, í þetta horf, mundi ríkistjóður ekki tapa og þeir sem við fyrirtækin vinna eigi heldur. Um stjórn þeirra sem sjálfr hafa allra hagsmuna að gæta mundi skapast meiri friður, betra samstarf. ÞVl akveðið að bíða um stund, var kl. 11,30 f. h. en f'ara um kl. 13,20. ^1- 12 á hádegi voru menn frá Súgandafirði komn- lr a strandstað'nn. Sáum við síðan frá skipinu þegar Pessum tveim mönnum var bjargað á land, var kl. Pa 2 eftir hádegi. Eæjarljtgergum Hafnarfjarðar og Reykjavíkur voru ”e?ar send skeyti um björgunina. ^eir menn sem í land komust gengu inn með firðinum og voru teknir um borð í Skúla Magnús- son með aðstoð v.b. Garðars frá Flateyri. Héldu'nú skipin öll inn fyrir Flateyri og lögðust þar fyrir akkerum þar sem veðrið var of vont til að fara uppað bryggju. Kl. 5 e. h. kom v.b. Garðar og flutti skipbrots- mennina í land. Hannes Pálsson. SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 29

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.