Sjómannadagsblaðið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Sjómannadagsblaðið - 12.06.1949, Qupperneq 52

Sjómannadagsblaðið - 12.06.1949, Qupperneq 52
Hitinn, sem var um og yfir 40 stig í marga daga, var mér óþægilegur, einkum í höfðinu. I þessu kasti lá ég um tveggja mánaða tíma, lengst af með hita- slæðingi, svitaköstum, slappur og ónógur sjálfum mér. Eg komst á fætur og fór á sjúkrahús til ransóknar, var þar um þriggja vikna tíma. Eftir að ég kom af sjúkrahúsinu fór ég að smáhjarna við. Sumarið, hækk- andi sól hafði sitt að segja, og svo andlegar lækningar, sem ég er viss um að áttu mikinn þátt í því, að ég komst að lokum til heilsu og starfs aftur. Einnig skifti það miklu, góð og nákvæm hjúkrun og atlæti heima ásamt löngun minni og vilja til að komast aftur til heilsu. Allt þetta hjálpaðist að, og á að hjálpast að, ef vel á að fara. Ég fór til sjós um mitt sumar, þá nokkuð góður og farnaðist vel. Ég fékk hitaköst eftir að ég fór til sjós. Þessum köstum fækkaði og eru nú horfin með öllu. Ég hefi það á tilfinningunni, að ég sé alveg laus við sjúkdóminn. Það vil ég taka fram, að ég fer varlega í mat og drykki og gæti mín fyrir of- kælingu. Þegar maður er veikur, gefst tóm til að hugsa, þó því að eins, að veikindin taki ekki frá mönnum ráð og rænu. Ég var svo lánsamur, að hafa engar líkamlegar þjáningar og gat þess vegna látið hugann reika. Ég hafði aldrei gert mér grein fyrir sjúkdóm- um, ég hafði verið blessunarlega laus við þá. Þegar ég sjálfur var orðinn veikur, fór ég að spyrja, hver myndi orsökin til þessarar nýrnaveiki. Einhver hlyti hún að vera, því ekkert gerðist án orsaka. Að sjálfs mín hyggju varð ég einskis vísari, aðeins beindist hugur minn og vilji enn sterkara að því, hvernig ég gæti fengið mig upp úr þessari vesöld. Ég átti afar erfitt með hægðir í veikindunum, ég varð að nota meðul að staðaldri. Einn dag kom það til tals, að náttúruækningamenn ráðlegðu hveitihýði við þess- um sjúkdómi. Nafngreind kona, sem hefði miklar kyrrsetur, notaði þetta og reyndist ágætlega. Það varð úr, að ég fór að nota þetta, byrjaði á litlu og smá jók skamtinn. Ég hafði enga trú á þessu, en taldi sjálfsagt að reyna allt sem gæti komið í stað meðala. Eftir dálítinn tíma fann ég breytingu á mér, varð það til þess, að ég fékk löngun til að vita eitthvað um þessa náttúruækningamenn. Ég fékk mér bækur þeirra, sem þá voru komnar út (og að sjálfsögðu allar bækur þess og rit síðan), og las þær fordæmalaust. Þar fann ég rofa fyrir betra lífi, ef aðeins ég hefði vilja og manndóm til að fara þær leiðir í mataræði og lífsvenjum, sem þeir benda á. Ég mátti borða þann mat sem mig langaði í þegar veikindin voru afstaðin. Ég var vantrúaður á, að það væri hollt að taka upp sama mataræði og h'fs- venjur, er ég hafði vanizt. Einkum var ég í vafa» eftir að ég hafði lesið bækur Náttúrulækningafélags Islands. Ég var sviftur öllum mat meðan ég lá, vegna þess, að nýrun gátu ekki leyst sitt hlutverk af hendi og þurftu hvíldar. Var hvíldartímanum orðinn næg1' lega langurP Ut frá þessum forsendum, reynslu annara og lestri Náttúrulækningafélags bókanna, ákvað ég að fara í matarkúr eða bindindi um óákveð- inn tíma. Þetta matarbindindi varaði hartnær þrju ár. Ég braut lítið settar reglur, meðan á þessu stoð- Það var allajafna ekki sársaukalaust pð sitja dl borðs með öðrum og sjá þá háma í sig mat, sem 1 áratugi hafði verið mitt hnossgæti. Hvað skal segja þegar um það er að tefla, að gera tilraun til að na fullri heilsu, þá er margt leggjandi í sölurnar. Það versta af öllu vondu, er að svíkja sjálfan sig, þá bregs1 maður öðrum. Ég hafði alla jafnan verið hlutgengm" þegar um mat var að ræða. Það kom sér vel, að hafa vanist á nauman matarskamt í veikindunum, þegar kom til þess að fórna venjulegum mat. Ég ákvað að hætta við kjöt, fisk, kaffi, te, egg, sósur, kraftsúpuÞ sykur og salt í mat nema að sáralitlu leyti. Eg fór inn á mataræði náttúrulækningamanna að svo miklu leyti er ástæður leyfðu. Þegar e.? var heima var þetta miklu auðveldara, þá dekraði konan við mig og miðaði allan matartilbúning v;ð mínar þarfir. A sjónum varð alLt erfiðara viðfangs» þar voru aðstæðurnar torveldari og ekki þægilegt a^ vera að malla ofan í hálfgerðann „sjúkling" þegar nóg var að gera í eldhúsinu við samsetningu á ,,kjarna' fæðu“ handa fólkinu. Þetta fór venjulega betur eU áhorfðist, því matsveinarnir og brytarnir voru rner afar vinveittir, svo ég fékk mitt og leið enga nauð. Mataræðið þessi tæpu þrjú ár var ekki fjölbreytt. Eg byrjaði daginn með fjórum glösum af líkamsheitu vatni. Skömmu síðar borðaði ég hafragraut, skyr' hræring og brauð og íslenzkt smjör. Hádegisverður>un voru kartöflur, rúgbrauð, heilhveitibrauð, grautur og súpur ef þær voru ekki sterkar. Kvöldverður, hafra' grautur og hveitiklýði, kartöflur og brauð. Auk þesS át ég hrátt allt nýtt grænmeti, sem ég náði í, einflig át ég þurkaða ávexti í grautum og niðursoðna í doS' um. Sem sagt, allir ávextir voru kærkomnir, einrug laukur og sítrónur. Nú síðustu árin borða ég allaU algengan mat, þó með þeim undantekningum, að eg neyti ekki nema % af kjöti og af fiski á móts við áður fyrr. Ég drekk ekki kaffi né te og borða ekk1 sósur og mengaðar súpur. En meðalstór hrár lauknr er fastur „liður“ í mataræðinu og ein eða tvær hraar 32 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.