Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.03.1951, Side 25

Tímarit lögfræðinga - 01.03.1951, Side 25
Nokkur orö um crfðurétt 17 vitanlega alls ekki allt af. En þá kemur mannúðarsjónar- mið nútímamanna til sögunnar: Það er óréttlátt, að barn sé látið gjalda þess, að það er óskilgetið. Með því að arf- leifanda mun venjulega þykja það eðlilegast, að niSjar hans hljóti fé hans framar öðrum ættingjum, þá sýnist ekki rétt að nema staðar við bamabörn arfleifanda. Vegna aldurs þess manns, sem á barnabarnsbörn á dauðastund siivni, er að vísu alls ólíklegt, að hann eigi foreldra á lífi, on hann getur átt systkin eða börn þeirra á lífi, og sýnist aiveg fráleitt, að þau, og þá einkum börn systkina arfleif- : nda, gangi fyrir barnabarnabörnum hans. Mætti nefna ■aunverulegt dæmi þessu til skýringar. Langafi eða lang- arnma barns mundi víst venjulega telja það eðlilegra, að arfur eftir þau renni til barnabarnabarns síns en til syst- kina sinna eða barna þeirra. Þess vegna virðist rangt að útiloka niðja í þriðja lið frá arfleifanda frá arfi, eins og ákveðið er í frv. Um 2. Þegar arfleifandi á enga arfgenga niðja, þá er eðlilegt frá sjónarmiði almennings og væntanlega venju- lega samkvæmt vilja. arftakanda, að foreldrar hans taki arf eftir hann og að þeim frá gengnum systkin hans. En hitt verður .alls e-\ki almennt sagt, að arfleifandi mundi hafa kært sig um, að börn systkina sinna fengi fé hans. Nú mun ósjaldan vera svo farið, að menn vita lítt um slík börn og hafa alls ekki tekið neinu ástfóstri við þau. Mætti því sleppa börnum systkina arfleifanda úr erfðaflokki þessum. En það gerir hvorki frumv. né heldur erfðalögin nýju. Alveg óréttmæt virðist meðferð frumv. á kjörbörnum. Venjulegt er það, að kjörforeldrar meta kjörbörn nokkurn veginn svo sem þau væru þeirra holdleg börn, og sýnist því alveg fráleitt, að kjörbörn gangi fyrst til arfs eftir kjörforeldri á eftir foreldrum þess, jafnhliða systkinum arfleifanda og börnum þeirra. Erfðaréttur kjörbarna eftir kjörforeldri, svo sem hann er ákveðinn í 18., sbr. 3. og 6. gr. erfðalaganna, virðist vera í fullu samræmi við réttar- vitund almennings og venjulega samkvæmur vilja kjör- 2
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.