Bæjarskrá Reykjavíkur - 01.01.1934, Blaðsíða 478
440
V. KAFLI.
Um reiðhjól.
50. gr. Þeir, sem fara á reiðhjóli um götur bæjarins, skulu gæta þess
sem hér segir:
a. A hjóli mega ekki í senn vera flciri menn en hjólið er gert fyrir. Sá, sem,
stýrir hjóli, skal ætíð halda að minnsta kosti annari hendi um stýrið og hafa
báða fætur á stigsveifum. Enginn má flytja með sér á hjólil hluti, scm
valdið geta hættu eða hindrað umferðina.
b. A hverju hjóli skal vara bjalla, sem gefur hvellt hljóð, en ekki horn né
annar hljóðgjafi, og skal hjólamaður láta til hennar heyra, ef hætt er viS
árekstri.
c. Ljósker, er snúi fram og lýsi framundan sér, skal vera á hverju hjóli, þegar
fariö er aö skyggja. Ljós skal tendrað á þeim tíma, sem ákveðinn er til
tendrunar á ljósum bifreiða í 43. gr.
d. Okuhraði á hjóli má ekki vera meiri en 18 kílómetrar á klukkustund og
þar sem hjólamaður sér skammt frá sér í kröppum bugðum, við gatnamót,
þar sem mikil umferð er og þar sein vegur er sleipur, skal gæta sórstakrar
varúðar, og má þar aldrei aka hraöara en svo, að stöðva megi lijólið
þegar í staö. Sé for eða bleyta á götu, skal aka svo, að ekki slettist á aðra
vegfarendur, gangstéttir né byggingar. Skylt er hjólamanni aö nema staðar,
ef reið hans veldur því að hestur fælist eða gerist órór.
e. Byrjendur mega ekki æfa sig á hjólum á göturn bæjarins. Ekki má hjóla
á gangstéttum né yfir þær og ekki inn eða út úr kliðum.
Eigandi lijóls ber ábyrgð á brotum á samþykkt þessari, ef liann lánar það
þeim, sem er yngri en 14 ára.
VI. KAFLI.
Um reið, hestaflutning og akstur á götum bæjarins.
51. gr. Á almannafæri má ekki ríða, eöa aka hraðara en á hægu brokki
og þar sem mikil er umferð, gatan mjó eöa farartálmi á veginum skal aðeins
fara fót fyrir fót. Lögreglan getur skipað svo íyrir, hvenær sem nauösyn þykir,
að fara skuli aðeins fót fyrir fót á tjlteknu svæði, og þar sem margir Vagnar
koma saman á einn stað, getur hún raðað þeim eða skipað þeim að nema staðar
um stund.
Ríðandi menn og vagnstjórar skulu í tæka tíö gera viðvart mönnum, sem
á undan þeiin ganga.
Eigi má ríða eða aka um gangstéttir bæjarins.
52. gr. Það er með öllu bannað aö ríða, beita fyrir vagna eða flytja
farangur á höltum eða meiddum liestum, eða svo horuðum, að ekki hafi þeir
fullan þrótt. Hestar, sem bíta eða slá, skulu auðkendir á þann hátt, að áberandi
skúfur sé festur í ennistopp eða tagl.
53. gr. Itíðandi mönnum, lestamönnum og öðrum, er farangur flytja á
áburðarhestum, er skylt að víkja úr vegi og jafnvel út af götunni fyrir vögnum
og bifreiðum, er þeir mæta, ef vagninn kemst ekki leiðar sinnar að öðrum