Bæjarskrá Reykjavíkur - 01.01.1934, Blaðsíða 470
IV. Lögreg'lusamþykkt Reykjavíkur.
I. KAFLI.
Um reglu og velsæmi á almannafæri.
1. gr. Á almannafœi'i mega uppþot oða óspektir ekki eiga sér stað. Ekki
mega menn þyrpast saman á almannafæri svo að til tálma sé fyrir umferðina,
eða til óþæginda fyrir viðstadda. Þegar talað er um almannafæri í samþykkt
bessari, er átt við götur, vegi og svæði. sem almenningur fer um, eða ætlað er
til álmennings afnota, svo sem leikvelli. sölutorg, bryggjur, bólvirki o. s. frv.
Um veitingastaði, almennar knattborðsstofur, afgreiðslustaði bifreiða o. þ. h.,
kvikmyndahús, leikhús og önnur samkomuhús, gilda ákvæði samþykktar þess-
arar um almannafæri, eftir því sem við á.
2. gr. Þegar f jölmenni safnast á almannafæri, þar á meðal við dvr kirkna,
sölubúða, leikhúsa eða annara samkomuhúsa, eða annarsstaðar, ]iar sem al-
menningur kemur saman. skal fólk raða sér þannig, að þeir sem fyrst koma fá’
fyrstir afgreiðslu, og liaga sér í öllu eftir þeim fyrirmælum, sem lögreglan eða
umsjónarrnaður setur til að varðveita góða reglu.
3. gr. A almannafæri má ekki fljúgast á, æpa, kalla, blístra, syngja hátt
né hafa í frammi annan liávaða eða ofsalegt eða móðgandi háttalag, sem raskar
allsherjarreglu, cða ónáðar vegfarendur, viðstadda. eða þá sem búaínágrenninu.
4. gr. Bannað er að liafast nokkuð það að, sem raskar næturró manna, og
enginn iná að ófyrirsynju berja á dyr eða glugga, hringja dyrabjöllum eða
hafast neitt það að, sein veldur ónæði.
5. gr. A' götum bæjarins, eða þar sem hætta g,etur af stafað, má ekki
leika knattleik, pjradís, feluleik, stikk eða klink, gera rennibrautir, renna sér
á skautum eða sleðum, eða liafa um hönd aðrar skemtanir eða leiki, sem hindra
umferðina. Sömuleiðis er bannað að hanga utan í vögnum, sleðum eða bifreið-
um, sem eru á ferð um göturnar, eða festa við þá sleða, handvagna eða annað,
er til óþæginda getur orðið.
6. gr. Eigi má skjóta af byssum, skammbyssum, lyklabyssum, örvabogum
eða öðrum skotvopnum á eða yfir almannafæri. Á almannafæri má eigi kveikja
í púðri, skoteldum eða sprengiefnum. Þó getur lögreglustjóri veitt undanþágu
frá þessu ákvæði, ef sérstaklega stendur á, svo sem um áramót, og séu leyfin
bundin við tiltekin svæði. Nauðsynlegar sprengingar vegna mannvirkja má að-
eins gera með sérstöku samþykki lögreglustjóra og ber bæði verkstjóri og sá,
sem mannvirkið er unnið fyrir, ábyrgð á, að allrar varúðar sé gætt.