Tímarit lögfræðinga - 01.01.1960, Blaðsíða 5
Ávarpsorð
frá Lögfræðingafélagi íslands
Svo sem frá er skýrt í upphafi þessa heftis, hefur það
ráðizt, að Lögfræðingafélag Islands tækist á hendur út-
gáfu Tímarits lögfræðinga. Er þetta eðlileg þróun, þar
sem það féiag verður nú að ‘elja hin almennu samtök
islenzkra lögfræðinga, sem allir löglærðir menn geta geng-
ið í án tillits til sérstarfa síns.
Við þessi tímamót er bæði eðlilegt að líta aftur lil hins
liðna og horfa nokkuð til framtíðar timaritsins.
Lögmannafélag tslands hóf útgáfu á þessu tímariti árið
1951, og á félagið skilið miklar þakkir fjTrir þetta fram-
tak sitt svo og fyrir það, að félagið var í fyrirsvari fyrir
íslenzka lögfræðingastétt í heild svo að áratugum skipti
— alla stund umfram brýna skyldu. Það fyrirsvar hefur
félagið rækt svo myndarlega, að til sæmdar er. Ýmis
þessara verkefna koma nú eðlilega í hlut Lögfræðinga-
félags Islands, en það unga félag væntir þó ávallt styrks
og atfylgis Lögmannafélagsins til átaka fyrir stéttina
i heild. I ávarpi Lögmannafélagsins er vikið að sögu
tímaritsins. 1 þvi hafa birzt ýmsar merkar greinar, sem
jafnan mun þykja fengur að. Hitt mun á almannavit-
orði, að ritstjórarnir tveir, Einar Arnórsson fyrst og síð-
ar Theódór B. Líndal, hafa ekki átt sjö dagana sæla við
öflun efniviðs í timaritið. Þrátt fyrir þá vanhagi, er
skylt að geta þess hér, að engu lögfræðitímariti, sem hér
hefur verið stofnað til, hefur orðið jafn langra lífdaga
auðið sem Timariti lögfræðinga, þegar frá er skilið hið
ágæta tímarit laganema, L'lfljótur.
Stjórn Lögfræðingafélags íslands hefur reynt að gera
Tímarit lögfrœöinga
3