Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1988, Qupperneq 31

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1988, Qupperneq 31
til að ráðstafa eignum sínum með löggerningum, og því verður að kanna sérstaklega í hverju tilviki, hvort almenn og sérstök skilyrði til beitingar reglnanna séu fyrir hendi eða ekki. Einnig hefur verið bent á, að of víðtækar riftunarreglur gætu skaðað viðskiptaöryggið. Verður einnig að huga að því sjónarmiði við beitingu þessara reglna. 2.2.2. Almenn skilyrði riftunar. Það er eitt meginskilyrði þess, að riftun nái fram að ganga á grund- velli reglna VIII. kafla gjaldþrotalaga, að riftun leiði til þess, að mögu- leiki kröfuhafa til fullnustu á kröfum sínum við úthlutun úr búinu aukist þar með.2) Hér verður að hafa hugfast, að vegna reglna 82.—84. gr. 1. 3/1878 skiptast kröfuhafar nánast í flokka, þegar til úthlutunar eigna búsins kemur. Það er þannig ekki í sjálfu sér skilyrði til riftunai’, að möguleikar almennra kröfuhafa til fullnustu krafna sinna aukist, heldur nægir að möguleikar einhvers kröfuhafaflokks til fullnustu auk- ist. Riftun er einnig möguleg, þótt skuldir hækki jafnmikið við riftun og nemur aukningu eigna, enda felur slíkt í sér aukna möguleika kröfu- hafa til fullnustu, ef um raunverulegt gjaldþrotabú er að ræða. Loks er riftun möguleg, þótt hún leiði ekki til aukningar á eignum bús, ef hún leiðir til lækkunar á skuldum, enda er þá áður nefndu meginskilyrði rift- unar fullnægt. Það er einnig skilyrði, að ráðstöfun sú, sem rifta skal, hafi í raun falið í sér mismunun kröfuhafa. Skuldara er engan veginn óheimilt að greiða t.d. skuldir, ef hann gætir þess, að greiðslur hans séu nákvæm- lega í þeim hlutföllum, sem kröfuhafar fengju við úthlutun úr búi. Það verður raunar að ætla, að fáir eða engir skuldarai’, sem verða gjaldþrota, búi yfir svo nákvæmri vitneskju um fjárhag sinn, að þeim sé þetta mögulegt. 2.2.3. Flokkun riftunarreglna gjaldþrotalaga. Við gildistöku 1. 6/1978 varð sú breyting á riftunarreglum, að þær urðu auðveldari í notkun, og veldur það mestu, að riftunarreglurnar eru nú að talsverðu leyti byggðar á hlutlægum forsendum. Enn eru þó í gildi huglægai’ riftunarreglur, t.d. er efnislega víðtækasta riftunar- reglan, þ.e. regla 61. gr., byggð á huglægum forsendum. Enn aðr- ar reglur laganna byggja á hlutlægum sjónarmiðum, en veita þó þeim, sem riftun beinist gegn, heimild til að sanna, að þrotamaður hafi 2) Sjá t.d. Stefán Má Stefánsson: íslenskur gjaldþrotaréttur, bls. 155, og Niels 0rgárd, Konkursret, bls. 126—128. 93
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.