Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Page 75

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Page 75
IÐUNN Kommúnismi og kristindómur. 36t legt gengi hennar »á öllum öldum.« Ég er ekkert viss- um, að hið »raunverulega gengi« kirkjunnar hafi nokkru sinni verið meira en einmitt nú. Þó að mér finnist i sjálfu sér ekki mikið til um sigra hinnar- kristnu menningar og ósigrar hennar hafi bæði verið margir og hörmulegir, þá hygg eg þó, að óvíst sé, hvort hún hafi nokkru sinni staðið með meiri blóma. Þess ber að gæta í þessu sambandi, að eg tel ekki hið* ytra páfa- eða kirkjuvald nokkurn réttan mælikvarða, á »raunverulegt gengi kirkjunnar«. Kirkjan getur auðg- ast að fé og ytri áhrifum og verið þó andlega dauð.. Nei, það eru hin innri áhrif, sem dæma verður eftir. Það er andrúmsloftið og hugmyndirnar, sem kirkjan- skapar. Og enginn sögufræðingur mun treysta sér til að neita því, að hin kristna menning hefir bylt um> hugmyndalífi Norðurálfuþjóða og margar mannúðleg- ar umbótahugmyndir eigi rót sína að rekja til hennar.. Grunnhygnir menn veita því iðulega enga athygli,. þegar þessar hugmyndir og þjóðfélagslegar afleiðing- ar þeirra mæta þeim í lífinu, fremur en Bakkabræður gerðu sér grein fyrir því, að dagsbirtan stafaði frá sólunni. En þannig er þetta samt. Þrátt fyrir alt hefir kirkjan orðið súrdeig, sem sýrir alt deigið. Og enda þótt heinaberg erfðasyndarinnar, skilningsdeyfð Adams og Evu, sé torvelt til hraðra framfara, þá hefir þó ef til vill örlítið miðað í áttina og dagsbrún nýrra hug- sjóna flutt dálitla skimu inn í hugi manna og hjörtu., Að framförin hafi hins vegar verið mikil og ör, hefi ég ekki neina verulega trú á. Hvað almennan hugs- unar- eða vitsmunaþroska snertir, getur það orðið ákaflega mikið vafamál, hvort vér stöndum t. d.. Grikkjum eða Rómverjum svo sem nokkru framar. Vér horfum minsta kosti á það, að mannkynssagani

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.