Tímarit lögfræðinga - 01.01.1960, Blaðsíða 73
aldrei meiri þörf en þá að hafa allar varnir sem beztar og'
öruggastar.
Rétt er að geta þess í sambandi við gæzlustörfin, að við
ýmsa örðugleika er að stríða vegna óhagstæðrar húsaskip-
unar. Má þar fyrst nefna, að einangrunarklefar hælisms
fullnægja ekki að öllu leyti þeim kröfum, sem til þeirra
voru gerðar. Er þar fyrst að nefna, að hljóðeinangrun er
lítil sem engin, því að högg og önnur háreysti þaðan heyr-
ist um allt húsið. Yfirleitt má segja, að allt húsið sé mjög
hljóðbært, veldur það oft erfiðleikum þegar um óða menn
er að gera. Einnig má á það benda, að öll gæzla innanhúss
er margfalt erfiðari vegna þess, að fangaklefarnir eru á
þremur hæðum. Þá er á það bendandi, hvort ekki myndi
hagkvæmt, að útidyr væru á varðstofu hælisins, því telja
verður, að slíkar dyr myndu skapa aukið öryggi á fleiri
en einn hátt. Miklu væri það æskilegra, að gestir og aðrir,
sem á hælið koma, færu fyrst inn á varðstofu hælisins, en
ekki eins og nú er um aðaldyr fangelsisins .. .
Líka gæti það ástand skapast í fangelsinu, að nauðsyn-
legt væri að gæzlumenn hefðu aðrar útgönguleiðir en að-
aldyr hússins.
Sem kurinugt er hefir hælið með höndum allmikinn bú-
rekstur. Vinna í sambandi við hann hefir verið mikil, sér-
staklega yfir sumarmánuðina. En á öðrum tímum árs kom-
ast færri í beina snertingu við þau störf. Þá skapast vanda-
mál í sambandi við vinnuþörf fanga. Til ýmsra starfa
hefir verið gripið, meðal þess má nefna vikursteypu, þ. e.
holsteinn, einangrunar- og skilrúmsplötur, hnýting, þ. e.
vörpu og kúlupoka. Það, sem mjög torveldar fjölbreytt-
ari vinnu hjá föngum og jákvæðari vinnu hjá þeim, er
tilfinnanlegur skortur á heppilegu húsnæði. Til staðar er
til innivinnu fanga gömul skúrbygging með lélegri upp-
hitun. Eitt af brýnustu verkefnum til hagsbóta fyrir þessa
stofnun er bygging nýrra vinnuskála, svo hægt væri að
skapa föngum vinnuskilyrði inni, þegar veður hamla úti-
vinnu ...“
Tímarit lögfræöinga
71