Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1994, Blaðsíða 15

Ægir - 01.11.1994, Blaðsíða 15
OKTÓBER samanborib við árið í fyrra. Heildarafli togaranna varð rúm 200 þúsund tonn og verðmætið 15,7 milljarðar króna. Baldvin Þorsteins- son EA var með mest magn og mest verðmæti eða 6.046 tonn og 412 milljónir. Hæstur ísfisktogara var Guðbjörg ÍS með 240 milljónir í aflaverðmæti. PPI Guðbjörg ÍS-46, nýjasti ■fii frystitogari íslendinga og, að margra mati, fullkomnasta fiskiskip í heimi, heldur frá ísafirði í sína fyrstu veiðiferð. Skipstjóri í fyrstu veiðiferöinni var Guðbjartur Ásgeirsson. M Samkvæmt bráðabirgðatöl- ■fii um Fiskistofu hefur 9.400 tonnum af svokölluðum rússa- þorski verið landað á íslandi það sem af er árinu. Á síðasta ári var alls landað 11.700 tonnum hérlendis svo flest bendir til þess að samdráttur verði milli ára. Mun minna framboð er á þorski úr rússneskum skipum nú en í fyrra vegna minni veiði í Barentshafi og þess að margir útgerðarmenn hafa þegar fiskað upp í kvóta sinn. PPI Mikil rækjuveiði er víða og fiéil útgerðarmenn rækjuskipa krefjast aukins kvóta og rýmkunar á veiðireglum. Norðurtanginn á ísafirði bregst við svæöaskiptingu veiöanna meb þvi að láta skrá Guðbjart ÍS í Búðardal. PPI íslenskar sjávarafurðir kaupa Eh 30% hlut í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum sem er 84 milljónir að nafnvirði. Þessi hluta- bréf vom áður í eigu Bjarna Sig- hvatssonar og fjölskyldu hans. Kaupin valda talsveröum úlfaþyt því Vinnslustöðin hefur fram til þessa verið í vibskiptum við Sölu- miðstöð hraðfrystihúsanna sem Vinnslustöðin á 7,8% hlut í. Hér eftir veröa allar afurðir Vinnslu- stöbvarinnar seldar gegnum ÍS og allt flutt með Samskipum í staö Eimskips áður. SJAVARSIÐAN MAÐUR MÁNAÐARINS Maður mánaðarins er Elínbjörg MagnÚSDÓTTIR frá Akranesi sem varð fyrst kvenna fulltrúi á Fiskiþingi í október sl. Elínbjörg sagði samtali við Ægi að þátt- takan þar hefði verið mjög lærdómsrík. Hún telur brýnt verkefni ab efla félags- starf fiskifélagsdeildanna. Elínbjörg sat Fiskiþing sem varaformaður fiskvinnsludeildar Verkamanna- sambandsins en hún hefur starfað á þeim vettvangi um árabik Elínbjörg er fiskvinnslukona, hefur unnið í fiski frá 1982, fyrst hjá Heimaskaga á Akranesi en eftir samein- ingu fyrirtækja á Akranesi hjá Haraldi Böðvarssyni hf. „Þetta er ágæt vinna en erfið og launin eru greidd eftir afköstum. Ég hef mætt miklum skilningi minna vinnuveitenda gagnvart félagsstörfum. Það þarf að auka virðingu fólks fyrir þessu starfi, ekki síst meðal þeirra sem vinna í fiski." Elínbjörg er fædd í Stykkishólmi 1949 en alin upp í Belgsholti í Melasveit, skammt frá Akranesi, og flutti til Akraness 1979. Hún er þriðja elst í hópi átta barna hjónanna Magnúsar Ólafssonar og Önnu Þorvarðardóttur sem bjuggu og búa enn í Belgsholti. Elínbjörg hefur fengist við ýmis störf í landbúnaði og fiskvinnslu, vann m.a. í Hvalstöðinni nokkrar vertíðir í eldhúsinu. Hún á eina dóttur, Önnu Elínu Daníelsdóttur, 22 ára. Elínbjörg tekur virkan þátt í stjórnmálum og félagsmálum, situr í bæjarstjórn á Akranesi og situr nú á Alþingi í annað sinn sem varaþingmaður Guðjóns Guð- mundssonar. Hún segist ekki munu fara fram aftur í næstu þingkosningum, segist vera hætt í landsmálapólitik. „Ég hef ekki tíma fyrir þetta allt. Ég vil frekar vinna fyrir minn heimabæ og sinna kjörum þess fólks sem ég er að vinna með." ORÐ í HITA LEIKSINS „Með núverandi kvótakerfi var það dapur dagur þegar nýja Guðbjörgin kom til íslands. Þab var Færeyjadagur." Jón Ásbjörnsson formabur Samtaka fisk- vinnslustöðva án útgerðar í Vestfirska fréttablaðinu. „Því miður fæst það lítið verð fyrir frysta síld að það má segja að þessi vinnslu- grein sé oröin eins konar hugsjónastarf." Friðrik Guðmundssön framkvæmda- stjóri Tanga á Vopnafirbi í vibtali við Fiskifréttir 21. október. s „Eg held að flestir séu sammála um að það gangi ekki að vera með flottroll á sama svæði og nótaskipin stunda veiöar á." Birgir Sigurðsson skipstjóri á Skinney frá Hornafirði í samtali við Fiskifréttir 7. október. „Það er bara dauðaþögn hjá okkur. Það er ekkert nema dauði framundan." Skarphéðinn Árnason trillukarl á Akranesi í Tímanum 14. október. „Þessi umræða verður æ háværari og ég hef oröiö hennar var nú á síðustu vik- um ... ásamt þeim tröllasögum sem ganga um hvernig menn veiði einungis heppilegan afla fyrir kvótann og sorteri þá við borðstokkinn eða skili fiskinum á land klæddum roðfatnaði af þeirri fisktegund sem tiltæk er hverju sinni í kvóta- bókinni." Bjarni Kr. GrÍmsson fiskimáiastjóri í ræðu við setningu 53. Fiski- þings í október. ÆGIR NÓVEMBER 1994 15

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.