Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Page 81

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1934, Page 81
IÐUNN Kommúnismi og kristindómur. 367 Guðjónsson, hvers vegna ég mun einhvern tíma hafa komist þannig að orði, að »trúaðir« menn væri góðir þrátt fyrir trú sína, en ekki vegna hennar. Ég gerði meira: Ég benti á, hvernig menn yrðu iðulega grimm- ir og blóðþyrstir vegna trúar sinnar. — En það, sem ég fól þá í hugtakinu »trúaður«, var þessi tegund af trú, sem er ofstækistrú. Það, sem veldur iðulega nokkrum misskilningi og ruglingi, þegar rætt er um trúarleg málefni á meðal íslendinga, er það, að málið á engin orð til að gera greinarmun á því, sem á erlendu máli er kallað »reli- gion« — þ. e. hið almenna viðhorf eða tilfinning manna gagnvart leyndardómi alheimsins, og því, sem á ensku máli kallast: belief — þ. e. trú eða fastheldnii við einhverjar ákveðnar kennisetningar. Að vísu er tæplega hægt að hugsa sér »religion« án einhverra kennisetninga, en trú i hinum síðari skilningi er hugs- anleg án nokkurrar dýpri andlegrar sannfæringar. Á merkingu þessara orða er geysimikill munur. Að vera trúaður (religious) i hinum fyrra skilningi orðs- ins er að hafa tilfinning fyrii óendanlegu undri lífsins, trú á vitsmunalegan tilgang þess og andlega þýðing. Nákvæmlega hvernig þessu er háttað, getur verið ó- svöruð spurning, enda veit það hver sannarlega trú- hneigður maður, að vegir guðs eru órannsakanlegir; þ. e. maðurinn er enn þá kominn skamt á veg í þekk- ingu, og líklegt, að hugmyndir hans um ýmislegt eigi eftir að breytast. Þess vegna er hann ekki svo gall- harður á kennisetningunum. En »trú« hans er grund- völluð á hinni óviðráðanlegu tilfinningu fyrir lífinu, gildi þess og dýrmæti, sannfæringunni um, að þróun þess og siðfágun sé þess vegna þýðingarmikil og að.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.